Orkusteinar – Vedísk steinameðferð
Orkusteinar eru mikilvægasta hjálparmeðferðin sem er notuð í vedískum fræðum, sem helst uppáskrifar orkusteina frekar en aðra meðferð við að létta þér erfiða tíma. Orkusteinar bera með sér langmestu færni allra efna jarðarinnar til að miðla til okkar orkusveiflum plánetanna. Þeir hafa bæði burði til að koma í veg fyrir neikvæða strauma og til að styrkja jákvæða strauma. Flestir þeir sem fá kortalestur frá vedískum spekingi fara heim með uppáskrift fyrir orkustein en erlendis tíðkast þetta mikið og er talinn nauðsynlegur hluti af lestrinum.
Orkusteinar myndast við geislun frá plánetunum sjálfum, þeir tákna og standa fyrir orku plánetunar hér á jörðinni og myndast út frá þeim steinefnamassa sem gefur leiðir af sér allt líf. Þeir eru eins og litlir molar plánetuljóss á jörðinni og stuðla að því að tengja okkur við alheiminn í kringum okkur. Jörðin er sjálf eins og stærðarinnar orkusteinn, með skorpu ríka af síliku, kvartsi og sína fjölmörgu ólíka steinmassa sem mynda hina ýmsu kristalla. Orkusteinar eru ekkert nema samþjöppuð ljósorka í steinaríkinu, þétt orkueining sem skapar endurskin frá stjörnunum.
Orkusteinar vinna á eteríska sviðinu og færa stjörnuljós plánetanna inní líkamlegu tilveru okkar. Þeir bera áhrif plánetanna inná orkusvið okkar til að koma jafnvægi á áruna sem er ljósmynstur og orkusvið líkamans. Til eru steinar sem svara sérstaklega til orku sérstakra pláneta en viðkvæmt er að velja sér stein því þeir geta auðveldlega styrkt þætti í kortinu sem við viljum alls ekki styrkja.
Vedísk orkusteinameðferð er aðallega notuð í gegnum stjörnukortin en hefur einnig verið notuð af ayurvedískum læknum og öðrum sem vinna með vedísku fræðin. Skv. vedískum hugmyndum, er ekki hægt að nota steinanna á réttan og uppbyggilegan máta nema að skilja stjarnfræðileg áhrif þeirra. Þó að mikið að nýjum upplýsingum um steinameðferðir hafi gert vart við sig á síðastliðnum árum, sérstaklega í kringum andleg mál, er mikið af þeim hugmyndum ekki byggðar á raunverulegum rannsóknum eða grundvallaðri þekkingu. Vedíska orkusteinameðferðin hefur hins vegar sannað sig í gegnum reynslutíma sinn sem nær til fleiri þúsund ára. Eins er hægt að skoða heilsutengda þætti kortsins og stundum er gott að fyrirbyggja líkamleg og andleg ójafnvægi með því að setja upp steina fyrir ákveðin tímabil. Þetta getur verið nokkuð öflugt og hjálplegt.
Steinameðferð tekur stutta stund, þar sem ég skoða hvaða steinn væri þér góður, hvenær þú getur sett hann upp, hvar og í hvaða málmasetningu. Viltu vita hvaða orkusteinn væri þér bestur og hverja þú átt alls ekki að bera?
Aðalorkusteinar plánetanna eru
Sólin – Rúbín
Tunglið – Perla
Mars – Rauður Kórall
Merkúr – Emerald
Júpiter – Gulur Safír
Venus – Demantur
Satúrnus – Blár Safír
Rahu – Hessonít Garnet
Ketu – Kattarauga
Orkusteinagreining út frá vedísku stjörnukorti kostar 9900.-
Aðalorkusteinar plánetanna eru
Sólin – Hárauður Rúbín
Líkamleg áhrif: Rúbín eykur við meltingarfærni líkamans, eykur pitta dósjuna en minnkar kapha og vata. Rúbín bætir lífskraft og ónæmi (ef Sólin er sterk í korti þ.e.a.s.), meltingu og blóðrás. Rúbín er góður til styrktar líkamlega hjartanu, ristlinum, huganum og augunum. Alhliða þá eflir það líkamlegt ónæmi og kraft. Eins hefur það burði til að draga úr þróttleysi og þreytu.
