Fjóla Jensdóttir

Af hverju er umrót í samböndum fólks þessa dagana?
Kæru vinir, margir ykkar hafa líklega tekið eftir því á síðustu dögum og vikum hvað sambönd hafa í auknum mæli brotnað saman, fólk að lenda á ágreiningi og ósætti og fólk að skilja. Satúrnus er að renna inní vogina eftir ca. 2 og hálft ár í meyju merkinu og þetta er að fá fólk til að endurskoða sjálft sig í sambandi við maka eða elskhuga.

Í vog mun Satúrnus leita sér jafnvægis, heilinda og réttlætis. Við munum skoða færni okkar til að skuldbindingar af meiri einlægni. Færni okkar til að fara eftir “reglunum” í sambandinu verður nú mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Þetta er tími þar sem við skoðum okkar persónulegu takmörk innan sambandsins. Takmarkanirnar sem sambandið hefur verið að skorða okkur innan verða meira áberandi en nokkru sinni, eins hræðsla okkar við að missa maka okkar frá okkur, eða hræðslan við höfnun, og svo hvernig þessi hræðsla getur verið að takmarka okkar eigið persónulega frelsi.

Ef við höfum verið að gefa meira en að þyggja, eða að þyggja meira en að gefa, í núverandi sambandi, mun Satúrnus í merki vogarinnar, benda á hrikalega áberandi hátt á gallana í slíku fyrirkomulagi.  Þetta er tími þar sem fólk í sambandi þarf alvarlega að skoða sína ábyrgð í sambandinu og að standa undir sínu verður sérlega mikilvægt. Ef við erum óánægð með það sem maki okkar er að gefa af sér í sambandinu verður það afar áberandi og kannski bara í höfðinu á okkur sjálfum. Satúrnus skapar aukna þörf fyrir þá eiginlega sem merkið sem hann býr í inniheldur, en í vog, mun hann skapa sterka þörf fyrir jafnvægi og samhljóm, en það mun taka okkur tíma að komast á leiðarenda. Satúrnus vinnur alltaf hægt og bítandi og lætur okkur bíða eftir sér. Fyrir okkur óþolinmóðustu verður þetta leiðinlegt og erfitt ferli og snertir á okkar viðkvæmustu punktum, þar sem samböndin í lífi okkar, eiga það til að vera undirstaðan og stólpinn sem við treystum á.  Í upphafi munu margir eiga erfitt með að málamiðla, og þar sem Satúrnus fær okkur til að þrá stjórn og stöðugleika gætum við fallið í þá gryfju að reyna að stjórna óhóflega. Öll skulum við reyna að forðast stjórnun þar sem markmið þessa lærdóms er að læra málamiðlun, andstæðu átaka og stjórnar, þ.e. að málamiðla og vinna hlutina í þolinmæði. Sannleikurinn er auðvitað sá að við höfum aldrei fulla stjórn á neinum nema okkur sjálfum.

Í dag eiga margir erfitt með að skilgreina sambönd og finna viðeigandi mörk fyrir báða aðilla. Hvar sem Satúrnus kemur heimtar hann skilgreiningu, strúktúr, ábyrgð og mörk, en áhrif Satúrnusar eru líkleg til að fá margan til að upplifa sig fangaðan, takmarkaðan eða fastan. Á þessu ferðalagi Satúrnusar um vogina, verðum við að skilgreina markmið okkar og þarfir í sambandi, eða sambandið sjálft. Margir munu nú vissulega í kjölfarið upplifa mikla þörf til að skuldbinda sig í sambandi en áður en við gerum það verðum við að vita hvað það er sem við raunverlega viljum áður en lengra er farið. Þetta er nú tíminn til að skoða vandlega hvað það er sem við viljum, þá sjáum við einnig hvað það er sem við viljum ekki, láta það flakka sem við viljum ekki og treysta því að við getum fundið það sem okkur hentar og leyfir okkur að blómstra í sambandi. Við þurfum að finna hvar við stöndum og föllum í sambandi við annað fólk, hvort sem við erum í föstu sambandi í augnablikinu eða ekki. Ég óska ykkur góðs gengis, kæru vinir.

Vedíska spáin 3-10. júní 2011
Spár fyrir hvert “rísanda merki” (ekki “Sólarmerki”, þ.e. það sem þú skilgreinir þig í skv. afmælisdegi):

Hrútur: Enn liggur yfir þér mikil orka og skipulagningarkraftur. Eignamál eru líkleg til að fara fram á við. Forrysta er hlutverkið þitt að sinni en gerðu það sem þú getur til að forðast ágreining og rifrildi. Valdabarátta vegna status og stöðu gæti gert vart við sig. Innkoma er ekki eins þú vilt hafa hana til miðs nóvember. Einbeittu á andleg mál og ráðgjöf næstu 12 mánuðina.

