Smástirnin
Smástirnin eru undirflokkar stjörnumerkjanna og veita nánari innsýn í áhrif plánetanna á persónuleika okkar og karakter. Smástirnin eru 27 talsins og byrja í fyrstu gráðu hrúts og enda undir lok fisksins. Þau er misjákvæð rétt eins og stjörnumerkin, bera með sér áhrif ráðandi plánetu þeirra og ráðandi gyðju eða guði. Eins bera þau vott áhrifa frá umhverfi sínu, þ.e. ef smástirni situr undir meyjusvæðinu þá tekur það eðlilega til sín áhrifa Merkúrs sem ræður þar ríkjum og hefur ávallt eitthvað til málanna að leggja.
Fyrsta af hinum tuttugu og sjö smástyrnum kallast Aswini og býr innan marka hrútsins. Mars ræður ríkjum yfir hrút en Ketu er ráðandi pláneta yfir Aswini svo hér fáum við áhrifablöndu frá þeim báðum saman. Aswini fólk er því orkumikið, þrautseigt, kraftmikið og hefur mikinn lífsþorsta. Sakleysi og leikur eru sterk einkenni en einnig óbugaður innblástur og kraftur til að skoða hið nýja og óþekkta.
Táknmynd Aswini er hesthausinn og uppistendur af þremur stjörnum í höfði hrútsins; þær kallast Mesarthim, Al Sharatain og Hamal. Kraftur og þol hestsins og þrjóskan einnig eru sterk eðliseinkenni Aswini. Það er hægt að sjá sömu reisn og fegurð hjá Aswini fólki eins og sést í frjálsum hesti á hlaupum.
Frægt fólk undir áhrifum Aswini: Geena Davis, Jerry Lewis, Prince Charles.
2. Bharani – er kölluð “Stjarna mótspyrnu”
Annað smástirnið kallast Bharani og býr einnig innan veggja hrútsins. Mars ræður ríkjum yfir hrút en Venus yfir Bharani svo hér fáum við áhrifablöndu frá þeim báðum saman. Bharani fólk hefur því mikinn sköpunarkraft, kynþokka og Bharani er mikil rás fyrir listræna hæfileika. Mikil kynorka og kynþörf er undir þessum áhrifum Mars og Venus. Bharani þýðir einnig “Hún sem ber” sem bendir til þess að þessir einstaklingar þurfa þrautseigju, duglega vinnusemi og aga. Andleg dýpt og áhugi fyrir yoga iðkun eru algeng undir þessum áhrifum í korti. Það gæti verið þörf hjá þessum einstaklingum að stunda strangleika og meinlæti til að uppskera frumstæðan sköpunarkraft þessarar orku. Bharani hefur nefnilega kraftinn til að hreinsa og fjarlægja hvers kyns andleg eða líkamleg óhreinindi.
Táknmynd Bharani er hið svokallaða yoni eða kvenæxlunarfærin en önnur táknmynd er leirskál sem er sögð í goðsögnum halda utan um sköpunarkraftinn sem hér býr.
Frægt fólk undir Bharani áhrifum: Karl Marx, Carlos Castaneda, Elton John.
3. Krittika – er kölluð “Stjarna eldsins”.
Þriðja smástirnið kallast Krittika og býr undir lok hrútsins og byrjun nautmerkisins. Sólin hefur ráðandi áhrif undir Krittika og því hefur Krittika fólk hinn ákveðna og dugmikla vilja til að öðlast það stórfenglega. Krittika fólk hefur mikla leiðtogahæfileika, kraft og vald. Krittika berst fyrir félagsmálum og er hinn spiritúal badagamaður. Krittika endurspeglar innblástur til radískra breytinga í bæði persónulegu lífi og þjóðfélaginu í heild sinni.
Táknmynd Krittika er logi, rakhnífur eða önnur hvöss vopn. Það er lýsandi fyrir kraftinn sem Krittika hefur til að brenna burt hvers kyns neikvæði til að komast að dýpstu og hreinustu mynd sannleikans.
Frægt fólk undir Krittika áhrifum: Bob Dylan, Frida Kahlo, Jimmy Hoffa.
