Símatími 907 3333
Ráðgjafalína Fjólu hefur verið niðri en mun opnast á ný mánudaginn 6. febrúar. Til að byrja með mun línan vera opin á mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagskvöldum frá 8.15 – 10.15!!
Hafðu í huga að þegar þú hringir inn að hafa allar þínar fæðingarupplýsingar á reiðum höndum, þ.e. fæðingardag, tíma (helst uppá 5-10 mín) og fæðingarstaðsetningu (borg eða bæ). Þetta sparar okkur tíma og leyfir mér að snúa mér beint að efninu. Ef þú hefur hug á að spyrja um fleiri en þig sjálfa/n hafðu þá tíma þeirra aðilla einnig við hendina.
Hvaða möguleika býður símatíminn uppá?
Þú getur spurt um nánast hvaðeina sem þér dettur í hug. Gott er að skyggnast inní fortíð eða framtíð, fá skýringu á atburðarrás lífs þíns, fá leiðsögn um bestu mögulegu framvindu í ljósi lærdóms sálarinnar og hæfileika þinna sem einstaklings. Fáðu að skyggnast inní sálartýpu eða karakter þinna nánustu, og skýringu á samskiptaörðugleikum, átökum eða áföllum. Engar spurningar eru slæmar spurningar!!