Naut: Taktu forrystu og þú getur vænst vaxandi velgengni. Blessunarleg tengsl hafa skapast um fyrsta húsið í kortinu þínu og leyfa því öllu þínum persónulegustu málum að blómstra í hæstu hæðir. Þetta snertir á líkama, heilsu, stöðu og viðurkenningu. Álag síðustu vikna mun renna frá þér. Skapaðu tengsl á milli menntunar og frama til miðs nóvember. Andlegir endurhæfingarkraftar verða afar miklir næstu 12 mánuði.

Tvíburi: Innkoma og tækifæri til afla auka innkomu er til staðar. Haltu vel utan um börnin þín, þau gætu verið að afsala sér einhverju eða að læra eitthvað erfitt. Yfirvald gæti komið í veg fyrir viðskiptalega velgengni. Haltu sérlega vel utan um heilsuna og jafnvægi í lífsstíl til miðs júní. Tíminn núna til miðs nóvember er að hugsa um heimilið og meðlimi heimilisins. Gróða er að finna í gegnum samböndin í lífi þínu næstu 12 mánuðina.

Krabbi: Viðleitni og erfiði þín skila loksins miklum árangri og frami er vís til að fara í réttan farveg. Sýndu aukna aðgætni til að forðast skuldir eða slys á vinnustað á næstu 12 mánuðum. Foreldrar, eignaskipti eða farartæki færa gróða til júní loka. Sýndu persónulegustu viðskiptum þínum þolinmæði til miðs nóvember.

Ljón: Tími til að gefa sig að frama og vinnu. Þú munt finna þig inná vettvang skrifta, viðskipta eða samskipta og ef þú lætur það eftir þér mun staða þín og innkoma mun aukast í kjölfarið, núna og næstu 2 vikur. Næstu tólf mánuðir munu stuðla að vaxandi velgengni í tengslum við börnin þín og fjárfestingar. Rómantík mun einnig

Meyja: Heilsan hefur verið að hrjá þig síðustu mánuði en þetta hefur aðeins veitt þér aukin áhuga á sjálfsrækt, yngingu, líkamsrækt og endurhæfingu. Meyjan hefur nú alltaf áhuga á fullkomnun og betrun en nú hefur hún farið alla leið í að taka málin í sínar hendur. Heilsan mun bætast og atvinnumál taka minni toll strax um miðjan nóvembe.r Sýndu útgjöldum og aðskilnaði þolinmæði. Fyrir marga meyjuna gæti verið hjónaband framundan eða mögulega arfur.

Vog: Einbeittu á hjónalíf og samvinnuverkefni á næstu vikum. Reyndu þó að slaka vel á og halda vel utan um orkuna þína. Það verður nóg um umbreytingar og andstreymi í júní og þegar svo er er gott að fara vel inná við og skoða dýpri þætti veru sinnar. Börnin þín munu þurfa á þér að halda og rómantík mun reynast þér uppátækjasöm, nú og fram í nóvember. Á næstu tólf mánuðum verða sameiginleg verkefni verða mikilvæg og líklega gróðrasöm.

Sporðdreki: Erfiðleikar síðustu vikna renna frá þér. Skapaðu skemmtileg tengsl á milli fólksins í lífi þínu og viðskipta. Það er gróða eða tækifæri að finna í gegnum maka þinn. Blessanir þessa næstu vikna liggja í atvinnumálum og vaxandi tækifærum til innkomu. Líkamlegur styrkur fer uppá við og þú finnur að líkami þinn er sterkari en nokkru sinni fyrr.

Bogmaður: Mikil gleði er í kringum börn, leiki, fjárfestingar og sköpun. Hugsun þín er rökvís og keppnisskapið rennur um æðar þér. Farðu gætilega að hvers kyns yfirvaldi og sýndu vinum þolinmæði til júní loka. Þú getur svo vænst mikilla tækiværa á vettvangi sköpunar, menntunar og fjárfestinga á næstu 12 mánuðum.

Steingeit: Gott væri að einbeita sér að eignamálum, málefnum jarðarinnar og heimilisins í viku í viðbót. Skapast munu nú tengsl á milli atvinnumála og málefni barna, sköpunar eða menntunar. Íhugaðu endurhæfingu, eða andlegt ferðalag til miðs nóvember. Aðskilnaður eða flutningur er líklegur á næstu 12 mánuðum.