4. Rohini – er kölluð “stjarna uppferðar”
Fjórða smástirnið kallast Rohini sem býr innan veggja nautmerkisins. Tunglið er ráðandi pláneta Rohini en nautsmerkið er undir ráðum og leiðsögn Venusar og þar af leiðandi er Venus Tungl blandan hér sem leiðir af sér töfrandi karakter með mikla sköpunarhæfni. Rohini fólk ber með sér töfra, lystisemdir, mikla fegurð og karisma. Rohini er nefnd “stjarna uppferðar” og leiðir til áhrifavalda innan þjóðfélagsins og einstaklingar fæddir undir Rohini eru oft undir augum almúgans. Nautið er jarðarmerki og táknar að uppskeru gjörða okkar sé að fullu upplifað innan Rohini. Eins getur listræn tjáning og veraldlegar óskir okkar séð dagsins ljós. Rohini fólk hefur mikinn andlegan styrk.
Táknmynd Rohini er oc cart eða chariot og lýsir þörf Rohini fólks til ferðalaga og hreyfingar.
Frægt fólk undir Rohini áhrifum: Fred Astaire, Mick Jagger, Burt Reynolds.
5. Mrigashira er kölluð “Stjarnan leitandi”
Fimmta smástirnið Mrigashira er skipt til helminga á milli nautsins og tvíburans.
Ráðandi pláneta hennar er Mars, sem bendir til andlegs bardagmanns sem leitar sannleikans. Sá stórkostlegi stjörnuspekingur Dr. D.V. Raman og sonur hans líka hafa Tunglið sitt í þessu fallega smástyrni. Djúp andleg greind og rannsóknar hæfileikar eru afar fágaðir hjá fólki með sterkt Mrigashira á rísanda eða Tungli.
Fyrsti helmingur Mrigashira er undir nautinu og skapandi áhrifakraftur Venus plánetu hér gefur þessum einstaklingum færnina til að koma hugmyndum sínum í veraldlega mynd. Ljóðrænn eða tónlistar hæfileiki er séður hjá þessu fólki. Þetta smástyrni gefur falleg, skapandi og greind börn sem geta fært Mrigashira fólki veraldlega velmegun. Seinni hluti Mrigashira er í tvíburanum. Skriftir, ræðuhöld og áhrifaríkur og sannfærandi talsmáti getur gert vart við sig undir þessum hluta Mrigashira. Eins er fólk undir þessum hluta Mrigashira forvitið, sniðugt og rannsakandi í eðli sér.
Táknmynd Mrigashira er Dádýrið en nafnið sjálft þýðir “dádýrsandlit” og þetta gefur þessu fólki alla augljósa dádýrseiginleikana eins og leitandi, óframfærni, viðkvæmni, flöktandi hugsun os.f.rv.
Frægt fólk undir áhrifum Mrigashira: Pamela Lee Anderson, Brooke Shields, Goldie Hawn.
6. Ardra – er kölluð “Sá raki”
Sjötta smástirnið kallast Ardra og býr innan veggja tvíburamerkisins. Þó að ráðandi plánetan sé Rahu þá er ráðandi Merkúr yfir tvíburanum áberandi einnig og þar af leiðandi leiðir það af sér djúpt leitandi eðli í blandi við ástríðablandna hugsun. Kraftur og afl Ardra er áreynsla, sérstaklega að öðlast gróða í lífinu í gegnum erfiði. Þessir erfiðleikar geta fært manni mikil verðlaun en ekki án þolrauna og töluverðrar heppni. Þetta smástyrni tengist eldmikilli virkni, lífsgleði og þrá til að þenja sig út og mikla.
Táknmynd Ardra er tárdropi og er henni lýst sem grænni, ferskri, mjúkri, blautri og “skýnandi eins og gimsteinn”. Ardra lýsir skýrleikann sem maður upplifir eftir regnsúg eða þrumur Rudra eða tár sorgarinnar.
Frægt fólk undir Ardra áhrifum: Albert Einstein, Hilary Clinton, Babe Ruth.
7. Punarvasu – er kölluð “Sjarna endurnýjunar”
Sjöunda smástirnið kallast Punvarvasu og býr aðallega innan tvíburamerkisins.
Júpiter er ráðandi pláneta Punarvasu þó auðvitað séu sterk Merkúr áhrif í fyrstu þremur hlutum hennar sem eru innan tvíburamerkisins. Þessi blanda Merkúrs og Júpiters gefur mikla greind og þá sérstaklega fyrir spiritúal vísdóm. Punarvasu fólk nýtur gríðarlegrar velgengni á hverskyns samskiptasviði vegna blöndu Merkúrs og Júpiters. Dýratákn hennar er kvenkyns kötturinn sem lýsir viðkvæmni þessa fólks en þörf þeirra fyrir sjálfsstæði.
