Hvað er stjörnuspeki?
Skv. vísindum stjörnufræðinnar eru pláneturnar samansafn orku og tíðni og gefa frá sér ákveðin segul- eða raforkusvið sem hefur áhrif á allt líf á jörðinni.
Stjörnukortið þitt er kort af himnunum, eins og mynd sé tekin frá miðju jarðar, í gegnum þann stað og á þeim tíma þar sem fæðingin þín átti sér stað.
Það sýnir staðsetningu plánetanna og tengingar þeirra við hinn nýfædda einstakling. Stjörnuspeki eru þau fræði sem skoða þau samansafn af áhrifum sem orkustraumar plánetanna hafa á líkamlegt og andlegt líf okkar hér á jörðinni.


