Testimonials
Þegar ég byrjaði að spá í þessum málum með Fjólu þá áttaði ég mig fljótt á því, að ég ætti héðan í frá pínu erfitt að komast í gegnum lífið án þess að sjá “kortin” hjá því fólki sem kemur inn í líf mitt. Ég hef fengið kort fyrir mig og börnin mín, því mæli ég með fyrir allar mæður. Það hefur hjálpað mér mikið til að skilja þau betur og vera þeim betri móðir. Ég hef líka fengið kort fyrir vini og vandamenn og það hefur verið dásamlegt að sjá hversu ólík kortin eru og hversu mjög nákvæm þau hafa verið. Mér hefur fundist gott að leita í þau þegar eitthvað veldur mér hugarangri og oftar en ekki hef ég sé lausn eftir að hafa lesið þau.
Það hefur aldrei brugðist að þegar ég hef gefið kortin að gjöf að þá hef ég fengið hringingu einhverju seinna þar sem er sérstaklega þakkað fyrir þau. Þetta er ein fallegasta gjöf sem hægt er að gefa og algjörlega tímalaus.
Ég veit að Fjóla vinnur kortin af mikilli nákvæmni og ég get auðveldlega sagt að þau eru hverrar krónu virði.
- Elma Karen
“Frábær lesning!!
Ótrúlega nákvæm spá sem allir ættu að eiga upp í hillu. Einstök gjöf fyrir vini og vandamenn”
- Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ég uppmana ALLA að kaupa bókina hennar Fjólu. Ég hef ALDREI hitt hana né talað við og bý erlendis. Ég fékk sjokk þegar ég las hana ALLT PASSAÐI PERFEKT !!!!!!!!!!!
Dóttir mín las hana og var með “gæsahúð” allan tímann. Nú ætlar hún einnig að panta bók um sig. Takk elsku Fjóla mín VEL UNNIÐ OG BÓKIN ÞESS VIRÐI !
Kærar kveðjur
Vilhelmína í Svíþjóð
- Vilhelmína Ragnarsdóttir
Það kom mér verulega á óvart hversu nákvæmlega Fjóla gat myndað þýðingu á þeim atburðum sem voru í gangi í mínu lífi fyrir uþb ári síðan. Ég hafði vitað af hennar vinnu í nokkuð langan tíma en hefði aldrei trúað að kortið sem hún útbjó fyrir mig hefði getað lýst mér eins vel og það gerði. Ég mæli hiklaust með henni við alla sem kjósa að fá nýtt sjónarhorn á tilveruna, og eins þá sem vilja auka skilning sinn á því hvernig stjörnuafstöður okkar geta mótað okkur persónulega.
- Unnar Karlsson
Ég hef reynslu af korti frá Gunnlaugi og finnst mér kortið frá þér gefa mér meiri dýpt í mig sjálfa. Yndislegt hvað og hvernig þú setur það upp mér til einföldunar að sjá og skilja mig. Ég heyrði af þessum kortum frá góðri vinkonu og heillaðist strax af. Mér finnst skemmtileg lesning þetta er í 3 sinn sem ég líð yfir síðurnar og alltaf jafn ánægð hvernig uppsetninginn er fyrir mig og minn skilning. Ég mæli með persónulegri bók. Með þökk fyrir góða bók. Bestu kveðjur
- Erla Bragadóttir


