Af hverju er umrót í samböndum fólks þessa dagana?
Kæru vinir, margir ykkar hafa líklega tekið eftir því á síðustu dögum og vikum hvað sambönd hafa í auknum mæli brotnað saman, fólk að lenda á ágreiningi og ósætti og fólk að skilja. Satúrnus er að renna inní vogina eftir ca. 2 og hálft ár í meyju merkinu og þetta er að fá fólk til að endurskoða sjálft sig í sambandi við maka eða elskhuga.
Í vog mun Satúrnus leita sér jafnvægis, heilinda og réttlætis. Við munum skoða færni okkar til að skuldbindingar af meiri einlægni. Færni okkar til að fara eftir “reglunum” í sambandinu verður nú mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Þetta er tími þar sem við skoðum okkar persónulegu takmörk innan sambandsins. Takmarkanirnar sem sambandið hefur verið að skorða okkur innan verða meira áberandi en nokkru sinni, eins hræðsla okkar við að missa maka okkar frá okkur, eða hræðslan við höfnun, og svo hvernig þessi hræðsla getur verið að takmarka okkar eigið persónulega frelsi.
Ef við höfum verið að gefa meira en að þyggja, eða að þyggja meira en að gefa, í núverandi sambandi, mun Satúrnus í merki vogarinnar, benda á hrikalega áberandi hátt á gallana í slíku fyrirkomulagi. Þetta er tími þar sem fólk í sambandi þarf alvarlega að skoða sína ábyrgð í sambandinu og að standa undir sínu verður sérlega mikilvægt. Ef við erum óánægð með það sem maki okkar er að gefa af sér í sambandinu verður það afar áberandi og kannski bara í höfðinu á okkur sjálfum. Satúrnus skapar aukna þörf fyrir þá eiginlega sem merkið sem hann býr í inniheldur, en í vog, mun hann skapa sterka þörf fyrir jafnvægi og samhljóm, en það mun taka okkur tíma að komast á leiðarenda. Satúrnus vinnur alltaf hægt og bítandi og lætur okkur bíða eftir sér. Fyrir okkur óþolinmóðustu verður þetta leiðinlegt og erfitt ferli og snertir á okkar viðkvæmustu punktum, þar sem samböndin í lífi okkar, eiga það til að vera undirstaðan og stólpinn sem við treystum á. Í upphafi munu margir eiga erfitt með að málamiðla, og þar sem Satúrnus fær okkur til að þrá stjórn og stöðugleika gætum við fallið í þá gryfju að reyna að stjórna óhóflega. Öll skulum við reyna að forðast stjórnun þar sem markmið þessa lærdóms er að læra málamiðlun, andstæðu átaka og stjórnar, þ.e. að málamiðla og vinna hlutina í þolinmæði. Sannleikurinn er auðvitað sá að við höfum aldrei fulla stjórn á neinum nema okkur sjálfum.
Í dag eiga margir erfitt með að skilgreina sambönd og finna viðeigandi mörk fyrir báða aðilla. Hvar sem Satúrnus kemur heimtar hann skilgreiningu, strúktúr, ábyrgð og mörk, en áhrif Satúrnusar eru líkleg til að fá margan til að upplifa sig fangaðan, takmarkaðan eða fastan. Á þessu ferðalagi Satúrnusar um vogina, verðum við að skilgreina markmið okkar og þarfir í sambandi, eða sambandið sjálft. Margir munu nú vissulega í kjölfarið upplifa mikla þörf til að skuldbinda sig í sambandi en áður en við gerum það verðum við að vita hvað það er sem við raunverlega viljum áður en lengra er farið. Þetta er nú tíminn til að skoða vandlega hvað það er sem við viljum, þá sjáum við einnig hvað það er sem við viljum ekki, láta það flakka sem við viljum ekki og treysta því að við getum fundið það sem okkur hentar og leyfir okkur að blómstra í sambandi. Við þurfum að finna hvar við stöndum og föllum í sambandi við annað fólk, hvort sem við erum í föstu sambandi í augnablikinu eða ekki. Ég óska ykkur góðs gengis, kæru vinir.
Comments are closed.