Vatnsberi: Hugsjónakenndi vatnsberinn hefur verið óvenju mikið í skýjunum á síðustu mánuðum. Einbeittu á eignamál og farartæki en sýndu andstreymi þolinmæði. Mikil lánsemi og hamingja er vís í júní og miklar jákvæðar breytingar eftir miðjan nóvember. Sjálfsstæð ráðgjöf eða kennsla mun skila gróða og vexti á næstu 12 mánuðum.

Fiskar: Einbeittu á að bæta stöðu þína og veraldlegt öryggi – það mun skila sér margfalt. Fjölskyldulífið blómstrar og þú hefur óvenjulega mikla þörf fyrir tjáningu og áheyrn fólksins í kringum þig. Erfiðleikar síðustu vikna fara að renna frá þér. Maki er líklegur til að gerast sjálfsstæðari í vinnu og einhver aðskilnaður eða ágreiningur er yfirvofandi ykkar á milli. Mikil velgengni er þó vís á næstu 12 mánuðum.

Lifið heil og sæl og njótið lífsins!

kærar stjörnukveðjur

Fjóla Jensdóttir

Vedíska spáin fyrir 23 – 30. Maí 2011
Spár fyrir hvert “rísanda merki” (ekki “Sólarmerki”, þ.e. það sem þú skilgreinir þig í skv. afmælisdegi):

Hrútur: Farðu gætilega og sýndu þolinmæði. Möguleiki er á auknum útgjöldum eða ágreiningi hjá bæði þér og maka. Gættu þess að halda jákvæðu hugarfari. Velgengni er að fá í gegnum börn, sjálfstæð skapandi verkefni og fjárfestingar. Taktu forrystu og sýndu áræðni eins og þér einum er lagið kæri hrútur. Sýndu innkomu og félagslífi þolinmæði út sumarið en vænstu þó guðlegrar lánsemi og stuðnings næsta árið.

Naut: Áhrifin í nautskortinu eru nokkuð erfið þessa dagana, heilsufarsleg ójafnvægi eða almennt andstreymi í kringum hugsun, menntun og rómantík. Einbeittu á eignamál, faratæki og heimilislíf. Fasteignamál eru í blóma og nú fara hjólin að snúast. Hlutirnir eru furðulegir í bili en hafðu í huga kæra naut að mikill léttir verður um miðjan júní.

Tvíburi: Innkoma er vís í gegnum foreldra, eignir, farartækjaskipti eða fjárfestingar. Útgjöld koma þó í fylgd yfirvalds og hvers kyns frumkvöðlastarfssemi til miðjs júní mánaðar. Fyrir suma tvíburana er hjónaband eða alvarlegt samband við sjóndeildarhringinn og jafnframt mikil lánsemi í kringum hvers kyns viðskiptaleg sambönd.

Krabbi: Enn liggur gríðarlegur kraftur og jafnvel átök á vettvangi atvinnu og orðstýrs – þú munt finna fyrir miklum metnaði, krafti og meðbyr til að fara uppá við í metorðastiganum. Vertu skapandi með heilun, sköpun eða hið kvenlega, en skriftir, viðskipti og samskipti munu einnig gefa góða raun. Sýndu andstreymi þolinmæði til miðs nóvember.

Ljón: Áhugi fyrir frama og orðstýr verður í uppsveiflu til miðs júní og nýttu þér meðbyrinn sem nú fylgir þér hvað þessi mál varðar. Þú getur einnig vænst mikillar lánsemi í tengslum við status, fjölskyldulíf og viðskipti á næstu tveimur vikum. Bræður, synir og vinir eru í blóma og veita þér endalausan stuðning ef á er þörf.

Meyja: Enn eru þessir umbreytingarkraftar að verki og beindu því athygli þinni að þessari undirbúningsvinnu sem þú veist að er komin af stað. Þetta eru líklega að einhverju leyti sálrænar og félagslegar breytingar en þú ert líkleg/ur til að vera að losa þig við gamla og úr sér gengna ósiði. Stutt ferðalög er möguleiki til miðs júní en haltu áfram að veita þjónustu eins og þú hefur að gera.

Vog: Rómantíska vogin fær loksins uppskeruna sína í þeirri mynd sem hún elskar mest – fallegum og ljúfum samböndum. Júpiter rennur um sjöunda húsið í korti vogarinnar en sjöunda húsið svarar til vogarinnar, sem er sjöunda merki dýrahringsins. Góðir og blessunarlegri tímar framundan, en sérstaklega hvað varðar alla samvinnu, fólkið í lífi þínu, maka, ferðalög, rómantík og kynlíf .. og þetta mun allt blómstra næsta árið A.M.K.

