Örlagabók
Fyrir utan hinar sjö megin plánetur stjörnuspeki gegna hinir svokölluðu hnútar Tunglsins gríðarlega mikilvægu hlutverki innan vedískrar stjörnuspeki. Þetta eru í raun ekki plánetur sem slíkar heldur kallaðar skuggaplánetur og stjarnfræðilega tákna þær þann punkt þar sem Tunglið fer yfir feril Sólarinnar eða þar sem leiðir þeirra skarast.
Þetta eru þeir punktar þar sem sólmyrkvar eiga sér stað og hafa frá öræfum alda verið taldir gríðarlega mikilvægir af flestum fornum menningarheimum. Þeir eru því raunverulega táknrænir fyrir það þegar Sólar og Tungl öfl þessa heims skarast á, skapa togstreitu og strika út áhrif hvors annars. Rahu er norður hnúturinn og er sá punktur þar sem Tunglið sker í leið Sólar í norðri en Ketu sá syðri sem sker hann í suðri. Þetta eru afar viðkvæmir punktar sem gefa af sér víðtækar afleiðingar og eftirköst á sviði allra pláneta og á líf okkar þar af leiðandi. Flestir fornir andlegir menningarheimar sáu Rahu og Ketu sem snákaöfl og táknræna fyrir tímann sjálfan, hvor um sig fortíðina og framtíðina. Yfirleitt voru þeir álitnir mikil öfl sem mikilvægt var að skilja og nýta sér, svo að sönn þekking á eðli þeirra gæti leitt okkur til frelsunar frá einum mesta ógnvaldi allra tíma; tímans sjálfs.
Skv. vedískri goðafræði eru Rahu og Ketu tveir helmingar Svarbanu; drekans sem skorinn var í sundur af guðinu Brahma í upphafi sköpunarinnar. Sú færni þeirra til að “gleypa” bæði Sólina og Tunglið og orsaka myrkva gerir þá að mörgu leyti sterkari og megnugri en allar hinar pláneturnar. Í vedískum fræðum táknar sameining plánetu við annan hnútinn hálfgerð sólmyrkvaáhrif í korti og leiðir til þess að orka plánetunnar verði að einhverju leyti heft, ónýtt eða í besta falli frelsuð. Þar sem Sólmyrkvar eru punktar mikilla orkuumbreytinga geta þeir stýrt eða ýkt plánetu áhrifum til hvort tveggja góðs og ills. Vegna tengingar hnútanna við myrkva tákna þeir afbrigðileika í eðlilegri framvindu lífs okkar. Að fylgjast með myrkva er óvenjulegur atburður og það er sem flæði dags og nætur renni saman og náttúran tapi sinni venjulegu hrynjandi sem heldur jafnvægi á lífi okkar á jörðinni. Myrkvar eins og aðrir hlutir, eru breytingar frá því sem við væntum frá daglega lífinu og rútínunni sem við treystum á. Þannig hegða þeir sér í kortinu okkar og gegna því hlutverki að kippa okkur úr mynstri sem þeir telja ekki vera okkur til góða lengur. Þeir kenna okkur að taka engu sem sjálfsögðum hlut og leiða okkur í nýja átt þegar þess er þörf. Þess vegna eru þeir miklir örlagavaldar og í vedískum fræðum taldir segja okkur sögu fortíðar og framtíðar. Þeir segja frá þeim lærdómi sem við höfum lokið og einnig af framtíðinni eða þeim lærdómi sem við öðlumst í þessari jarðvist.
Áhrif þeirra í kortinu eru óviðráðanleg og af flestum taldin neikvæðustu áhrifin í kortinu því þeir loka á birtu og leiðarljós persónulegustu aflanna í kortinu þínu, Sólarorkuna og Tunglorkuna. Sólin er sjálfið og líkamlegi persónuleikinn en Tunglið er tilfinningarnar og hugareðlið. Þess vegna eru Rahu og Ketu taldir færa okkur meira af erfiðu karma en góðu. Þeir orsaka þann tíma í ífi okkar þar sem samansafn af erfiðu karma gerir vart við sig og geta í heimsmálum skapað gríðarlegar þjóðfélagslegar og náttúrulegar hamfarir ef þeir lenda á stöðum þar sem þeir geta haft slík áhrif. Þeim er oft líkt við erfiðustu pláneturnar, Rahu við Satúrnus en Ketu við Mars. Þó hafa drekahnútarnir dýpri, skyggnari og erfiðari orku en þessar plánetur tvær.
Þessari örlagabók er ætlað að hjálpa þér að skilja sjálfa/n þig í ljósi fortíðar þinnar og framtíðar. Hverjir eru örlagaþættirnir í kortinu þínu? Hvernig og hvenær munu þeir gera vart við sig og hvernig? “Hvernig” þáttinn er erfiðast að álykta þar sem Rahu og Ketu eru alltaf óviðráðanlegir, að öllu ófyrirsjáanlegir og afar fljótir að snúa þér upp og niður. Að vera meðvitaður um gang og hlutverk þeirra í kortinu okkar getur verið stór þáttur í að hjálpa okkur að undirbúa erfið áhrif þeirra en allir eiga sér tímabil þar sem kraftur þeirra gerir vart við sig.



