Plánetutýpurnar

Öll eigum við okkur ríkjandi plánetu en það er þá sú pláneta sem mest snýr að persónuleika okkar og líkamsgerð. Öll eigum við okkur ákveðna líkamsgerð og plánetutýpu en þetta er óhjákvæmilega samtvinnaðir og óaðskiljanlegir þættir. Stjörnukortið þitt hefur heilmikið að segja um byggingu þína, andlegar og líkamlegar tilhneigingar og heilsufar. Til að álykta plánetutýpu skoðar vedísk speki þá ríkjandi plánetu, þá sterkustu eða þá sem mest snýr að persónulegustu þáttum í kortinu. Stundum og oft eru tvær plánetur ríkjandi en yfirleitt þó ekki fleiri því öllu eigum við eina sem er frekari en aðrar. Plánetutýpurnar eru 9 talsins og fyrir aðeins 1000 kr. færðu plánetutýpu flokkun út frá kortinu þínu.
Hvaða plánetutýpa ert þú?
Plánetutýpugreining kr. 3900.-
JÚPITER TÝPAN
Júpiter táknar jákvæðu, virku eða heilbrigðustu hlið kapha dósjunar ( jarðar og vatns frumefni náttúrunnar). Júpiter týpan hefur yfirleitt sterka Kaffa líkamsgerð, með stóra og sterka vöðvabyggingu, höfuð þeirra og jafnvel hendur og fætur eru í stærri kantinum. Hún á það til að þyngjast og bæta auðveldlega á sig vöðva og fitumassa en geta sérstaklega fitnað á seinni hluta ævinnar. Hún er heitfeng og hefur afkastamikil en stöðug efnaskipti. Húð hennar hefur gylltan tón og hún hefur sterka og stöðuga blóðrás.
Júpiter týpan hefur mikinn styrk og nýtur sín út í náttúrunni og við hvers kyns útivist, líkamlega vinnu og æfingar. Hún er virkari og íþróttalegri en aðrar kaffa týpur og er hreyfing þeim nauðsynleg fyrir vellíðan og heilbrigði. Yfirleitt eru Júpiter týpan heilbrigð og langlíf en getur orðið öfgafull á hvers kyns máta. Þau líffæri sem liggja helst við ójafnvægi eru brisið, lifrin og gallblaðran. Hún borðar oft yfir sig af sætum eða feitum mat og getur það leitt Júpiter týpuna til ójafnvægis eins og offitu eða jafnvel sykursýki. Þegar hún lifir kyrrsetu lífsstíl þá er náttúrulegur styrkur hennar og ónæmi runnið fyrir bí. Hún þarf því sífellda hreyfingu og virkni.
Júpiter týpan er andlega glaðlynd, hamingjusöm og sáttfús. Hún er mannblendin, örlát og nýtur sín í návistar fólks. Hún umvefur sig og jafnvel safnar vinum og fjölskyldu. Hún er lífs- og tjáningarglöð og hefur gaman að sýningu orku og leiks. Hún er kát og leikræn og afar sjaldan gróf eða tillitslaus. Hún hefur sjaldan áhyggjur og yfirleitt bjartsýn. Hún gengur stundum of langt í nautnum og leiðist jafnvel út í ólifnað, sérstaklega í röngum félagsskap eða fyrir röng áhrif og uppeldi. Eins getur þetta gerst ef Rahu eða Venus hefur of mikil áhrif á Júpiter í kortinu.
Í vinnu gæti Júpiter týpan komið inná ævintýraleg og viðamikil viðskipti eða bankamál/vinna eða stjórnun. Júpiter týpan stendur sig yfirleitt vel fjárhagslega og safnar að sér eignum, vinum og viðskiptafélögum til að aðstoða sig við verkefni sín. Hún laðast að lögfræði og hernaðarmálum, eins og Mars týpur en meira vegna réttlætiskenndar sinnar í stað aggresífu eins og hjá Mars týpunni.