Sporðdreki: Einbeittu á samvinnu á vinnustað en farðu þér þó gætilega á næstunni, möguleiki er á auknum skuldum, aðskilnaði og heilsuleysi. Komandi mánuðir bera með sér harða og mikla vinnu en mikla uppskeru erfiðis. Sjálfstæði og persónulegur kraftur verður nú vaxandi og mögulega meiri en nokkru sinni fyrr.

Bogmaður: Einbeittu á börnin þín fjárfestingar og skapandi verkefni. Farðu gætilega að og í samskiptum við yfirvald og stjórnvöld til miðs júní. Enn er þörf á dugnaði og þjónustu hjá bogmanni og mun vera til miðs nóvember. Nýleg breyting á stöðu Júpiter færir þér miklar blessanir, uppskeru á góðu fyrralífs karma og jákvæð tækifæri til fjárfestinga næstu 12 mánuðina.

Steingeit: Einbeittu á eignamál, farartæki og heimilislíf til enda mánaðarins. Framvinda í fjárfestingarmálum verður lítil og meðbyr lítill og segðu börnunum þínum að fara sérlega gætilega til miðs júní. Best væri núna og á næstu mánuðum að sökkva sér í andlega rækt og þar sem mikil gróska er á því sviði í lífi þínu. Flutningur, óvæntur kostnaður eða aðskilnaður er líklegur næstu 12 mánuði.

Vatnsberi: Viðskipti, samskipti og hvers kyns vinna með hendur verður fókusinn á næstunni en hafðu í huga að andstreymi fylgir þessu til maí loka. Ef þú hefur verið að íhuga hvers kyns samvinnu eða sameiginleg verkefni er þetta frábær tími til slíkra hluta og þá sérstaklega í tengslum við farartæki, fasteignir og heimilið. Umbreytingar, rannsóknir og leyndardómsfull þekking halda áfram að spila stórt hlutverk til miðs nóvember. Gróða er að fá í gegnum útgáfu, kennslu og ráðgjöf næstu 12 mánuði.

Fiskur: Fjölskyldan og heimilið kallar á athygli þína og þörf er á að skapa öryggi og þá sérstaklega í tengslum við eignir og innkomu. Sýndu andstreymi í samböndum þolinmæði og forðastu að tengjast öðru fólki fjárhagslega á hvers kyns máta. Annars munu næstu 12 mánuðir færa þér uppsveiflu í frama og orðstýr.

Lifið heil og sæl og njótið lífsins!

kærar stjörnukveðjur

Fjóla Jensdóttir

Vedíska vikulega spáin 3.-10. mars 2011
Spár fyrir hvert “rísanda merki” (ekki “Sólarmerki”, þ.e. það sem þú skilgreinir þig í skv. afmælisdegi):

Kæru meðlimir, afsakið seinkunina sem hefur orðið á spánni síðustu vikur – vonandi hefur það ekki orsakað óþægindi.

Hrútur:

Einbeittu á innkomu, félagslíf og andleg mál. Gróða er nú að fá í gegnum stjórnsýslu, yfirvald, börnin þín, skriftir, fjárfestingar eða menntun, en best væri að tengja eitthvað þessara mála við lög, heilsu eða fjármál. Sameiginleg verkefni blómstra í mars. Hamingja ríkir á vinnustað og sköpun mun hjálpa við orðstýr og viðurkenningu.

Naut:

Tengdu frama við eignamál, eignir og yfirvald. Einbeittu á skriftir, viðskipti og samskipti á vinnustað. Tengdu þessi mál svo við börn, menntun og fjárfestingar. Íhugaðu rannsóknir eða andleg mál og þá sérstaklega í tengslum við heilsu eða fjármál. Gróða er að fá í gegnum kennslu og ráðgjöf.

Tvíburi:

Einbeittu á ferðalög í andlegum tilgangi, skriftir, viðskipti eða tengslamyndun við yfirvald. Íhugaðu rannsóknir og þá í tengslum við börnin þín, menntun, skemmtun eða fjárfestingar. Andstreymi gæti gert vart við sig á þessum sömu vettvöngum. Færðu aukna samvinnu og upplýsingaflæði á vinnustað til apríl loka.

