Mikilvægi vedískrar stjörnuspeki


Vedísk Stjörnuspeki?

Hvers vegna að skoða stjörnunar??

Það er án efa margir ávinningar í notkun stjörnuspeki í daglega lífinu okkar en það fyrsta sem flestum dettur líklega í hug er hversu mikið forspárgildi stjörnuspekin hefur. Því er ekki að neita að það er notalegt að vita hvenær muni rigna í lífi okkar, því með stjörnuspekinni getum við fundið þá tíma og spennt regnhlífina. Við munum vissulega verða rök og jafnvel blaut undir áhrifum álagafjötra stjarnanna en við drukknum þó ekki og erum tilbúin í slaginn, sem við værum jafnvel ekki annars. Nei, sjálf myndi ég ekki segja að það besta við stjörnuspeki sé færni hennar til að segja okkur um fjötra og frelsi framtíðar, heldur færni hennar til að uppljóstra um okkur sjálf, í fortíð og framtíð, eða um ferli okkar sem sál í þessum líkama. Það var að minnsta kosti mín besta reynsla af spekinni og hefur fyllt lífi mínu endalausri gleði, fyrirgefningu, kærleik og tilhlökkunar.

Með því að þekkja styrkleika okkar og mótbyr þann sem berst okkur í lífinu getum við fyllilega hjálpað okkur með besta móti, og í raun þá er sjálfsþekking grundvöllur allrar hamingju og velgengni. Með nægilegri sjálfsþekkingu leiðum við sjálfið á réttar brautir í lífinu, þ.e. þær réttu fyrir okkur sjálf. Spekin hjálpar okkur að sjá hvernig og af hverju okkur berast erfiðleikarnir í þeirri mynd sem þeir gera, en þegar þekking á kortinu okkar svarar til persónulegra upplifana og reynslu, styrkir það trú okkar á aðra þætti kortsins, þætti sem snúa að verðleikum okkar og heilindum. Ég hvet þig eindregið til að styrkja sjálfa/n þig og láta eftir þér aukna hamingju og meiri lífsfyllingu í daglega lífinu.

Kær kveðja
Fjóla Jensdóttir