Þegar það kemur að listum þá laðast Júpiter týpan hvað mest að tónlist. Hún hefur oft mikla heilunarorku og orkumikla og fallega nærveru. Hún hefur oft áhuga á guði, heimspeki, trú og andlegum málefnum. Hún er jafnlynd, kærleiksrík og samúðarfull og reynir að vera réttlát eftir fremsta megni. Hún hefur mikla samúðarkennd og getur verið helguð trú sinni og meiningu. Hugsjónir og viðhorf geta oft verið of stór og draumkennd og jafnvel útúr kú við annað í umhverfi þeirra. Hún eru jafnan hefðbundin í hugmyndum sínum, laðast að vinsældum og getur gleymst sér í serimóníum og goggunarröðum. Stundum verður jafnvel yfirborðskenndur hluti trúariðkunar mikilvægari heldur en kjarni þeirra.
Júpiter týpan er sérlega helguð og holl, róleg og yfirleitt hamingjusöm með sjálfa sig. Með árunum og þroska verður hún sérlega íhugandi. Hún horfir á stóru myndina og stærri hugmyndir og hreina þekkingu í stað smáatriða. Andi hennar er stór og mikilfenglegur, jákvæður og hjálplegur. Hún vil ávallt stuðla að heilbrigðri framvindu allra í kringum sig og taka þátt í að auka við þroskun þekkingar og skilnings.
SÓLAR TÝPAN
Sólin táknar jákvæða hlið eldsorkunnar, Agni eða pitta. Sólar týpan er yfirleitt sterkust og heilbrigðust vegna þess að sterk melting hennar og efnaskipti hjálpar henni að brenna burt eiturefni, sýkla og annað sem skapað gæti ójafnvægi og í kjölfarið sjúkdóma. Sólar týpan hefur sterkt ónæmiskerfi og verður sjaldan alvarlega veik. Auðveldast er að sjá áhrif Sólar hjá Sólartýpum í kringum höfuðsvæði og andlit. Hún hefur bjart útlit, með gullin eða rauðleitan tón. Augu þeirra eru vakandi og full af krafti, útgeislun og birtu. Hún er yfirleitt miðlungs í byggingu með sterka vöðvabyggingu og sjaldan of þung eða of létt. Sólar týpan hefur þó fylgjandi vata (grunnlíkamsefni) dósju sem gefur henni þurran líkama, í húð og hári.
Sólar týpan þjást af hita og leita því frekar í kalt, í bæði mat og umhverfi. Þó þeim líki við sólskin þá er þeim óhollt að vera of lengi undir áhrifum sólarinnar. Hvað heilsu varðar á hún helst á hættu við ofvinnu og ofhitun. Hún á það til að taka of mikla ábyrgð á herðar sér. Þetta getur leitt til vandræða með hjarta og blóðþrýsting, jafnvel hækkandi sýrustigs í líkamanum sem leitt getur til magasárs og annarra sýrutengdar flækja.
Sólar týpan nýtur þess að eiga börn en hefur til þeirra háar kröfur sem reynst getur sambandinu við þau erfitt. Þetta getur leitt til uppreisnar og vonbrigða. Sólartýpan eru krafti knúar andlega, áberandi og ríkjandi og bera vissa drottnun í hegðan og fasi. Hún hefur sérlega sterkan vilja og mikinn lífskraft og ákveðni. Hún er sjálfsstæð, glæsileg, stolt og stundum hégómafull. Hún hefur sterkar tilfinningar en mikla stjórn á þeim að sama skapi. Hún vil helst vera leiðtogi eða valdhafi og nýtur sín jafnan í stjórnmálum. Hún vil vera leiðarljósið og nýtur sín best þegar aðrir snúast í kringum hana eins og pláneturnar snúast um sólina sjálfa. Hún er krítísk, meðvituð og fer djúpt í hnotskurn hlutanna. Hún er góð í vísindum og sálfræði og færa fram nýjar brautryðjandi hugmyndir.
Sólar týpan eru yfirleitt heimspekilega og siðferðislega þenkjandi og vil láta gott af sér leiða. Þessir æðri eiginleikar gera vart við sig í meiri mæli seinna á ævinni og þá getur hún orðið afar íhugandi og hugsandi einstaklingur. Í æsku hennar eru orkan svo mikil að þolinmæðina gæti oft vantað til slíkra hluta. Það er eitthvað heiðurmannslegt eða höfðingjalegt við sólartýpuna og þeim líkar að vinna með fólk og verkefni sem hafa gildi og mikilvægi. Ef Sólar týpan hins vegar verður undir á einhvern hátt í lífinu er hún fljót að falla til botns. Dauði hennar er oft snöggur eins og hjartaáfall eða annað slíkt. Þegar valdatíma hennar líkur og hún situr ekki lengur í hásæti sínu fyllast hún einmanaleika og eftirsjá, nema hún læri og snúi sér inná við. Það gerir hún sem betur fer oftast.