Andleg áhrif: Rúbín styrkir allar sjálfsstæðis tilfinningar og sjálfsálit yfir höfuð. Það eykur leiðtogahæfileika og stjórnun. Rúbín eykur við heilbrigða tjáning sjálfsins og persónuleikans, eflir aga og persónulegan kraft. Alhliða þá hefur Rúbín færnina til að efla veraldlega stöðu einstaklingsins og veita honum valdið og kraftinn sem nauðsynlegt er til að færast framar í metorðastiga eða áhrifum.
Tunglið – Náttúrulega Perlan
Líkamleg áhrif: Perlan eykur við vatnsgrunnefnið í líkamanum og getur í kjölfarið styrkt plasmað, eitlakerfið og húðina. Perlan er einnig sérstaklega góð fyrir magann, lungun, æxlunarfærin og þá sérstaklega kven, og eykur eins við frjósemi.
Andleg áhrif: Perlan færir okkur rósemi til hugar og tilfinninga. Hún er frábær fyrir hvers kyns skapandi tjáningu, sérstaklega ljóðlist eða tónlist. Perlan hefur sérstaklega góð áhrif á sálarlíf kvenlíkamans og getur styrkt tilfinningar (en bæði á góðan og slæman hátt). Gæta verður að því að setja aldrei á sig perlur þegar Tunglið situr á erfiðum stað í korti.
Mars – Rauður Kórall
Líkamleg áhrif: Rauður eða bleikur Kórall styrkir blóðið, beinmergin, beinin og æxlunarkerfið (sérstaklega fyrir karlmenn). Það eflir meltingu bæði þegar þörf er á og ekki svo best er að athuga hver raunveruleg staðan á henni er áður en farið er í að setja upp Kóral. Kórallinn eykur við blóðflæði og hjálpar einnig við að byggja vöðvamassa.
Andleg áhrif: Rauður Kórall eykur við vilja styrk og vinnustyrk. Hann getur róað tilfinningar með því að veita þeim aukin kraft og áræðni. Rauður Kórall eykur sérstaklega við bardagamanninn innra með okkur, líkamlegt þol, hugrekki, tilfinningalegan dug og dugnað.
Merkúr – Grænn Emerald
Líkamleg áhrif: Hvað varðar líkamleg áhrif Emeralds þá hefur hann nokkuð jöfn áhrif á allar þrjár dósjur (grunnkrafta) líkamans en getur aukið við Agni eða meltingareldinn. Emerald styrkir taugakerfið, lungun, tjáningarlíffærin, eykur við næmni og útgufun. Hann hefur færni til að koma jafnvægi á virkni innkirtlakerfis og stuðlar að vexti og þroska hjá börnum.
Andleg áhrif: Emerald er talin gríðarlega góður steinn fyrir allt huglægt, huglæga greind, næmni og stuðlar að jafnvægi. Eins kemur hann jafnvægi á tjáningu, kraft tjáningar okkar og samskipti. Hann hjálpar við lærdóm og lærdómsgetu og þá sérstaklega fyrir börn. Emerald eykur við huglegan sveigjanleika, hraða og móttækileika.
Júpiter – Gulur Safír
Líkamleg áhrif: Gulur Safír eykur við kapha og pitta dósjur en ekki alvarlega en minnkar vata töluvert. Gulur Safír getur því stuðlað að ró og jafnvægi taugakerfisins. Eykur við framleiðslu sæluefnisins Ojas (þróttefni skv. Ayurvedískum lækningum), styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að alhliða vexti og þroska. Gulur Safír er sérstaklega góður fyrir lifrina, miltað og brisið. Gulur Safír stuðlar að vexti og heilun vefja og hjálpar að koma jafnvægi á virkni innkirtlakerfisins.
Andleg áhrif: Gulur Safír bætir og fegrar viðhorf okkar til lífsins, eykur við lífskraft og gefur okkur bæði hugrekkið og örlætið til að eltast við markmið okkar. Gulur Safír eykur við allar fallegar og jákvæðar tilfinningar mannshjartans; eykur við gleði, örlæti, góðmennsku, rósemi. Hann styrkir dómgreind sérstaklega, eykur við gildsmat og réttlætiskennd og færir huga okkar ró og stöðugleika. Eins og með aðra steina þó verður að hafa gát á hver setur þá upp því þeir geta haft þveröfug áhrif en þeim er ætlað ef stjörnukortið “nýtir” ekki orkuna þeirra á uppbyggilegan hátt.