Táknmynd Punarvasu eru titrandi örvar sem endurspeglar færni Punarvasu til að koma af stað gróðrasömum verkefnum.
Frægt fólk undir Punarvasu áhrifum: Arnold Schwarzenegger, Jerry Brown, Bill Gates.
8. Pushya – er kölluð “stjarnan nærandi”
Áttunda smástirnið kallast Pushya og býr innan marka krabbamerkisins. Ráðandi pláneta er Satúrnus sem færir stöðugleika og leyfir sköpunargáfunni að þroskast í alveg ný form. . Allt sem kemur að helgun og andlegri rækt er aðalatriði Pushya. Pushya fólk býr yfir vakandi rósemi, trú á sjálfan sig og öðlast gnægtir lífsins vegna góðra samskipta Satúrnusar og Júpiters. Pushya eykur við jákvæðar tilraunir okkar og gefur gott karma í gegnum dugnað og aga.
Táknmynd Pushya er Blóm, hringur eða örvar. Blómið táknar “ferli blómstrunar” sem er upplifað hér.
Frægt fólk undir Pushya áhrifum: Al Gore, Al Pacino, Prince Charles.
9. Aslesha – er kölluð “Dáleiðslu stjarnan”
Níunda smástirnið kallast Ashlesha býr eingöngu innan marka krabbamerkisins. Merkúr er ráðandi pláneta hér og Tunglið ráðandi yfir krabbanum svo hér koma tvær afar huglægar plánetur saman og skapa mjög þenkjandi einstaklinga með sterkt huglægt eðli. Ashlesha fólk er heimspekisinnað, hugsandi, grípandi og ber yfirleitt mikla greind. Ashlesha fólk er einrænt, siðvant og sjálfsstætt. Það er athyglisvert að sjá að karlkyns köttur er dýra táknið fyrir Ashlesha þar sem þessir eiginleikar allir eru auðsjáanlegir í kattardýrum, eins er hægt að sjá nautnafulla, tælandi og aðlaðandi eiginleika.
Táknmynd Ashlesha er uppvafinn snákur og táknar kundalini orkuna sem rennur upp mænuna í okkur og á uppruna sinn neðst í mænunni. Þegar kundalini orkan er virkjuð færir það okkur mikinn spiritúal kraft og margeflir möguleika okkar á uppljómun. Snákurinn er tákn guðlegrar visku, frjósemi, kynhneigð, velmegun, hættu, vandræði og óvæntar árásir. Í Ashlesha verður að virða og beisla orku snáksins. Ashlesha hefur færnina til að lama óvini sína og keppinauta með dáleiðandi augnaráði
Frægt fólk undir Ashlesha áhrifum: Marilyn Monroe, Whitney Houston, Barbra Streisand.
10. Magha – er kölluð “Stjarnan konunglega”
Magha er tíunda smástirnið og markar byrjun ljónsmerkisins. Ketu er ráðandi hér og er eldmest allra plánetanna. Magha fólk getur verið eldheitt og brennandi eins og efitirmiðdagur undir hásumri eyðimerkursólar. Eldhiti tengist yfirvaldi á margan hátt. Yfirvald getur annað hvort stuðlað að leiðsögn undir auðmýkt og örlæti en eins framleitt miskunnlausa einvalda sem eru blindaðir af valdi sínu og yfirráðum.
Einstaklingar með Magha á rísandanum eða sterk Magha áhrif er auðvelt að koma auga á vegna glæsilegrar framkomu. Magha fólk hefur miðlungs byggingu og ljónslegt höfuð og þungan líkama. Það hefur vissan hroka í hegðun sem gerir það stundum að það getur verið misskilið. Þeir taka höndum saman við ættlegg forfeðra sinna og finna til mikls stolts frá og af því að tilheyra. Magha fólk eru yfirleitt einstaklega örlátt við þá sem standa þeim neðar í lífinu á hvers kyns hátt. Til að viðhalda innri frið er þeim mikilvægt að fylgja sterkum siðferðislegum reglum og hugmyndum. Magha fólk hefur yfirleitt sterkar tilfinningar til að viðhalda og stækka fjölskyldu í gegnum afkvæmi sín. Magha fólk hefur miklar væntingar til afkvæma sinna og vil að það færi allri fjölskyldunni bæði stolt og góðan orðstýr.