TUNGL TÝPAN
Tungl týpu einstaklingar eru undir ráðum vatnsefnisins og kaffa dósjunnar í hegðun og líkama. Þær hafa hringlótt og aðlaðandi andlit og mjúka og vel þroskaða líkama. Húð þeirra er yfirleitt ljós með hvítan tón og hvítan í augum þeirra er sérlega áberandi. Þær hafa gnægtir af vökva í líkamanum og hafa þykkt, glansandi og jafnvel fitugt hár. Tungl týpan á það til að þyngjast með aldrinum. Þetta gerist oft eftir fæðingu fyrsta barns og/eða eftir fertugsaldurinn.
Tungl týpan er svöl og rök í líkama og hefur tilhneigingu til að safna slími þar sem það er hægt. Þær hafa sterk lungu og góð raddbönd en safnan jafnan slími í nefgöngum eða hálsi og geta því oft verið kvefaðar og/eða bara stíflaðar. Þær fá auðveldlega bjúg sérstaklega á fótum og lærum. Þær lifa yfirleitt lengi og eru almennt heilsusamlegar þó þær fá reglulega smávægileg heilsutengt ójafnvægi. Þær eiga það til að verða latar og að sofa of mikið en það er þeim óhollt.
Tungl týpan tekur að sér móður hlutverkið og er í sér nærandi, umhyggjusöm og hjálpleg við alla. Hún er traust, ábyrg og móttækileg, bæði frábær maki og vinur. Hún eru oft frábær í eldhúsinu og laðast mikið að heimilisstörfum og heimilinu. Líf þeirra snýst yfirleitt um mannlega þáttinn, en þær beina sér annað hvort að fjölskyldueiningunni eða þjóðarsálinni.
Tungl týpan er tilfinningarík, næm og breytileg eins og Tunglið sjálft. Hún eru rómantísk, nokkuð væmin og grátgjörn. Þó hún sé auðsærð fyrirgefur hún auðveldlega og gleymir fljótt. Tilfinningalega næmni hennar er þó ekki alltaf, yfirleitt reynar, en ekki alltaf, næmni gagnvart öðrum því hún getur svo auðveldlega misst sig í eigin svörun að hún finnur ekki hvernig öðrum líður. Tilfinningalegur styrkur hennar veitir henni mikla færni til listrænnar og skapandi tjáningar, og sérstaklega í flutningi eða sýningu fyrir almenning. Hún er einnig frábær í hvers kyns skapandi tjáningu eins og í gegnum ljóðlistir, gjörning o.s.frv.
Æðri tungl týpur hafa skyggni og andlega hæfileika, með bæði spiritúal helgun og mikla krafta til hugleiðslu og íhugunar. Þær geta verið heilarar, skyggnar og eru yfirnáttúrulegar, vegna afar þróaðrar hjartastöðvar. Hins vegar ef tunglið er illa staðsett í korti (og þjáist þess vegna) getur það bent til tilfinningalegrar truflunar, eða sálarlegrar sturlunar.
Tungl týpur hafa vatadósju (loftdósjuna) fylgjandi ríkjandi kaffadósju (jarðardósja) sem gefur þeim miklar tilfinningalegar sveiflur. Þar sem Tunglið er ein allra mikilvægasta eining kortsins, skiptir staðsetning Tungls í merki gríðarlega miklu máli í að frekar skilgreina andlega uppgerð þessa einstaklings.
MERKÚR TÝPAN
Merkúr týpan er yfirleitt afar huglega virk, samskiptaglöð í eðli sér og með viðkvæmt tauga og meltingarkerfi. Áhrif Merkúrs eru jafnan meira huglæg en líkamleg en Merkúr líkamsgerð er þó til. Merkúr týpan á það til að vera hærri eða minni en venjan er og yfirleitt aðlaðandi (vata týpa í meiri jafnvægi). Hún er ungleg í útliti og andlitsdráttum og hefur breytilegt útlit eða tjáningu.