Venus – Demantur
Líkamleg áhrif: Demantur minnkar pitta og vata dósjuna og eykur væglega við kapha. Demanturinn styrkir æxlunarfærin, beinin og Ojas. Hann stuðlar að alhliða styrk, fegurð og lífskrafti og langlífi. Hann er sérstaklega góður fyrir konur og í að styrkja kvenorkuna.
Andleg áhrif: Demantur eykur við sköpunarorkuna og tilfinningar ástar og ástríðu. Hann gefur þó hugprýði, stöðugleika og félagslega innsýn í leiðinni. Demantur styrkir sjón, rómantík og ímyndunarafl.
Satúrnus – Blár Safír
Líkamleg áhrif: Blár Safír minnkar pitta og meltingareldinn en eykur við kapha (samloðun) og vata (hreyfingu). Blár Safír stuðlar að líkamlegri hreinsun og léttingu og dregur úr sýkingarhættu og ertingu. Blár Safír stuðlar því að ónæmi og langlífi.
Andleg áhrif: Blár Safír hjálpar tilfinningalega stjórn, minnkar reiði og þráhyggju. Hann stuðlar að auknum aga og ásetningi, og hjálpar okkur að yfirvinna mótvind og andstreymi. Hann stuðlar einnig að rósemi hugar, stöðugleika í hugarstarfssemi og tilfinningalegu þoli.
Rahu – Hessonít Garnet
Líkamleg áhrif: Hessónít Garnet stuðlar að ónæmi, styrkir innkirtlakerfið, róar skynfærin, dýpkar andan og verndar taugakerfið. Það stuðlar að dýpri svefni og hjálpar við að minnka stress og umhverfistengt álag á skynfærin.
Andleg áhrif: Hessnónít Garnet eykur færni okkar til samkenndar og dýpri næmi en gefur okkur á sama tíma tilfinningalegan styrk og þol. Það eykur við aðgang okkar að jákvæðum krafti undirmeðvitundar okkar en stuðlar á sama tíma við tengingu okkar við dýpri vitund þjóðfélagsins og fjöldann. Ef Rahu er sterkur í korti getur Hessónít aukið við veraldlega viðurkenningu og frama.
Ketu – Kattarauga
Líkamleg áhrif: Kattaraugað bætir blóðrás í kringum heilan, skynfærin og taugakerfið. Það verður þó að taka það strax fram að það er sjaldan í korti að við viljum auka við áhrif Ketu og efla orku hans í lífi okkar. Ég mæli því yfirleitt á móti því að fólk noti þennan stein þar sem Ketu stendur fyrir málefnum eins og sérvisku og jafnvel afbökun og afbrigðilegheitum.
Andleg áhrif: Kattaraugað eykur skerpu í huga og skynfærum. Hann gefur aukna stjórn á tilfinningar og undirmeðvitund og styrkir viljann. Kattaraugað gefur ásetning, ákveðni, fókus og þol. Kattarauga getur stuðlað aukinni næmni en gæta verður alúðar áður en steinn erfiðustu plánetuáhrifa kortsins er settur upp. Fáir hafa í raun burði til að þola auka Ketu orku í lífið sitt.
Kavak – Silfraður verndarskjöldur
Notkun hins silfraða verndarskjaldar, sem kallast Kavak eða Amúlet, á réttum tíma, aðstoðar við að beisla öflugustu orku kortsins þíns til fullnustu. Þessi verndarskjöldur inniheldur yantra tölur (talnamynstur) þeirra pláneta sem sterkastar eru í kortinu þínu og er ein áhrifaríkasta heilunarmeðferðin fyrir kortið þitt (einnig einna ódýrust). Þær plánetur sem eru veikburða eða “illa farnar” í kortinu þínu eru síður færar um að beina áhrifum sínum að þér og stuðla að áföllum. Kavakinn hefur bæði áhrif forvarnar og læknismáttar.
Hvort sem það er Kavak eða orkusteinn sem fólk velur sér þá er nauðsynlegt að velja góðan upphafstíma til að setja hann formlega á sig. Rétt eins og annað í þessari tilveru þá á sér það augnablik kort og því er þessi upphafstími gríðarlega mikilvægur svo “samstarf” þitt og steinsins og/eða Kavaksins geti orðið eins gott og hægt er.
Hægt er að fá vitnisburði frá fleiri hundruðum einastaklinga sem votta frábær áhrif frá notkun Kavaksins, bæði til eflunar heilsu og til að stuðla að andlegri og veraldlegri vellíðan.