Magha fólk hefur stórt hjarta og afar helgað fólkinu sem það elskar. Þeir virða hefðir og þá jafnvel ættarhefðir og skyldur. Magha fólk er eins og þýðing nafnsins ber með sér, kraftmikið og stórt í hjarta og gjörðum sínum.
Táknmynd Magha er kórónan en hún lýsir krafti, status, virðingu, konungsbornu o.s.frv.
Frægt fólk undir áhrifum Magha: Maharishi Mahesh Yogi, ParamhansaYogananda, Jodie Foster.
11. Purvaphalguni – er kölluð “Gleði Stjarnan”
Ellefta smástirnið kallast Purvaphalguni og býr innan marka ljónsins. Ráðandi pláneta er Venus svo hér fáum við Sólar Venus áhrif sem aðeins getur gefið þessu fólki ástríðu- og nautnafullt eðli. Purvaphalguni fólk er unglegt í anda, kærulaust, kátt og ástríkt. Hér er yfirleitt séð mikil ást á tónlist, dansi, leiklist og félagslífi og Purvaphalguni fólk getur heillað hvern sem er uppúr skónum.
Táknmynd Purvaphalguni er Hengirúm sem er táknrænt fyrir hvíld og uppbyggingu. Purvaphalguni fólk vil hafa það gott og nýtur sín í þægindum og rólegheitum umfram allt.
Frægt fólk undir Purvaphalguni áhrifum: John Travolta, Madonna, Robert Redford.
12. Uttara Phalguni – er kölluð “Stjarna stuðning og hollustu”.
Tólfta smástirnið kallast Uttaraphalguni og býr í skotti ljónssins en teygir sig yfir í meyjuna. Ráðandi plánetan hér er Sólin og gefur Uttaraphalguni fólki heiður, göfuglyndi og einstakling sem er fylgin reglum þjóðfélagsins. Uttaraphalguni fólk getur létt undir og fjarlægt þjáningar mannkyns og hjálpað vini í þörf. Þetta smástirni tengir inná vináttu, hjálplegar tilhneigingar og ástríkt eðli. Það hefur aflið til að gefa velmegun í gegnum hjónaband eða samvinnusamband. Hér sér maður góðmennsku og samúð til mannkyns. Þessir einstaklingar eru yfirleitt glaðlegt fólk, elskaðir af öllum vegna örlæti og gleði sinnar. Þeir öðlast fjárhags og velgengni í gegnum hefðbundna menntun og að prófa sig áfram í lærdómi. Þetta smástyrni skapar leiðtoga á sínu sviði, hvert sem það er hjá hverri manneskju, sem eru stöðugir og öruggir með marga fallega eiginleika.
Hugrekki, þol, metnaður og bardagi fyrir réttlæti er oft séð undir Uttaraphalguni.
Táknmynd Uttaraphalguni er rúm eða tvær aftari fætur af rúmi. Það bendir mestmegnis við tengingu hennar við smástyrnið á undan sem ber táknmynd í hluta við þessa.
Frægt fólk undir Uttaraphalguni áhrifum: Warren Beatty, Shirley McClaine, Tiger Woods, Sean Connery.
13. Hasta – er kölluð “Stjarna grípandi afls”
Þrettánda smástirnið kallast Hasta og býr innan marka meyju merkisins. Ráðandi pláneta Hasta er Tunglið en Merkúr ræður yfir meyjunni svo við fáum áhrifablöndu þessa tveggja pláneta. Þar af leiðandi kemur mjög huglægt eðli hjá þessu fólki; mikla skapandi greind og fallegan og sterkan talandi eða tjáningu. Hasta fólk einkennis af hreinleika í hugsun og mikilli sjálfsstjórn. Hasta fólk hefur yfirleitt þægilega nærveru og húmoríska nálgun. Eins er það flinkt í listum og hannyrðum. Hasta gefur færnina til að ná til markmiða sinna á algjöran og skjótan hátt. Hasta fólk er alltaf duglegt, afkastamikið og hefur mikla þjónustulund. Kraftmikil heilunargreind sem fjarlægir fáfræði er séð innan Hasta. Meyjan er sjálf klassískt heilunarmerki. Hasta stuðlar að hugleiðslu, yoga og öðrum praktískum leiðum sjálfsumbóta.