Merkúr týpan lýsir heilbrigðari útgáfu vata dósjunar. Húð hennar og líkami er rakari og mýkri en hjá hinum venjulegu vata týpum, sem eiga það til að vera þurrar. Merkúr týpan er í kaldara lagi og hefur viðkvæm lungu. Hún á það til að fá ofnæmi, sérstaklega heyofnæmi eða lungnapípu ójafnvægi. Hjarta hennar er einnig viðkvæmt og hún á til að fá óreglulegan eða of hraðan hjartslátt.
Merkúr týpan hefur mikla lífsorku og prönuflæði (hrein orka). Hún lifir lengi og hefur unglega glóð yfir sér. Hún eru íþróttamannsleg og góður hlaupari þó hún hafi ekki alltaf gott þol. Hún eru yfirleitt afar líkamlega virk á yngri árum en verður svo huglægari með árunum.
Andlega hefur Merkúr týpan hraða hugsun, mikla tjáningarhæfni og færni til að vinna og meðhöndla upplýsingar. Hún er geðþekk og samúðarfull og hefur sterka tilfinningu fyrir samskiptum og allri miðlun. Hún er yfirleitt vingjarnleg og opin en getur snúist inná við þegar hún hefur mikið um að hugsa. Það er oft. Tilfinningalega eru hún jafn breytileg og ör. Hún verður auðveldlega fyrir áhrifum umhverfi síns en er yfirleitt hamingjusöm, lífsglöð og forvitin. Hún er jafnan fyndin og hefur mikla kímnigáfu.
Merkúr týpan eru frábær í öllu sem viðkemur tungumálum og talningu, þó hún geti gleymt sér í smáatriðum. Hún hefur mikla þjónustu lund og yfirleitt afar hjálpleg, og ólíkt sólar, ketu og mars týpum á auðvelt með að vinna með og í kringum annað fólk. Hún gerir frábæran ritara, kennara og rithöfund. Hún vinnur vel í fjölmiðlum og er frábær í viðtalstökum og miðlun upplýsinga. Hún er flynk í eftirhermun og leiklist.
Merkúr týpan er einnig góð í viðskiptum og sölu vegna skipulagshæfileika síns og samskiptahæfni. Hún er tillitssöm og skapar jafnvægi hvert sem hún kemur, hún er því frábær í hjúkrunar, læknis eða heilunarhlutverkum. Hún er mikill náttúruunnandi og þá sérstaklega plöntuunnandi og elskar jafnan garðyrkju. Hún hefur sérlega næma og fágaða skynjun sem gefur henni jafnan hæfileika til ljóðlista, tónlistar og hönnunar. Hún hefur oft áhuga á yoga og hugleiðlsu og öðru sem styrkir og skapar jafnvægi hugarstarfsseminnar. Þó hún sé ekki alltaf sérlega andleg, hefur hún afar næmt eðli sem nyti góðs af hvers kyns andlegri rækt.
VENUS TÝPAN
Venus týpur eru best útlitandi af plánetu týpunum og sýna fallegu hlið Kaffa dósjunar. Þeir búa yfirleitt yfir meðalbyggingu og meðallagi í hæð, sjaldan mjög háar eða lágar, eða of þungar eða of léttar. Líkams- og andlitsdrættir þeirra eru hringlaga, vefir þeirra vel þroskaðir en þeir verða þó sjaldan of feitir. Þar sem útlitið skiptir þá máli þá passa þær að kaffa fari ekki úr böndunum í græðgi sinni og nautnum.
Venus týpur hafa aðlaðandi augu, hár og húð, sem glóir. Hendur þeirra eru vel formaðar, viðkvæmar og án djúpra lína. Kynlífsorka þeirra er sterk og þeir hafa mjúkar línur, meira að segja menn. Þó hafa þeir styrk og mikið þol og mikla og jafna lífsorku.
Venus týpur búa við góða heilsu og lifa lengi. Þær elska að vera til. Þeir leggja sig fram við að vera í formi en gætu fests í ytri fegurð frekar en raunverulegri heilsu. Þeir reyna að vera unglegir, þó það þýði að ganga verði svo langt að fara í skurðaðgerðir, nota andlitsfarða eða hvaða leiðir sem mögulega bjóðast.
