Viðtal í HannHún 01/05/2007
Fjóla Jensdóttir lærði vedísk fræði í Bandaríkjunum
Fjóla Jensdóttir stúderaði vedísk fræði í Bandaríkjunum í sex ár. Þessi forna indverska speki heillaði hana og þar fann hún það jafnvægi sem hún leitaði að. Nú er hún komin heim og hefur nóg að gera við að leiðbeina samlöndum sínum á sviði heilsu og stjörnuspeki. Vedísk stjörnuspeki er nefnilega mjög vel spádóma fallin.
Ayurveda eru heilsuvísindi hindúa og eru talin um það bil fimm þúsund ára gömul. Heitið er komið úr sanskrít og samsett úr tveimur orðum, ayu sem þýðir líf og veda sem þýðir þekking á. Í stuttu máli felast þessi fræði í því að litið er á manninn sem heild og ef eitthvað er að eru honum veittar ráðleggingar um mataræði, lífsstíl og það hvernig næra á andlegu hliðina. Stjörnurnar veita svo ayurveda-fræðimanninum innsýn í þann einstakling sem hann sinnir.
En hvað er það helst sem greinir vedíska stjörnuspeki frá þeirri vestrænu?
„Fyrst og fremst það að hún er upprunnin í Indlandi þar sem þjóðfélagið er mun ríkara í andlegum efnum en okkar,“ segir Fjóla. „Í vedískri stjörnufræði er áherslan meira á andlegt líf einstaklingsins og litið er á karma og aðra þætti sem ekki eru eins lifandi í vestrænum heimi. Meginmunurinn er sá að tunglmerkið er skoðað fremur en sólarmerkið. Vestrænir stjörnuspekingar hafa sólarmerkið meira til hliðsjónar en það segir fyrir um framapot, stöðu í lífinu, velmegun og metnað á meðan tunglmerkið gefur vísbendingar um innri velmegun og andlega líðan.“
Í námi í Bandaríkjunum í sex ár
Hvar lærðir þú þessi fræði?
„Ég fór út til Bandaríkjanna og hef verið þar við nám í vedískum fræðum undanfarin sex ár. Ég var við nám í þessum fræðum og lærði með þeim ayurvedískar lækningar og vedíska stjörnuspeki. Ég byrjaði í líffræði hér heima en fann mig ekki í faginu. Þá hóf ég leit á Netinu að skólum í náttúrulækningum og datt niður á þennan í Bandaríkjunum. Ég sótti um og það var eins og við manninn mælt, frá upphafi heillaðist ég af faginu.“
Ayurveda-fræðin byggja á þeirri kenningu að ákveðin öfl stjórni náttúrunni og þar með mönnum. Þessi öfl eru kölluð þrídósur (tridoshas). Í ayurveda er fólki skipt upp í ákveðnar líkamsgerðir en menn geta verið sambland af tveimur og jafnvel öllum þremur.
„Þetta er líka hægt að reikna út í kortum,“ segir Fjóla. „Öll þessi fræði spila saman. Á Indlandi eru stjörnuspekingar miklir hjónabandsráðgjafar og þeir ákvarða fyrir menn tímasetningar í ljósi afstöðu stjarnanna og segja fyrir um hvenær best sé að giftast, eignast börn, skíra börnin, fara í skóla eða hvað sem er. Það er ákveðin stund réttari en önnur til allra hluta.
Stjörnuspekingar og ayurvedískir læknar vinna þar mikið saman. Stjörnuspekingurinn lítur í kortin til að sjá mögulegt ójafnvægi sem gæti risið á tilteknum tímum og þegar sú vitneskja er komin fram skrifar læknirinn upp á lífsstílsbreytingar eða ákveðnar jurtalækningar, nudd eða hreinsunarmeðferðir til að hjálpa viðkomandi að vinna gegn erfiðleikunum.“
Gerir ráð fyrir árlegri skekkju
Tengist vedísk stjörnuspeki þá himintunglunum og dýrahringnum eins og við þekkjum hann?
„Já, reyndar eru tveir dýrahringir notaðir í stjörnuspeki. Annar heitir tropical en hinn sidereal. Sá síðarnefndi gerir ráð fyrir þeirri skekkju sem verður árlega á gangi stjörnumerkjanna en allt að 25° munur getur orðið á milli byrjunar hrútsmerkisins í vestrænni stjörnuspeki og vedíska kerfinu. Menn geta því verið sporðdrekar í öðru kerfinu en bogmenn í hinu. Að grunni er þetta það sama og sömu „princip“ að mörgu leyti. Útreikningarnir eru einnig þeir sömu. Áherslur og ýmis nákvæmnisatriði eru þó ólík.“ Samkvæmt ayurvedafræðunum eiga menn að forðast ákveðnar matartegundir ef þeir hafa tiltekna líkamsgerð.
Segir þú fólki hvað það eigi að borða og hvað það eigi að forðast?