Táknmynd Hasta er hendi eða lófi sem uppistendur af fimm stjörnum innan stjörnumerki Krákunar. Hægt er að sjá Hasta á himnunum sem opna hönd sem gefur blessun sína yfir mannkynið.
Frægt fólk undir Hasta áhrifum: Sonny Bono, Jacques Cousteau, Richard Burton.
14. Chitra – er kölluð “Stjarna tækifæranna”
Fjórtánda smástirnið kallast Chitra og býr á landamærum meyju og vogar. Chitra þýðir “sá snjalli” eða “sá bjarti” eða “sá fagri” og endurspeglar hina margbreytilegu liti sem eru séðir í skini hvítrar stjörnu. Chitra þýðist einnig sem listaverk. Listrænn hæfileiki og hæfileikin til að skipuleggja umhverfi og hluti á skapandi hátt er séður hjá Chitra fólki. Chitra fólk er yfirleitt mjög aðlaðandi, heillandi og hefur mikla og töfrandi orku í kringum sig. Chitra fólk er skemmtilegt að tala við. Það klæðir sig í bjarta og fallega liti og er yfirleitt duglegt við að bera skartgripi og annað skraut. Chitra laðast að blómum, blómaskreytingum eða öðrum náttúrulega fallegum hlutum. Chitra er flokkað sem mjúkt smástyrni og áhrif Chitra eru stórkostleg til sköpunar í listum, sérstaklega tónlist, dansi og leiklist.
Táknmynd Chitra er perlan sem táknar hinn guðlega anda innra með okkur.
Frægt fólk undir Chitra áhrifum: Evander Holyfield, Jim Lewis og Ramana Maharishi.
15. Swati – er kölluð “Stjarnan sjálfshreyfandi”
Fimmtánda smástirnið kallast Swati og býr eingöngu innan marka vogarmerkisins. Ráðandi pláneta Swati er enginn annar er karmadrekinn Rahu sem er loftkennd og óútreikanleg pláneta. Vogin er einnig loftmerki og þessi miklu loftáhrif gerir Swati fólk létt, flögrandi og breytilegt í eðli sér. Swati þýðir “Sverð” og endurspeglar þarfar Swati fólks fyrir sjálsstæði. Swati fólk hefur blíðlegan talanda, mikla samúð og siðferðiskennd.
Táknmynd hennar er lítill plöntuvísir sem feykist í vindinum. Swati fólk hefur mikla færni til að beygja sig og sveigja eftir vindum og veðrum.
Swati endurspeglar agaða orku og mikinn samskiptakraft sem hefur færni til að hafa áhrif á aðra. Þetta fólk er oft viðskiptalega þenkjandi og sniðugt í skiptum og verslun. Swati fólk er námsglatt og af því lýsir mikil ástríða fyrir lífinu. Önnur táknmynd Swati er Kórallinn sem lýsir miklu innsæi og skyggnihæfileikum. Orðið Swati hefur líka verið þýtt sem prestur og einstaklingar undir áhrifum þess er oft vel að sér í guðfræði. Swati fólk er lítillátt, samúðarfullt og samskipti þess einkennis af nærgætni og tillitssemi. Eðli Swati sýnir sjálfsstjórn og viljan til að gera það sem er rétt í hverri stöðu. Swati fólk er yfirleitt örlátt og gjafmilt við fólk sem vinnur við trú eða andleg mál. Þar að auki er hin guðdómlega Saraswati, gyðja lærdóms einnig tengd við Swati.
Frægt fólk undir Swati áhrifum: M.K. Gandhi, James Dean, Nelson Rockefeller.
16. Vishaka – er kölluð “Stjarna tilgangs”.
Sextánda smástirnið kallast Vishaka og býr aðallega innan vogarmerkisins. Júpiter er sú pláneta sem er ráðandi yfir þessu smástyrni og gefur Vishaka fólki lífsgleði, trú, bjartsýni og von fyrir framtíðina. Það gefur kraftinn til að uppskera marga ávexti í lífinu. Vishaka er séð í gegnum plægingu, sáningu og að lokum uppskeruna. Vishaka fólk hefur þolinmæði, þrautseigju og staðfestu til að vinna hvert verk. Sálir í þessu smástyrni eru hugrakkar en upplifa mikla velgengi á síðari hluta ævi sinnar. Sterkt Vishaka einkenni er að setja sér markmið, fyllast þráhyggju til að nálgast það, komast á leiðarenda og þá aðeins til að setja sér nýtt markmið og breyta um stefnu. Gríðarleg framkvæmdarorka, styrkur og dugur er séður hjá Vishaka fólki.
