Náttúruleg húðhirða – Mikilvægur þáttur heildræns heilbrigðis

Náttúruleg húðhirða
HVAÐ ER NÁTTÚRULEGT?

Hvað er okkur raunverulega heilsusamlegt?
Í dag eru til þúsundir húðvara og fegurðarlyfja um allan heim og í hverjum mánuði er um allan heim markaðssettar nýjar “enn betri” vörur sem neytendum býðst að velja sér. Í dag hafa neytendur ekki bara meira um að velja en nokkru sinni fyrr en eru að sama skapi ringlaðari um það hvað er í raun gott fyrir líkama og húð. Villandi staðlar og reglur hvað varðar merkingar á vörum sem eru merktar “náttúrulegar” eru ekki nægar til vernda hinn saklausa neytanda sem hefur ekki þekkinguna né reynsluna tilað álykta hvað regluleg notkun “náttúrulegra” vara hafa á heilsu og húð. Ef við ættum að trúa framleiðendum húðvara í dag þá eru allar þessar vörur góðar fyrir alla og allar unnar úr einstökum efnum og “sakleysilegum” innihaldsefnum eins og “botanicals”, “biominerals”, “ensímum”, “extrakts” o.s.frv. Vissulega innihalda mikið af þessum húðvörum þessi náttúrulegu innihaldsefni en yfirleitt misferst þessum framleiðendum að taka fram að flest þeirra innihalda einnig umbreytt og/eða tilbúin efni eins og litarefni, rotvarnarefni, bindiefni eða ilmefni sem ekki fara aðeins inní húðina heldur blóðrásina líka og öll okkar viðkvæmu líkamskerfi. Sum þessara efna hafa misjákvæð áhrif sem staðlar neytendaráðs telja samt vera innan “ásættanlegra” marka. Ayurveda setur staðla sína langtum hærri en vestræn vísindi eða staðlar stjórnvalda, vegna þess að hugmyndir hennar um heilbrigði og hugtakið “náttúrulegt” er stærra og fágaðra en fyllilega er hægt að koma til skila. Ayurveda hefur einnig látið reyna á aðferðir og meðferðir sínar til þúsundir ára á “mannleg” tilraunadýr og getur því fullyrt langtíma áhrif allra sinna meðferða.

MATARTÍMI?

Ef þú getur ekki borðað það..
Ef einhver myndi bjóða þér máltíð sem væri elduð uppúr cetyl alkahóli, iodopropyl butylcarbamet, sodium dodecylbezenesulfonate, disodium EDTA, BHT, red dye #17, and yellow dye #10 myndirðu hætta á að borða hana? Margir (og líklega ert þú ein/n af þeim) “borða” þessi efni á hverjum degi þar sem þetta eru innihaldsefni mest notuðu húðvara á markaði í dag. Vissulega fáum við mest af næringu okkar í gegnum matarræði en það má ekki horfa fram hjá þeirri staðreynd að húðin meltir, innbirðir og hleypir inn í líkamann öllu sem á hana er sett. Í raun fara þessi efni “hættumeiri” leið inní líkamann þar sem þau fara ekki í gegnum meltinguna og brotin niður áður en þau komast til blóðrásarinnar heldur fara af fullum kraftinn í blóðrásina og læða sér því um alla vefi, hvort sem það er heila eða liði. Eins og öll efni sem við innbyrðum verða þessi efni hluti af þeirri hráefnablöndu sem líkaminn notar við að byggja nýjan vef, eða verða að eiturefni sem líkaminn svo geymir í hinum ýmsu vessum líkamans, fituvef eða lifur. Hugsaðu ávallt um það sem þú setur á líkamann sem mat. Og ef þú getur ekki borðað það sem þú berð á þig slepptu því þá frekar alveg.