Ef líkamleg ójafnvægi rísa hjá Venus týpum þá er það yfirleitt tengt æxlunarfærum eða sjúkdómum sem tengjast sjálfsnautnum, ofáti eða of miklum svefni eða of miklu kynlífi o.s.frv.
Andlega þá er Venus týpan mjög rómantísk en þó oft með smá hegóma í bland við það. Vandamál í samböndum eða sambandsslit hafa yfirleitt meiri áhrif á Venusinn heldur en á hinar týpurnar. Þeir er félagslyndir og vilja heldur gera hluti með öðrum, ef ekki bara fyrir útlit þess. Þeir eru yfirleitt næmir og geta verið nokkuð berskjaldaðir, sérstaklega ef ekki fer vel um Tunglið í kortinu þeirra. Þeir hafa mikið og litríkt ímyndunarafl, dreyma mikið og hafa mikla sköpunarhæfileika og þrá.
Venus týpurnar elska þægindi og glæsileika. Þær vilja skreyta sig og punta. Þær njóta fallegra skartgripa og fallegra heimila og eru oft færir í viðskiptum og sölu. Þeir hafa sterka tilfinningu fyrir formi og línu og geta orðið góðir hönnuðir eða listamenn. Eins og aðrar Kaffa týpur þá geta þær auðveldlega hellt sér út í að safna að sér auðæfum og eignum og jafnvel listmunum. Þó fjárfesta Venus týpur meira í slíku vegna félagslegs status heldur en vegna verðgildis. Líf þeirra gengur út á að öðlast og halda utan um góðan orðstýr sinn og viðhorf annarra. Þær vilja leiða aðra en aðallega til að heilla þá frekar en til stjórnunar eða dominera.
Venus týpur er yfirleitt siðprúðar og búa yfir raunverulegri helgun og ást. Spiritual leit þeirra einkennis yfirleitt af leið helgunar og heilagrar ástar (Bhakti Yoga) og eins Tantra Yoga. Þeir laðast að sálfræðilegum iðkunum og margir stjörnuspekingar hafa sterkan Venus.
SATÚRNUS TÝPAN
Satúrnus týpan eru minnst aðlaðandi af plánetu týpunum. Hún ber vata dósju (loft og rýmis frumefni náttúrunnar) líkamsbyggingu en er yfirleitt of há eða of lág, of mjó eða beinaber. Hún gæti haft stórt nef eða stórar tennur og með bil á milli þeirra. Hendur hennar og fætur eru oft of stórar til að fagurt geti talist. Húð hennar er oft þurr, hörð, brotin og dökk eða með vott af svörtu. Hár og neglur hennar er jafnan stökkar eða klofnar. Hins vegar ef Venusar áhrifa gæta hjá Satúrnus þá getur hún borið ákveðna fegurð eða dulúð þó hún haldist yfirleitt í grennri og þurrari kantinum.
Satúrnus týpan eru líklegust til að fá sjúkdóma af plánetu týpunum. Hún hefur oft lítinn lífskraft og þol. Hún er í kaldari kantinum, í bæði skapgerð og raunverulegum líkamshita og hefur bæði lata blóðrás og meltingu. Hún þjást oft af harðlífi og á tilhneigingu á að safna eiturefnum í líkamanum. Þegar Satúrnus er veikburða í kortinu, leiðir það oft til krónískra sjúkdóma og í versta falli stutts æviskeiðs. Illa farnar Satúrnus týpur (af veikburða Satúrnus) eiga það til að fá gigt og taugasjúkdóma en að sama skapi gefur sterkur Satúrnus langlífi og sterka burði til að viðþola hvers kyns mótlæti eða sjúkdóma.
Andlega er Satúrnus týpan sú alvarlegasta. Hún er í besta falli praktísk og raunsæ en í verstu mynd sinni svartsýn og jafnvel þunglynd. Hún er yfirleitt einræn og jafnvel feimin og annað hvort sjálfselsk eða tilfinningalega óbundin. Hinir mörgu erfiðleikar sem hún mætir í lífinu getur gert hana tillitslausa gagnvart þörfum annarra. Hún getur verið nánasarleg eða útsmogin. Vegna þess hversu erfitt er fyrir Satúrnus týpuna að öðlast gnægtir þá er hún óviljug til að deila því sem hún á eða láta frá sér.