Táknmynd Vishaka er stórt tré með útréttum greinum sem veita vernd. Það bendir líka til þess að maður smám saman vaxi í áhrifum með aldri og árum.
Frægt fólk undir Vishaka áhrifum: Alexander hinn mikli, Napoleon Bonaparte, Clint Eastwood.
17. Anuradha – er kölluð “Stjarna velgengni”
Sautjánda smástirnið kallast Anuradha og er öll innan sporðdrekans. Ráðandi pláneta er Satúrnus sem lýsir þeim spiritúal raunum sem rísa í Anuradha. Þetta smástyrni hefur einnig sterk Mars áhrif þar sem hún er staðsett undir miðju sporðdrekans en Mars orkan skapar hugrakkt og duglegt fólk sem elskar að ferðast á milli staða. Þeir geta búið í mörgum ólíkum löndum og öðlast mikla velgengni frá fæðingarstað sínum. Anuradha fólk býr yfirleitt við mikla lífsorku og góða heilsu. Sem stjarna velgengninnar getur Anuradha haft mikla skipulagshæfni og þá fyrir sjálfa sig og aðra sömuleiðis. Sá guð sem ræður yfir Anuradha er Mitra sem er Guð vináttu og félagsskapar sem skapar samvinnu manna á meðal. Mitra er sólarguð sem gefur samúð, helgun og ást.
Táknmynd Anurahda er lótusblómið sem lýsir færni og þrautseigju til að blómstra meðal erfiðleika og uppákoma lífsins.
Frægt fólk undir Anurahda áhrifum: Bruce Lee, Kevin Kline, Gerard Depardieu.
18. Jyestha – er kölluð “foringja” stjarnan” eða “sá elsti”.
Átjánda smástirnið kallast Jyeshtha sem inniheldur rauðu stjörnuna Antares sem er nálægt hjarta sporðdrekans. Merkúr er ráðandi pláneta hér og gefur huglæga snilld og greinandi hæfileika. Það er færni hjá Jyesha fólki til að rísa til hæstu hæða í virðingarstiga þjóðfélagsins og að ljúka við verkin í snilld. Skapandi snilld er að finna í Jyestha; Albert Einstein, Mozart og Beethove áttu öll tunglin sín í þessu smástyrni. Jyeshtha er staðsett innan sporðdrekans sem Mars ræður yfir. Blanda af krafti, sjálfsstæði og hættu tilfinningu eru upplifaðar hér. Jyeshta er foringja stjarnan og táknar það sem hefur yfirráð á marga vegu; það elsta, það öflugasta eða það sem á mesta hrósið skilið.
Táknmynd Jyeshtha er eyrnalokkur eða hringaður verndargripur.
Frægt fólk undir Jyeshta áhrifum: Bob Dylan, Herman Hesse, Albert Einstein.
19. Moola – er kölluð “Rótar stjarnan”
Nítjánda smástirnið kallast Moola og markar byrjun bogmannsins. Ráðandi yfir Moola er karmadrekinn Ketu og gefur Moola einstaklingum djúpt heimspekilegt eðli og spurula forvitna hugsun sem nýtur þess að kanna rætur allra hluta. Landamæri Moola liggja öll innan bogmannsmerksins, sem er undir ráðum Júpiter plánetu. Júpiter færir auð og þægindi svo alltaf eru möguleikar hjá slíku hjá þeim fæddum undir áhrifum Moola, sérstaklega þegar Júpiter er einnig sterkur í korti.
Moola táknar byrjun síðustu smástirnanna ef svo mætti að orði komast. Það bendir til spiritúal skilnings og hugsunar. Moola þýðist sem “rótin” og er táknað sem rótarknippi bundið saman. Bundnar ræturnar eru táknrænar fyrir hamlandi eiginleika Moola. Moola er það smástyrni sem markar enda veraldlegs lífs og upphaf þess spiritúal eða andlega. Moola er einnig kölluð rótarstjarnan, upphafsstjarnan eða frumstjarnan.
