Ayurveda – Vísindi Lífsins

Ayurveda eru vísindi þess að “fylgja straumnum”. Ayurveda er sanskrítar orð sem þýðir “Þekking lífsins” og er talið elsta náttúrulega heilbrigðiskerfi heimsins (og er meira að segja eldra en kínverskar lækningar). Ayurveda fræðin eru mikið meira en læknavísindi og er aðeins hægt að skilja þegar maður fer að sjá hversu djúplega vafið það er náttúrunni og okkur sem hluti af henni. Ayurvedísku vísindin skoða samband þess innra (einstaklingsins) við það ytra (umhverfið – aðstæður) og áhrifin sem hvort um sig hefur á hitt. Ayurveda skoðar “allan einstaklinginn” á líkama, huga og sál og samspil hans við heiminn í kringum hann.

Ayurveda eru heildræn vísindi sem byggjast á vísindalegum staðreyndum og meðhöndlun þeirra grunnefna sem finnast í ekki aðeins í okkur mannfólkinu heldur allt umhverfis okkur. Árstíðirnar, hrynjandi dagsins, grunnbygging og líkamsgerð, uppeldi, hugareðli o.fl eru þættir í að skapa jafnvægi eða ójafnvægi eða eins og Lucretius sagði svo snilldarlega “What is food to one, is to others bitter poison”. Engin er eins og því bregst engin eins við sömu meðferð. Styrkur Ayurveda fræðana felst í því að fyrst leitast þau við að kynnast einstaklingnum, þaðan ójafnvæginu, út frá því forsögu og mögulegum orsakaþáttum ójafnvægis og í lokin framtíðarmeðferð.

Ayurvedískur lifnaður byggist á því að stuðla og skapa jafnvægi jafnóðum á meðan við siglum í gegnum ólgusjó lífssins og hin ýmsu (og mis uppbyggileg) áhrif sem fyrir okkur verða, í gegnum lífsstíl og hegðun.

Líkamsgerðarfræði
Hvaða líkamsgerð ert þú?

Jurtafræði – Púlsgreining – Lífsstílsráðgjöf – Andleg ráðgjöf – Náttúruleg húðhirða – Panchkarma – Ilm meðferð – Hathayoga – Pranayama – Íhugun – Hljóðmeðferð – Litameðferð – Steinameðferð