Uppljómun eða “Hug” ljómun

Vedísk hugsun fókuserar mikið á hugtakið Moksha eða það sem íslenska hugtakið uppljómun væri best að nota til að lýsa. Enska orðið er “Liberation” en það þýðir einfaldlega frelsun, en frelsun frá hverju? Hugtakið bendir til þess að við þurfum að frelsast eða vera sleppt af einhverju sem heldur aftur af okkur. Það er að segja að við þurfum að taka beltin af okkur eða sleppa einhverju lausu, einhverju sem hefur náð tangarhaldi á okkur og heldur okkur föstum.

Að vera uppljómaður þýðir að maður hefur verið frelsaður undan viðjum stress og áhyggja. Uppljómaðir einstaklingar segja oft að þeir hafi lært raunverulega að njóta “venjulegsheita” allra hluta. Þó þeir haldist ábyrgir og lífsglaðir segja þeir hluti eins og “leyfðu Guði að ráða”, eða “það skiptir ekki máli”, “gleymdu því” eða “mér er alveg sama” eða svipuð hugtök sem benda til sáttar við þróun og örlög lífsins. Þeir taka þátt í lífinu en láta það aldrei pirra sig. Þeir eru ekki passífir þó sumar steríótýpur bendi til þess.

Sumir sem ég held að séu langt komnir í sálarþroska, eða jafnvel uppljómaðir, eru virkilega rólegt en orkumikið og glaðlegt fólk. Það vinnur mikið og sýnir lífinu dug sinn og opið hjarta en erfiðar samt aldrei. Dýrðlingar sýna sömu eiginleika og fólk mjög langt komið á sinni þroskabraut en þetta er einnig fáanlegt okkur “venjulega” fólkinu. Málið er nú bara það að þeir uppljómuðu láta ekki takmarkanir eða höftin í kringum sig fylla sig angist né leyfa því á nokkurn hátt hafa áhrif á sig. Ljósið lýsir inná við. Þeir hafa svo mikið ljós og trúa að umheimurinn styðji þá svo þeir hafa ekki áhyggjur. Þeir hugsa um alla möguleikana sem liggja í hverju augnabliki og vænta alltaf bjartra niðurstaða. Þetta getum við öll.