Lífsstílsráðgjöf

Ayurvedísk fræði eru hugarlíkama vísindi sem stuðla að fullkomnu heilbrigði allra samvofandi þátta lífs okkar; það fjallar um andann, tilfinningarnar, hugann og líkamann. Þess vegna er mikilvægt að þegar við leitumst við að finna jafnvægi á einu sviði að við skoðum og tökum tillit til allra hinna í leiðinni.

Ayurvedískur ráðgjafi leitast alltaf við að leiðrétta ójafnvægi og stuðla að jafnvægi frá öllum hliðum lífs, þeirri andlegu, tilfinningalegu og líkamlegu. Þessi klukkutími sem þú verð með ráðgjafa er ætlaður til að kynningar á sjálfum þér og öllu sem þér viðkemur. Inní þetta viðtal, ef vel á að vera, spilar allt inní, allt sem viðkemur lífi þínu sem einstaklings í þessu þjóðfélgi, sama hversu smávægilegt sem það kann að vera. Við munum fara saman í gegnum spurningarlista sem hjálpar mér, ráðgjafa þínum, að skilja og sjá þig í fullu og skýru ljósi. Ég bið þig einlæglega að sýna einlægni og traust og allt sem okkur fer á millum er að sjálfssögðu trúnaðarmál.

Spurningarlistarnir eru oft langir en þér er frjálst að staldra við á einhverjum þætti ef þér finnst það skipta þig miklu máli, því heiðarleiki og visst flæði í tjáningu er mikilvægt. Við skoðum saman líf þitt í heild sinni og smáatriðin í leiðinni. Tilfinningar þínar til vinnu, heilsu, líkama þíns og ástand hans, hugar og félagslíf er allt sem við snertum á.

Í lok tímans er sett saman lífsstíls prógram, hugmyndir um bætur en einnig gæti ég tekið uppá því að þurfa tíma til að setja saman alla þætti í einrúmi og senda þér svo heildar meðferð eftir einn til tvo daga. Það veltur á ástandi þínu, mínu og tímanum sjálfum.

Til að náttúruleg vísindi eins og Ayurveda geti hjálpað okkur verðum við að taka fulla ábyrgð á þeim stað sem við erum í dag stödd á; andlega, tilfinningalega og líkamlega. Það er aðeins þegar við veljum okkur að taka fulla ábyrgð á lífi okkar og heilsu (tilfinningalegri og andlegri) að heilun og hreinsun getur átt sér stað. Svörin finnum við ekki með því álasa umhverfinu eða fortíðinni, í að taka pillur og leggjast svo í aftursætið og ætlast til jákvæðra breytinga. Hlutirnir breytast ekki án nokkurrar fyrirhafnar, athygli og jafnvel erfiðis á tímum. Ayurveda er aðeins fyrir þá sem eru tilbúnir að taka fulla ábyrgð á þeim stað sem þeir eru á í dag og þeim afleiðingum sem gjörðir þeirra hafa haft og munu hafa í framtíðinni.

Þegar Þú ferð heimleiðis, þá færðu í hendurnar nokkrar hugmyndir um hvernig lífið þitt getur eflst og fegrast, en það er undir þér komið að setja þig í stellingar og láta það gerast. Mikið af þeim uppástungum sem ég mun gefa þér gæti þér fundist furðulegar en visst traust er nauðsynlegt og smá tilraunagleði sömuleiðis. Ég óska þess að þú hafir tök á að sýna sjálfum þér bæði.
HAFÐU Í HUGA!!

Númer eitt, tvö og þrú …
Lögmál Ayurveda eru aðeins vísbendingar á ferðalagi þínu til vaxandi útgeislunar – vísbendingar sem eru ætlaðar að hjálpa þér að fara “réttari” leiðir en ekki til að stjórna því hvernig þú lifir lífi þínu. Eins og lögmál eðlisfræðinnar sem ekki segja okkur hvernig við eigum að lifa en skilgreina aðeins náttúrulögmál efnisins sem við vinnum með, að þá útskýra þessi fornu vísindi lífsins náttúrulögmálum hugarlíkamans og veita uppástungur um hvernig hægt er að lifa lífinu með meiri frið og hamingju.

Þráhyggja og stífleiki á sér ekkert pláss innan hugmyndafræði Ayurveda fræðanna sem eru í eðli sér vísindi þess “að fylgja straumnum”. Markmið Ayurveda er innra og ytra jafnvægi en slíkt verður ekki áunnið með sífelldum bönnum og reglum. Sífelldur breytileiki lífsins krefst auðvitað ákveðins sveigjanleika og er ayurvedískur lífsstíll aldrei markmiðið heldur ferðalagið sjálft.

Í lífsstílsráðgjöfinni förum við yfir vedíska stjörnukortið þitt, skoðum núverandi áhrifavalda, skoðum heilsu þína; í gegnum púls, viðtal og líkamsskoðun. Í lokinn uppáskrifa ég þér lífsstílsáætlun sem hjálpar þér að auka hamingju, sátt og afköst í lífi þínu.
Lífsstílsráðgjöf tekur ca. 2 tíma og kostar 19900.-