Stjörnuspekingurinn Fjóla Jensdóttir nam vedísk fræði í bandarískum háskóla með indversku ívafi:
Það eru ekki margar íslenskar
konur sem hafa sömu atvinnu og Fjóla Björk Jensdóttir. Hún er stjörnuspekingur og starfar við að búa til persónulegar bækur byggðar á stjörnukortum fólks. Fræðin nam Fjóla innan um kornakra Iowa-ríkis í Bandaríkjunum, en hún útskrifaðist með mastersgráðu frá Maharishi University of Management árið 2006. Skólinn er bandarískur en með indversku ívafi og byggir námsskrá hans á vedískum fræðum. Fjóla sérhæfði sig í jóga og sjálfsskoðun og tók BA-próf í ayurvedískum náttúrulækningum og stjörnuspeki. „Þetta var yndislegur tími, við stunduðum hugleiðslu tvisvar á dag og mér hefur sjaldan liðið betur. Mér leið eins og ég hefði alltaf átt heima þarna.“ Stjörnuspekin og náttúrulækningarnar tengjast nánum böndum, segir Fjóla. Í Austurlöndum sé það vel þekkt staðreynd en þar skoði náttúrulæknar stjörnukort og búi til jurtablöndur meðal annars út frá því sem þeir lesa úr því. Fjóla hefur hins vegar ekki getað nýtt þekkingu sína í náttúrulækningum hér á landi, þar sem erfitt reynist að fá leyfi. „Meginreglan er sú að það má ekki nota náttúrulyfin ef einhver virkni finnst í þeim. Og að sjálfsögðu er virkni í þeim, þannig að þetta eru meira og minna bannaðar jurtir, sem er slæmt,“ segir
Fjóla.
Samkvæmt vísindum stjörnufræðinnar eru pláneturnar samansafn orku og tíðni og gefa frá sér ákveðið segul- eða raforkusvið sem hefur áhrif á allt líf á jörðinni. Stjörnukortið er kort af himnunum, eins og mynd sé tekin frá miðju jarðar, í gegnum þann stað og á þeim tíma þar sem fæðingin einstaklings átti sér stað. Það sýnir staðsetningu plánetnanna og tengingar þeirra við hinn nýfædda einstakling. Stjörnuspeki eru þau fræði sem skoða það saman safn af áhrifum sem orkustraumar plánetnanna hafa á líkamlegt og andlegt líf okkar hér á jörðinni.
Þegar fram líða stundir ætlar hún að fara meira út í náttúrulækningarnar, en þangað til einbeitir hún sér að stjörnuspekinni. Hún skrifar bækur fyrir fólk sem hún byggir á stjörnukorti þeirra. „Sú ítarlegasta er um fjörutíu síður. Í henni fer ég vel í grunnþætti stjörnukortsins. Svo er inngangskafli þar sem ég spjalla um það sem helst ber af í því kortinu.“ Þá er hún einnig með minni bækur, eins og Framabókina og Örlagabókina. Í síðasta lagi er það Barnabókin, sem hefur verið vinsæl sem skírnar- eða sængurgjöf. „Í þeim bókum gæti ég mín á að taka bara fram það saklausa og góða. Ég tek allt út sem gæti verið særandi, orkað tvímælis eða á einhvern hátt verið túlkað sem „slæmt“. Fjóla segir ótrúlegt hversu vel stjörnukort sýnir líf fólks og hún trúir því að allt lífið sé meira og minna skráð í stjörnurnar. „Ég er engan veginn skyggn. Þetta stendur einfaldlega skrifað í kortunum. Í vedískri stjörnuspeki er það tunglið sem ræður ríkjum, ekki sólin eins og í vestrænni stjörnuspeki. Allir vita að tunglið hefur áhrif á vatnið á jörðinni. Á nákvæmlega sama hátt hefur það líka áhrif á okkur og okkar líf og það gera hinar pláneturnar
líka.“
Þeir sem vilja vita meira um Fjólu geta kíkt á heimasíðuna www.fjolajensdottir.is þar sem frekari upplýsingar um bækurnar er að finna.
- hhs