„Já, ég reikna út hvaða líkamsgerð einstaklingurinn er og ákveðin prakriti eða náttúru viðkomandi. Ég reikna síðan frávik frá þessari náttúru. Þegar ójafnvægi skapast í líkamanum er það vegna þess að við höfum á einhvern hátt vikið frá eðli okkar og náttúru. Til að rétta ójafnvægið og koma vissum „elementum“ á réttan stað í líkamanum er uppáskrifað ákveðið mataræði. Þessi element heita doshur eða vata, pitta og kapha. Lífsklukkan okkar er háð þessu og tími dags, æviskeið og tiltekinn tími í lífi okkar eru einnig háður þeim. Þau eru líka í matvælum og umhverfi okkar og við getum samstillt öll þessi áhrif með mataræði og lífsvenjum þannig að jafnvægi náist eins og náttúran hefur ætlað okkur að gera.“
Hefur þú séð breytingar verða á líðan fólks eftir að það fór að fara eftir vedískum fræðum og laga sig að þeim ráðleggingum sem þar eru gefnar?
„Já, ég þekki breytinguna sem varð á sjálfri mér best. Þetta er alltaf persónulegt og ég sá aftur og aftur einstaklinga sem komu í skólann sem ég var í breytast. Inn komu kannski nemendur sem áttu við offituvandamál að stríða og þeir hríðgrenntust á árinu og fóru að geisla og brosa sem aldrei fyrr. Ég sá geysilegar umbreytingar eiga sér stað í þessu umhverfi. Stundum var meira um innri breytingar að ræða sem ekki voru eins auðsjáanlegar.“
Stjörnuspekin aldrei betri en stjörnuspekingurinn
Á Vesturlöndum hefur hingað til ríkt ákveðin tortryggni gagnvart svona fræðum. Margir vísindamenn eru mjög neikvæðir í garð allra náttúrulækninga. Þú hefur verið að læra þetta í sex ár og sumir myndu segja að þú hefðir eytt tíma þínum til einskis. Hvað finnst þér um slíkar raddir?
„Ég hef lært að tala við efasemdarmennina og er ekki sú manngerð sem reynir að troða sínum skoðunum upp á fólk. Ég veit hins vegar hvar ég var stödd fyrir svona átta til níu árum og hvernig ég er í dag. Áður fyrr horfði ég á þetta svipuðum augum og margir aðrir gera en í gegnum vinnu mína og reynslu hef ég farið að sjá mynstrin og áhrif þeirra. Stjörnuspekin er hins vegar aldrei betri en stjörnuspekingurinn sem segir frá henni. Hver og einn verður hins vegar alltaf að dæma fyrir sig og ég get ekki gert meira en að reyna að fræða fólk eftir fremsta megni.
Ég vinn á elliheimili með mörgum konum sem eru á öllum aldri og þar fara oft í gang fjörugar og gagnrýnar umræður. Þær hafa margar og skemmtilegar spurningar fram að færa og mér finnst alltaf gaman að svara þeim. Auðvitað er þessi heimur sem við búum í hér ákaflega langt frá þeim indverska. Þar sem gildi samfélagsins eru mun andlegri og trúin mun stærri hluti af lífi fólks. Menn lifa þarna með guðunum og fyrir þá. Hér velta menn meira fyrir sér hvernig peningalegri velmegun.“
Sérðu fyrir þér að þú getir unnið eingöngu við þetta í framtíðinni? „Já, áhuginn á þessum fræðum er svo gríðarlegur. Hér er ákveðinn hópur sem hefur mjög sterkan áhuga á andlegum málefnum og hann fer ört vaxandi. Þetta er einnig sterkur hópur sem smitar út frá sér. Um leið og aðrir sjá og heyra af góðum hlutum er það fljótt að breiðast út. Hér er heldur ekki mikil samkeppni á þessu sviði og íslenski markaðurinn enn opinn. Það hefur einnig sýnt sig að síðan ég byrjaði hafa verið biðlistar eftir að komast að. Ég hef þess vegna ekki þorað að auglýsa eða reynt að koma mér á framfæri á annan hátt því ég næ ekki að anna því sem ég hef fengið.“
Ayurveda er heildrænt kerfi þar sem litið er svo á að hver og einn sé einstakur. Doshurnar þrjár raðast á mismunandi hátt í öllum og enginn stríðir því við sama vandamálið á nákvæmlega sama hátt. Með hjálp vedískra fræða má því ekki bara skoða heilsufarsvandamál og veita persónulega þjónustu á því sviði heldur þarf einnig að skoða hvers vegna við bregðumst svo mismunandi við ákveðnum aðstæðum og ákveðnum einstaklingum. Fjóla hefur svör á reiðum höndum við öllum þeim spurningum sem kunna að vakna og þar sem hún hefur samþykkt að útbúa stjörnuspá fyrir hvert merki fyrir h-tímarit er lesendum gefinn kostur á að senda henni fyrirspurnir á netfangið spafjola@htimarit.is. Til að geta lesið stjörnuspána á réttan hátt þurfa menn að vita hvert rísandi merki þeirra er og tunglmerkið. Fjóla svarar því og jafnframt geta menn pantað nákvæmari spá hjá henni.