Krabbi:

Tengdu rannsóknir, tungumál og andlega þekkingu við frama. Einbeittu á eignamál og fjölskyldulíf í sambland við samvinnu, kennslu, útgáfu eða kennslu. Hjálpaðu þeim öldruðu eða fátæku til nóvember loka. Það verða áfram sveiflur í atvinnumálum og útgjöldin virðast ekki ætla láta þig í friði, en á þessu léttir loksins í byrjun maí.

Ljón:

Samvinna er lykill að velgengni í bili, bæði fjármunum og hamingju. Maki þinn mun líklega öðlast viðurkeninngu fyrir verk sín á samskipta- eða viðskiptasviði. Ef þú ert í persónulegum viðskiptum, þ.e. rekur eigið fyrirtæki, væri gott að vera sérlega vakandi fyrir öllum smáatriðum á næstunni. Nú er tíminn til að spila eftir reglunum og farðu troðnu slóðina að sinni – róttæklingaháttur mun aðeins færa þér vandræði á næstunni.

Meyja:

Elsku meyja, einbeittu á heilsuna og þá sérstaklega andlega heilsu, því flest meyjan berst í böggunum þessa dagana. Ef þig verkjar í hjartastað vegna aðstæðna móður eða heima við hafðu í huga að þetta fer að líða hjá, eða ca. 3 maí. Ef þú getur fundið þér góða rósasultu, gerðu þér heita mjólk á kvöldin með rósavatni eða rósasultu því ekkert nærir hjartað eins og rósin. Eignamál, sameiginleg verkefni og viðskiptaleg tengsl munu blómstra, en farðu nú eftir bókinni, reyndu að sýna dugnað og veittu góða þjónustu, hvort sem það er heima við eða í vinnu.

Vog:

Einbeittu á eignamál, farartæki, hamingju og heimilislífið. Lappaðu uppá húsnæðið, íhugaðu nýjan bíl og hafðu í huga að þetta er mánuður hamingju, nautna og gleði í lífi rómantísku vogarinnar. Gróða er að fá í gegnum börnin þín, menntun, rómantík og sjálfsstæð skapandi verkefni. Hafðu í huga að best væri þér að leysa um ágreining og viðskiptatengdar skuldir fyrir maí byrjun.

Sporðdreki:

Sporðdrekinn berst fyrir ró og hamingju ólíkt blessunarsömu voginni í mars mánuði. Þetta er tíminn til að einbeita sér að fasteignamálum, eignamálum, farartækjum og reyndu nú að finna leið til að tala um tilfinningar þínar við manneskju sem getur hjálpað og veitt þér stuðning. Þú getur vænst vaxandi persónulegrar velgengni í tengslum við menntamál og fjárfestingar til apríl loka. Sýndu tímabundnum skuldaböggum þolinmæði.

Bogmaður:

Þú getur vænst lánsemi en einbeittu á frumkvöðlavinnu í tengslum við frama, skriftir eða viðskipti. Gróða er að fá í gegnum hvers kyns frumkvæði, hugrekki, atorkusemi og dugnað á næstunni. Dugnaður og framtakssemi skilar sér nú margfalt. Fjölskyldan blómstrar í mars og innkoma fer uppá við. Einbeittu á eignamál og heimilislíf til apríl loka og sýndu dugnað á árinu 2011.

Steingeit:

Einbeittu þér að fjölskyldulífi, ágreiningur gæti gert vart við sig í fjölskyldu, jafnvel slys og áföll en þú munt sjálf/ur stuðla að jafnvægi hvar sem þú ferð. Möguleiki verður á óvæntum gróða og þá líklega fjárhagslegum. Hækkandi sól í atvinnumálum og vaxandi viðurkenning. Útgáfa og ráðgjöf reyndist þér vel til apríl loka.

Vatnsberi:

Mikið áhrifavald fylgir vatnsberanum þessa dagana, gott væri að tengja saman sambönd eða hvers kyns samvinnu við ný viðskipti eða frumkvöðlavinnu. Vertu hugrakkur/rökk og taktu forrystuna. Einbeittu á skriftir, viðskipti, samskipti og hvers kyns samskiptatengd verkefni. Í mars væri þér gott að íhuga einveru, löng ferðalög og verkefni sem tengja þig erlendis til.

Fiskar:

Möguleiki er á löngum ferðalögum og jafnvel rómantík og framtíðar tengslum á erlendum vettvangi. Maki gæti séð aukin útgjöld á næstunni eða neyðst til að fara erlendis til. Einbeittu á fjármál og heilsuna. Gróða verður nú helst að finna í gegnum munað, rómantík, listir og kvenfólk á næstu vikum.

Lifið heil og sæl og njótið lífsins!

kærar stjörnukveðjur

Fjóla Jensdóttir