Vedíska vikulega spáin 3.-10. mars 2011
Spár fyrir hvert “rísanda merki” (ekki “Sólarmerki”, þ.e. það sem þú skilgreinir þig í skv. afmælisdegi):
Kæru meðlimir, afsakið seinkunina sem hefur orðið á spánni síðustu vikur – vonandi hefur það ekki orsakað óþægindi.
Hrútur:
Einbeittu á innkomu, félagslíf og andleg mál. Gróða er nú að fá í gegnum stjórnsýslu, yfirvald, börnin þín, skriftir, fjárfestingar eða menntun, en best væri að tengja eitthvað þessara mála við lög, heilsu eða fjármál. Sameiginleg verkefni blómstra í mars. Hamingja ríkir á vinnustað og sköpun mun hjálpa við orðstýr og viðurkenningu.
Naut:
Tengdu frama við eignamál, eignir og yfirvald. Einbeittu á skriftir, viðskipti og samskipti á vinnustað. Tengdu þessi mál svo við börn, menntun og fjárfestingar. Íhugaðu rannsóknir eða andleg mál og þá sérstaklega í tengslum við heilsu eða fjármál. Gróða er að fá í gegnum kennslu og ráðgjöf.
Tvíburi:
Einbeittu á ferðalög í andlegum tilgangi, skriftir, viðskipti eða tengslamyndun við yfirvald. Íhugaðu rannsóknir og þá í tengslum við börnin þín, menntun, skemmtun eða fjárfestingar. Andstreymi gæti gert vart við sig á þessum sömu vettvöngum. Færðu aukna samvinnu og upplýsingaflæði á vinnustað til apríl loka.
Krabbi:
Tengdu rannsóknir, tungumál og andlega þekkingu við frama. Einbeittu á eignamál og fjölskyldulíf í sambland við samvinnu, kennslu, útgáfu eða kennslu. Hjálpaðu þeim öldruðu eða fátæku til nóvember loka. Það verða áfram sveiflur í atvinnumálum og útgjöldin virðast ekki ætla láta þig í friði, en á þessu léttir loksins í byrjun maí.
Ljón:
Samvinna er lykill að velgengni í bili, bæði fjármunum og hamingju. Maki þinn mun líklega öðlast viðurkeninngu fyrir verk sín á samskipta- eða viðskiptasviði. Ef þú ert í persónulegum viðskiptum, þ.e. rekur eigið fyrirtæki, væri gott að vera sérlega vakandi fyrir öllum smáatriðum á næstunni. Nú er tíminn til að spila eftir reglunum og farðu troðnu slóðina að sinni – róttæklingaháttur mun aðeins færa þér vandræði á næstunni.
Meyja:
Elsku meyja, einbeittu á heilsuna og þá sérstaklega andlega heilsu, því flest meyjan berst í böggunum þessa dagana. Ef þig verkjar í hjartastað vegna aðstæðna móður eða heima við hafðu í huga að þetta fer að líða hjá, eða ca. 3 maí. Ef þú getur fundið þér góða rósasultu, gerðu þér heita mjólk á kvöldin með rósavatni eða rósasultu því ekkert nærir hjartað eins og rósin. Eignamál, sameiginleg verkefni og viðskiptaleg tengsl munu blómstra, en farðu nú eftir bókinni, reyndu að sýna dugnað og veittu góða þjónustu, hvort sem það er heima við eða í vinnu.
Vog:
Einbeittu á eignamál, farartæki, hamingju og heimilislífið. Lappaðu uppá húsnæðið, íhugaðu nýjan bíl og hafðu í huga að þetta er mánuður hamingju, nautna og gleði í lífi rómantísku vogarinnar. Gróða er að fá í gegnum börnin þín, menntun, rómantík og sjálfsstæð skapandi verkefni. Hafðu í huga að best væri þér að leysa um ágreining og viðskiptatengdar skuldir fyrir maí byrjun.
Sporðdreki:
Sporðdrekinn berst fyrir ró og hamingju ólíkt blessunarsömu voginni í mars mánuði. Þetta er tíminn til að einbeita sér að fasteignamálum, eignamálum, farartækjum og reyndu nú að finna leið til að tala um tilfinningar þínar við manneskju sem getur hjálpað og veitt þér stuðning. Þú getur vænst vaxandi persónulegrar velgengni í tengslum við menntamál og fjárfestingar til apríl loka. Sýndu tímabundnum skuldaböggum þolinmæði.
Bogmaður:
Þú getur vænst lánsemi en einbeittu á frumkvöðlavinnu í tengslum við frama, skriftir eða viðskipti. Gróða er að fá í gegnum hvers kyns frumkvæði, hugrekki, atorkusemi og dugnað á næstunni. Dugnaður og framtakssemi skilar sér nú margfalt. Fjölskyldan blómstrar í mars og innkoma fer uppá við. Einbeittu á eignamál og heimilislíf til apríl loka og sýndu dugnað á árinu 2011.
Steingeit:
Einbeittu þér að fjölskyldulífi, ágreiningur gæti gert vart við sig í fjölskyldu, jafnvel slys og áföll en þú munt sjálf/ur stuðla að jafnvægi hvar sem þú ferð. Möguleiki verður á óvæntum gróða og þá líklega fjárhagslegum. Hækkandi sól í atvinnumálum og vaxandi viðurkenning. Útgáfa og ráðgjöf reyndist þér vel til apríl loka.
Vatnsberi:
Mikið áhrifavald fylgir vatnsberanum þessa dagana, gott væri að tengja saman sambönd eða hvers kyns samvinnu við ný viðskipti eða frumkvöðlavinnu. Vertu hugrakkur/rökk og taktu forrystuna. Einbeittu á skriftir, viðskipti, samskipti og hvers kyns samskiptatengd verkefni. Í mars væri þér gott að íhuga einveru, löng ferðalög og verkefni sem tengja þig erlendis til.
Fiskar:
Möguleiki er á löngum ferðalögum og jafnvel rómantík og framtíðar tengslum á erlendum vettvangi. Maki gæti séð aukin útgjöld á næstunni eða neyðst til að fara erlendis til. Einbeittu á fjármál og heilsuna. Gróða verður nú helst að finna í gegnum munað, rómantík, listir og kvenfólk á næstu vikum.
Lifið heil og sæl og njótið lífsins!
kærar stjörnukveðjur
Fjóla Jensdóttir
Comments are closed.


