Morgunblaðið – Miðvikudagur 29. apríl 2009

Kúamjólkin – Hollustuvara eða „meinvaldur“?
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2009

ÞAÐ er ekki langt síðan ég fór í heilsubúð að leita mér að íslenskri lífrænni mjólk. Ég byrjaði á því að fara að kæliskápnum og þegar ég sá hana ekki þar fór ég að hillunni þar sem hinar ýmsu mjólkurtegundir voru til sölu en fann hins vegar enga lífræna mjólk, og ekki einu sinni þessa frábæru íslensku afurð sem hefur verið nú á markaðnum í nokkur ár. Ég ákvað því að leita mér ráða og sneri mér til ungrar stúlku. Þegar ég spurði hana svo hvort þau væru ekki að selja „venjulega“ kúamjólk þá varð henni augljóslega misboðið og svaraði með votti af hroka að þetta væri lífræn búð sem eingöngu seldi heilsuvörur. Ég sagði henni þá að til væri íslensk lífræn mjólk og hvort þeir álitu ekki íslensku mjólkina okkar vera hollustuvöru sem erindi ætti á hillur heilsubúða.

Án þess að rýna frekar í það mál þá var ég hissa að heyra þetta og taldi að afgreiðslufólk heilsubúða væri vel að sér í heilsu og næringu. Ég verð hins vegar að viðurkenna að síðan ég lauk við nám mitt í ayurvedískum lækningum hef ég hitt margt fólk sem telur sig sérfræðinga á sviði heilsu og er óhrætt við að fullyrða um hina og þessa hluti. Ég hef einnig heyrt margsinnis til afgreiðslufólks heilsubúða fullyrða hinar ýmsu „staðreyndir“ sem mér finnst alltaf varhugavert þegar um er að ræða jafn órannsakað svið og heilsumál og bætiefni. Raunin er sú að í dag virðist allt sem er nýtt af nálinni, framandi, helst frá myrkviðum Amazonskóganna, vera lykillinn að fullkominni heilsu, en allt sem undir nefjum okkar liggur óþverri og einhverra hluta vegna „of gott til að vera satt“.

Ástæðan fyrir því að ég hef afráðið að setjast niður og skrifa nokkrar línur til íslenskra heilsuunnenda er að mér finnst fólk hafa gengið svo langt í hinum ýmsu öfgum og kjánaskap í neysluvenjum sínum. Síðan ég kom heim úr námi í náttúrulækningunum ayurveda, hef ég sífellt orðið vör við hinar ýmsu ranghugmyndir sem virðast hrjá landann og sú stærsta og sorglegasta er þessi hugmynd um að gamla góða kúamjólkin sé okkur slæm, hreinlega óholl og þá sérstaklega nýmjólkin. Það er orðið ótrúlega algengt að fólk sé sannfært um að það hafi óþol fyrir mjólk og hugmyndin sem virðist gegnumgangandi er hreinlega sú að mjólk sé óholl og eigi varla erindi lengur. Hins vegar er þetta vaxandi mjólkuróþol tiltölulega nýtt af nálinni og virðist nú hrjá annan hvern mann en hér áður fyrr gátu allir drukkið mjólkina sína í öll mál án nokkurra vandræða. Enginn hefur látið sér detta í hug að kannski sé það meltingin sem farin er á skjön eftir að hillur matvælaverslana fylltust af vörum fullum af aukefnum, litarefnum, fylliefnum, eða jafnvel skaðlegum plastefnum (úr umbúðunum). Í dag eru ekki enn til nægar upplýsingar um þau áhrif sem þessi efni hafa á meltingu og þ.a.l. önnur líkamskerfi. Lífrænar vörur hafa mikið verið rannsakaðar á síðustu árum og raunin er sú að þær eru hærri í vítamínum og steinefnum en samsvarandi ólífræn vara og oft er þessi munur gríðarlegur, 50% og meiri. Af öllum þeim lífrænu vörum sem rannsakaðar hafa verið er lífræna mjólkin að koma best út hvað næringarbúskap varðar. Sem sérfræðingur á sviði heilsu get ég sagt ykkur að íslenska lífræna mjólkin sem ég hef hingað til aðeins séð í nokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu, er það besta sem þið getið í ykkur sjálf og börnin ykkar látið.

Samkvæmt hinum fornu ayurvedísku fræðum (yogafræðunum) er mjólk ein af hinum 5 fullkomnu fæðutegundum og hér áður fyrr talin kóngamatur. Hins vegar get ég nánast fullyrt að melting fólks er ekki eins og hún var fyrir áratug og hvað þá fyrir nokkrum áratugum og þetta vandamál sem fólk upplifir í tengslum við lífrænar mjólkurvörur er yfirleitt tengt lélegri magaflóru og veikburða ónæmiskerfi (og á það engar rætur að rekja til mjólkurdrykkju). Ef þú ert sannfærð/ur um að þú sért með óþol fyrir þessum vörum þá hvet ég þig til að t.d. sjóða mjólkina, bæta hana með meltingarstyrkjandi jurtum eða kryddum (til að aðstoða greinilega veikburða meltinguna) og umfram allt að drekka aldrei mjólkina ískalda þar sem það gerir hana afar tormelta. Mjólkin er vissulega þung í maga enda tilvalin til að róa óróleika og svefnörðugleika og það er þessi yndislegi þungi sem orsakar eitthvað af þessum vandamálum. Ég hvet landann til að taka þeim sem predika um skaðsemi mjólkur varlega og endurskoða mál sitt og prófa sig áfram. Ég persónulega hef litla trú á þessari miklu vinnslu mjólkurafurða og tel unnar mjólkurvörur vera óhollar, meira að segja undanrenna, þar sem hún hefur verið svipt lífi sínu og öllum fituleysanlegu næringarefnunum sem eru okkur nauðsynleg. Unnar mjólkurvörur eru ekki lengur mjólkurvörur eins og náttúran ætlaði okkur að innbyrða þær. Ég hvet þig til að skoða þig um og leita í næstu búð sem selur lífræna mjólk og prófa þessa dásamlegu matvöru sem er sú besta sem þú getur í þig látið.