Satúrnus týpan á tilhneiginguna til að hafa áhyggjur, fyllast hræðslu, brosa sjaldan og er sjaldan virkilega hamingjusöm og kát. Þó hún vinni harðast og mest þá endar hún yfirleitt í þjónustustörfum og öðlast sjaldan þá viðurkenningu sem hún raunverulega á skilið.
Það er hægt að finna mýkri mynd Satúrnusar týpunar, sérstaklega ef það gæta áhrifa frá Venus eða Merkúr. Þessir einstaklingar geta orðið frábærir læknar, listamenn, heimspekingar og bera styrk og dugnað Satúrnusar en fallegustu eiginleika Satúrnusar eins og óeigingirni og helgun. Æðri Satúrnus týpurnar eru yogar, meinlætafólk, munkar eða nunnur sem afsala sér veraldlegum þætti tilveru okkar og leita sér einveru og friðar. Þeir bera með sér óháðar tilfinningar til veraldlegrar tilveru lífsins og óháðir sveiflum tilfinninga og ytri áhrifa. Að vissu leyti eru þeir eru yfir heiminn hafnir. Lægri Satúrnusar týpurnar eru glæpamennirnir, einvaldar og undirheimarotturnar (sérstaklega ef Mars hefur áhrif á Satúrnusinn). Þessir einstaklingar eru taugatrekktir, gráðugir og sjálfselskir. Þeir eru fastir innan eigin fávisku og fastir í líkamanum.
MARS TÝPAN
Mars týpan táknar neikvæða hlið pitta (eld frumefni náttúrunnar) dósjunnar og eldsorkunnar sem gerir Marstýpuna hneigðar til öfga og eldtengdra ójafnvægja. Ef Sólar týpan er þurra eldtýpan sem viðheldur góðum meltingarkrafti, þá er Mars týpan raka eldtýpan. Þessi raki getur skapað veikleika í meltingu þeirra og tilhneigingu til sýkinga. Hún getur átt við ójafnvægi að stríða vegna of mikils galls eða sýru í líkamanum. Það rennur hiti um æðar hennar og hún safnar samt auðveldlega eiturefnum í skrokkinn á sér. Vegna raka í kerfinu tekur Marstýpan kaffa dósjuna með (vatns frumefni náttúrunnar).
Mars týpan hefur miðlungsbyggingu með góða vöðva. Andlitsdrættir hennar eru oft skarpir og hún hefur rauðleita en feita húðgerð. Augu hennar eru viðkvæm og sérstaklega fyrir áreiti eða birtu. Blóðrás hennar er kraftmikil en hún á það til að merjast eða blóðgast auðveldlega. Hún hefur sterka meltingu og þorsti hennar er mikill og sterkur.
Mars týpan hefur mikla orkubirgðir og á sér löng tímabil góðrar heilsu. Hún er alla jafna sterkar og hafa mikið ónæmi en líklegri til að þróa með sér ójafnvægi og sjúkdóma vegna óheilbrigðis í lifnaði. Hún á það til að leita í öfga í neyslu matar og drykkja, kjötneyslu, of miklu kryddi og salti, djúpsteiktum mat eða áfengisneyslu og reykingar. Lifrin er yfirleitt veikbyggðasta líffærið og getur hún fengið lifrarbólgu, skorpulifur eða of háan blóðþrýsting. Mars týpan er líka því miður einna hættast við slysum og erfiðum sjúkdómum, yfirleitt vegna síns eigin fljótfærnis eða oflætis. Hún gæti lent líffæramissi, sérstaklega ef Mars og Satúrnus sitja saman í kortinu.
Mars týpan er andlega vakandi, krítísk og rifrildagjörn. Hún er hugrökk, ögrandi og ævintýragjörn. Hún er sérlega fær í rökræðum og yrði fær í lögfræði. Hún hefur sterka rökhyggju en oftar en ekki leiðir reiðin rökin hennar meira en réttlætiskenndin. Hún elskar að sigra og þolir ekki að tapa. Andlega getur hún skapað sér ójafnvægi og vandræði með reiði, afbrýðissemi og hatri.
