Hvað eru veda ritin?

Veda ritin eru ein elstu vísindi og hugmyndafræði mannkyns en þau eiga uppruna sinn í fornu Indland. Þau elstu eru löngu fyrir tíma krists en sum talin yfir 7000 ára gömul.

Veda ritin bera vott um menningararfleifð ríka af listum, heimspeki, trú og vísindum. Um er að ræða þúsundir hefta heilagra ritninga, ritaðar af fornum vitringum þess helga tíma þegar öll viska heimsins var í miklu vexti, á tíma hreinleikans, eða sat yuga, þegar viska spratt fram á sama tíma um allan heim.

Einu raunverulegu ritin sem varðveist hafa frá þessum tíma eru veda ritin. Vitringarnir sem lifðu í vitund ljóssins, sáu með innsæi sínu visku sem gerði þeim kleift að skynja líf handan tíma og rúms, handa fortíðar og framtíðar.

Í þessu fíngerða vitundarástandi, fundu þeir hvernig pláneturnar gáfu eða létu frá sér orkustrauma og hvernig bylgjur sólar og pláneta og staða þeirra hafði áhrif á allt sem hreyfðist eða hreyfðist ekki sem og á okkur mennina á sál, líkama og huga.