Stjörnuspekingurinn Fjóla Jensdóttir á Bleikt.is 30/11/2010

Fjóla Jensdóttir

Fjóla er orðin allþekkt sem hálærður stjörnuspekingur og mun pósta vikulegri stjörnuspá á forsíðu bleikt.is. Hún er allnákvæm og munu lesendur geta póstað stjörnuspánni á Facebooksíðuna sína. Við hlökkum sko til! :)

Fjóla B. Jensdóttir (www.fjolajensdottir.is) er vedískur ráðgjafi sem útskrifaðist með mastersgráðu frá Maharishi University of Management árið 2006. Maharishi University of management (www.mum.edu) er bandarískur skóli með indversku ívafi, staðsettur innan kornakra Iowafylkis í miðju Bandaríkjanna.

Þetta er skóli stofnaður af hinum mikla frumkvöðli Mahrishi Mahesh yogi sem er meðal annars stofnandi TM íhugunartækninnar. Maharishi hefur staðið fyrir því brautryðjendaverki að kanna áhrif íhugunar og hugleiðslu á lífsgæði og vellíðan fólks og er TM (transcendental meditation) mest rannsakaða hugleiðslutækni heims. Fjóla varði 6 árum í Iowa við nám sitt í yoga og sjálfsskoðun, tók B.A. gráðu til Vedískra Náttúrulækninga (Ayurveda/Vísindi lífsins) og stjörnuspeki (Jyotish/Vísindi ljóssins) og útskrifaðist með mastersgráðu 2006. Ári seinna hóf hún umsjón með vedískum dálki fyrir fyrir tímaritið Hann og Hún með frábærum viðtökum. Nýlega stofnaði hún fyritækið Græna Blómið þar sem hún veitir símaráðgjöf í gegnum Jyotisha og/eða Ayurveda læknisfræðina. Græna blómið er einnig táknmynd (logo) fyrirtækisins en græni liturinn er táknrænn fyrir heilunarmátt, heiðarleika og hreinleika vedísku fræðanna.

Vedísk stjörnuspeki öðru nafni Jyotisha eru ein elstu vísindi og hugmyndafræði mannkyns en hún á uppruna sinn að rekja í vedanna (vedísku ritanna) en þau elstu eru talin eiga rætur frá því fyrir meira en 6000 árum. Veda ritnin bera vott um menningararfleifð ríka af listum, heimspeki, trú og vísindum. Jyotisha kemur fyrst við sögu í Rig Veda og seinna í klassískum indverskum ritum eins og Ramayana, Mahabharata og Bhagavad Gita. Jyotisha er talin vera ein mikilvægasta eining Vedanna en yoga og Ayurveda eiga t.d. einnig uppruna sinn í Vedunum. Um er að ræða þúsundir hefta heilagra ritninga, ritaðar af fornum vitringum þess helga tíma þegar öll viska heimssins var í miklum vexti, á tíma hreinleikans, eða sat yuga, þegar viska spratt fram á sama tíma um allan heim. Einu raunverulegu ritnin sem varðveist hafa frá þessum tíma eru Veda-ritin. Vitringarnir sem lifðu í vitund ljóssins, sáu með innsæi sínu visku sem gerði þeim kleift að skynja líf handan tíma og rúms, handan fortíðar og framtíðar. Í þessu fíngerða vitundarástandi, fundu þeir hvernig pláneturnar gáfu eða létu frá sér orkustrauma og hvernig bylgjur sólar og pláneta og staða þeirra hafði áhrif á allt sem hreyfðist eða hreyfðist ekki sem og á okkur mennina á sál, líkama og huga. Þessi fræði byggjast á miðlun þessara fornu meistara og hafa þau fengið mikla viðurkenningu, um allan heim, fyrir færni hennar til að uppljóstra um leið sálarinnar í bæði fortíð og framtíð.