Mars týpan er hins vegar afar traustur vinur og vil mynda sér bandalög. Hún virkar betur í hópvirkni og nýtur sín þar sem viss goggunarröð ríkir og sérstaklega þar sem hún getur leitt og haft valdið sín megin. Hún býr yfir mikilli ástríðu en getur verið eigingjörn. Kynorka hennar er sterk og mikil en ekki alltaf fáguð eða vönduð. Hún á það til að gerast öfgafull og að brenna sjálfa sig upp.
Mars týpan hefur sterka tilfinningu fyrir aflfræði og oft góð í vísindum, rannsóknum, vélavinnu, tækjavinnu eða hvers kyns vinnu með vopnum. Hún nýtur sín einnig í lögfræði- , her- eða á lögreglu tengdum sviðum. Læknissvið eins og skurðlækningar og sálfræði gæti einnig hentað henni vel. Æðri Mars týpa er einnig til. Þær eru agaði og næmi yoginn og andlegi bardagamaðurinn. Þessar æðri Mars týpur eru óeftirlátssamar við sig og harðar í leit sinn að sannleika og æðri tilveru. Þær kunna að stjórna hugsun sinn og hafa gríðarlegan vilja til umbreytinga og þroskaferlis.
RAHU TÝPAN
Rahu týpan býr yfir vissum dul og ófyrirsjáanleika, rétt eins og skuggsælt eðli Rahu bendir til. Rahu er skuggapláneta Tunglsins (tilfinningarnar) sem skyggir á hreinleika tilfinningana og skapar þennan dul og visst skilningsleysi sem rýkir í garð þeirra. Rahu týpuna er erfiðast að skilja og reikna út. Það er eins konar ský í kringum hana sem getur verið aðlaðandi og dularfullt en getur líka virkað eins og skuggi sem hefur truflandi áhrif.
Rahu týpan eru yfirleitt vata í líkams og hugargerð og ef Rahu hefur á sér Satúrnusar eða Venus áhrif getur það gefir óvenjulega eða dökkleita fegurð. Rahu týpan eru yfirleitt grannvaxin og ör í hreyfingum, með viðkvæmt tauga og meltingarkerfi. Hún er ekki að fullu grundvölluð í líkama sínum og getur virst út úr heiminum eða sambandslaus. Ónæmiskerfi hennar er líklega veikburða og hún er líklegri en hinar plánetutýpunar til að fá smitsjúkdóma, hrörnunarsjúkdóma eða taugasjúkdóma. Hún þjáist oft af svefnleysi og fær jafnan martraðir.
Andlega þá eru Rahu týpan yfirleitt afar greind, með sterkt innsæi og afar skapandi en á óvenjulegan háttt. Hún á það til að vera tætt og sífellt gráðug eða fullar af óskum sem seint verður fullnægt. Þó hún sé yfirleitt fær í að skapa nýjar hugmyndir þá gengur henni ekki sem best til að fá þær til að virka eða komast í framkvæmd.
Tilfinningalega eru hún sveiflótt, kenjótt og breytileg. Hún sýnir ofgnótt af egói og jafnvel hroka en hefur í raun lítið af raunverulegu sjálfsáliti. Hún á það til að þjást af hégóma og hefur óraunhæfar langanir. Hún á meiri tilhneigingu en hinar týpurnar til að þjást af tilfinningalegum vandamálum.
Rahu týpunni finnst gaman að hafa ankannaleg áhrif á aðra og njóta sín í listum, hönnun, leiklist og tónlist. Hún stendur sig betur á nýaldar vettvangi þar sem “cutting edge” nýjunar eiga sér stað og róttækar breytingar. Hún er fær í að vinna með fjölmiðla og fjöldann sem er týpískt Rahu viðfangsefni. Henni gengur vel að vinna með þeim utangátta, misskildu, útlendu eða í útlendum fyrirtækjum og búa oft langt frá fæðingarstað og áhrifum hans.
Rahu týpan eru metnaðarfull og vil koma miklu í verk, þó að henni misheppnist oft einföldustu verkin og gangi auðveldlega fram af sér. Þegar hún svo öðlast mikla veraldlega velgengni þá fyllast hún yfirleitt vonbrigðum því hún er týpan sem alltaf vil aðeins meir eða aðeins öðruvísi eða það sem einhver annar á.