Frægt fólk undir Moola áhrifum: Dalai Lama, Priscilla Prestley, Jimi Hendrix.
20. Purváshada – er kölluð “Stjarnan ósigrandi”.
Tuttugasta smástirnið kallast Purváshada býr algjörlega innan veggja bogmannsins. Ráðandi plánetan er Venus sem bendir til vinsælda fólks sem fæðast undir þessari Purváshada. Júpiter er svo ráðandi yfir bogmannsmerkinu og tengist fílsguðinum Ganesha. Purváshada fólk eru mjög stoltir einstaklingar sem hafa bæði færnina til að hafa áhrif á fjöldann en einnig samúð og næmi til alls mannkynsins. Purváshada færir venjulega frægð, auðæfi, frjósemi og mikla visku. Ef Purváshada fólk nær að hreinsa burt lægra egoið getur það orðið mjög andlega og heimspekilega þenkjandi. Þeirra megin markmið er Moksha eða uppljómun. Þeir bera með sér sterka þörf til að stöðugt bæta lífsskilyrði sín. Purváshada færir hreinsun og endurnýjun í gegnum sigra á fyrri part lífsskeiðs. Gott dæmi er ungi gólfsérfræðingurinn Tiger Woods sem hefur Sólina sína í þessu smátyrni. Þetta fólk ber með sér mikið sjálfsstæði og á marga vini sem styðja við markmið þeirra.
Táknmynd Purvashada er
Frægt fólk undir Purvashada áhrifum: Paul Newman, Dustin Hoffman, Dennis Rodman.
21. Uttara Shada kölluð “Alheims stjarnan”
Tuttugasta og fyrsta smástirnið kallast Uttarashada og þrátt fyrir að byrja innan bomannsins er hún með þrjá fjórðu undir veldi steingeitarinnar. Ráðandi pláneta er Sólin sem gefur Uttarashada fólki leiðtogahæfileika og færnina til að tengast fólki vel. Þetta getur gert þá afar hæfa sem stjórnmálamenn. Uttarashada fólk getur sýnt þrákelnina til að njóta velgengni í hverju sem þeim mætir í lífinu. Uttara Shada táknar algjöra sameiningu guðlegs krafts. Uttara Shada færir okkur samansafn orku okkar, stuðnings og upphafningu í virðingu og ekki svo mikið í gegnum eigin erfiði (eins og hjá Jyestha) heldur með viðeigandi bandamönnum og stuðning frá guðunum. Uttara Shada fólk er yfirleitt mikið hugsjónafólk með stór markmið og fágað siðferði. Sigur veltur á réttlætiskennd hennar sem er okkur öllum af hinu góða.
Táknmynd Uttarashada þess er höggtönn fílsins sem lýsir blessunum Ganesha á öllu sem hún gerir.
Frægt fólk undir áhrifum Uttarashada: Kirk Douglas, Cary Grant, Billie Holiday.
22. Shravana – er kölluð “Námsstjarnan”
Tuttugasta og annað smástirnið kallasta Shravana og býr eingöngu innan marka steingeitarinnar. Þessi stjarna myndir einnig þrjú fótspor Vishnu, sem er guðsmynd þessa smástyrnis og sá guð sem sér um viðhald alheimsins skv. vedískri goðafræði. Meistari Vishnu hjálpar okkur að sjá í gegnum tálsýnir Maya allt í kringum okkur sem skapa heiminn eins og við þekkjum hann. Kraftur hennar er að veita tengingu. Einstaklingar sem fæðast undir Shravana geta tengt fólk saman með því að leiða það á rétta braut í lífinu. Shravana býr algjörlega innan veggja steingeitarinnar og hefur Tunglið sem ráðandi plánetu. Shravana er kölluð “Námsstjarnan” og tengist einnig sterklega Saraswati sem er gyðja lærdóms. Hún kallast “sú flæðandi” og færir okkur þekkingu, tónlist og glæsileika.
Shravana kemur frá sanskrítarorðinu sru sem þýðir “að heyra” og er táknmynd þess eyrað. Það bendir til hæfileikans til að heyra æðri og fínni tíðni yfirjarðneska sviða þessa heims. Guðleg flautuhljóð Krishna eða alheimshljóðið Om gæti verið heyranlegt af Shravana fólki. Shravana táknar samskipti þekkingar sem hjálpar okkur að leiða hina veraldlegu vitleysu hjá okkur. Mikilvægi hinnar munnlegu hefðar Indlands sem byggir á “shruti” eða heyrn hinnar guðlegu visku eða hljóðs er undirstrikað og þemað hér.