Á skyggnisviðinu þá eru Rahu týpan stundum á dularfullan hátt undir stjórn einhvers; hvort sem eru ófullnægðar þrár frá öðrum lífum það, önnur vera, álög eða einfaldlega eigin ímyndunarafli. Þó að Rahu týpan laðist mikið að dular- og andlegum málum þá getur það verið henni hættulegt þar sem hún eru næm fyrir ójarðneskri orku. Hún getur auðveldlega orðið miðill en eru fljót að týnast og fyllast ranghugmyndum um hvað hún er að gera. Hún hefur oft mikinn heilunarkraft og mikla samúð og getur verið afar helguð málstað sínum. Þó hún hafi áhuga á stjörnuspeki þá hefur hún minni hæfileika til stærðfræðiþáttar hennar en stendur sig ágætlega í þættinum sem kemur að innsæinu.
KETU TÝPAN
Ketu týpan eru svipuð Mars týpunni og eru yfirleitt pitta líkamsgerð. Hún er miðlungs í hæð og byggingu, taugatrekkt, skorin og vöðvastælt, grönn en þó í heitari kantinum. Hún tekur einnig með sér Vata dósjuna sem gerir hana granna, taugaveiklaða, þurra og með hraðan efnaskiptahraða.
Augu hennar eru sérstaklega stingandi og rannsakandi. Blóðflæði er sterkt en hún á tilhneigingu til húð ójafnvægja/sjúkdóma, magasára, hás blóðþrýstings og jafnvel söfnun eiturefna í blóði og vessum líkamans. Hún á hættu á að fá taugavöðvasjúkdóma og gæti vantað samhæfingu. Hún á hættu á slysum og gæti þarfnast skurðaðgerða einhvern tímann á lífsleiðinni. Hún verður því miður oft fyrir barðinu ofbeldi, stríði og öðrum hamförum. Ketu áhrifin eru aldrei auðveld.
Andlega eru Ketu týpan sjálfsstæð í hugsun en fær oft áráttu á einhverju málefni eða verkefni sem getur orðið að þráhyggju. Hún er töluvert lokuð og inní sér og hefur mikla einstaklingshyggju að það jaðar við sérvisku. Hún fer eigin leiðir og gæti barist gegn þjóðfélagsins reglum og áhrifum. Hún gæti helst þá lítilllækkað sig með því að fylgja lægri þjóðfélagsáhrifum. Hún þolir enga gagnrýni og bregst hart við í vörn. Hún hefur lítið sjálfsálit, mikinn sjálfsefa og stundar töluvert af sjálfsniðurrifi. Þó er hún oft á sama tíma tilfinningalega sjálfselsk, ófáanleg og ótillitssöm.
Við finnum Ketu týpuna í hernum, lögfræði eða lögreglu en hún er yfirleitt meira í rannsóknarhlutverkum eða í vinnu á bak við tjöldin. Hún er einnig góð í vísindum og stærðfræði og sérstaklega í tölvuvinnu. Hún er heilluð af fortíðinni og gera góða sögukennara, fornleifafræðinga og landafræðinga. Ketu týpan hefur snerpu og næmni í hugsun og gríðarlega og stingandi greiningarhæfni. Hún er góð í að einbeita sér og svo góð að hún getur í leiðinni gleymt öllu öðru. Hún er best í að stúdera abstrakt og það ógreinilega og flynk að finna leiðarljósið og jafnvel í myrkrinu.
Ketu týpan er fær til stjörnuspeki og hefur skyggnigáfu. Hægt er að finna Ketu týpuna í andlegum málefnum og hefur hún yfirleitt mikla þekkingu á dularmálum þessa heims. Æðri Ketu týpurnar eru yogar (Jnani) og bera mikla andlega visku og uppljómun. Þær sjá í gegnum allt og tálsýn umhverfis okkar og geta auðveldlega farið eigin leiðir óháð ytra umhverfi.
Þær eru færar að sjá í gegnum og umfram egóið. Þær eru ekki alltaf virtar fyrir framlag sitt en finna hamingju í eigin verkefnum og iðjum.