Frægt fólk undir áhrifum Shravana: C. G. Jung, Jessica Lange, Henry Ford.
23. Dhanista er kölluð “Stjarna sinfoníunar”
Tuttugasta og þriðja smástirnið kallast Dhanista. Dhanista býr til hálfs undir steingeitinni og til hálfs undir vatnsberanum. Það er styrkur og ævintýramennska því Mars er ráðandi pláneta yfir þessu smástirni.
Táknmynd Dhanista er tromman en tromman er hljóðfæri Shiva þar sem hann spilar á tímann sjálfan. Yfirleitt hefur Dhanista fólk mikla ástríðu fyrir söng, chanti og tónlist. Það eru einnig miklir möguleikar á auðæfum en einnig erfitt hjónabands karma. Dhanista fólk eru góðir hlustendur, hafa mikið innsæi og skyn fyrir sannleikanum. Dhanista getur gefið mikla spiritúal dýpt og dular þekkingu. Þeir sem fæddir eru undir Dhanista hafa víðsýna, frjálslega hugsun og sameina fjöldan í sameiginlegum málstað. Mikil samúð til heimsmála og þeirra sem minna mega sín er séð hjá Dhanista fólki. Dhanista fólk getur öðlast mikinn orðstýr og frægð. Það getur haldið vel utan um auðlindir sínar og byggja á samböndunum sem formaðar voru í Shravana (því smástirni sem á undan kemur) og gerir þá praktísakri. Lánsemi sína og auðæfi finna þeir yfirleitt, í burtu frá fæðingarstað.
Frægt fólk undir Dhanista áhrifum: Díana prinsessa, Whoopi Goldberg, Marilyn Monroe.
24. Satabhisha
25. Purva Bhadrapada – er kölluð “Stjarnan tvísýna”
Tuttugasta og fimmta smástirnið býr undir lok vatnsberans og byrjun fisksins. Ráðandi pláneta Purva Bhadrapada er Júpiter sem tengir fólk sem fæðist undir henni við Brahmins eða kennara stéttina, þá sem eru menntaðir og leiða mannkynið með visku sinni. Purva Bhadrapada fólk er mjög sjálfsstætt og ber mjög frumstæða og djúpa heimspekilega hugsun. Það elskar að hlaupa í burtu frá höftum og normi þjóðfélagsins. Það nýtur þess að ferðast ótroðnar slóðir og trúir á hugmyndina að “beaten paths are for beaten people”. Purva Bhadrapada fólk hefur mikla þörf til að einblína á hugsjón og framtíðarsýn. Það vill vinna að alheimsmarkmiði sem lyftir upp og styður mannkynið í heild sinni.
Táknmynd Purva Bhadrapada er sverð, maður með tvö andlit eða tveir fremri fætur rúms. Næsta smástirnið á eftir, Uttara Bhadrapada, og þetta, Purva Bhadrapada, mynda saman helming “brennandi parsins” og gefa bæði þessi smástyrni af sér eldheitt og gríðarlega virkt fólk. Dýratákn þessa merkis er Karlkyns ljónið.
Frægt fólk undir áhrifum Purva Bhadrapada: Deepak Chopra, Mary Tyler Moore, Robert DeNiro.
26. Uttara Bhadrapada er kölluð “Stríðs smástirnið”
Tuttugasta og sjötta smástirnið kallast Uttara Bhadrapada og býr eingöngu innan veggja fisksins. Ráðandi pláneta hér er Satúrnus sem gefur þessum einstaklingum bæði aga og sjálfsstjórn yfir tilfinningum sínum og hegðan. Þeir búa yfir hæfileikanum til byrgja inni reiði sína og þola mikinn sársauka. Þetta smástirni kallast Stríðs smástirnið og einstaklingar sem fæðast hér undir eru kraftmiklir og færir um að umvefja og vernda þá sem standa þeim næst.
Uttara Bhadrapada þýðir “Sá seinni með heppnu fæturna” eða “Fallegi vinstri fóturinn”. Fætur, sem tengjast fiskamerkinu, tákna og lýsa ást Uttara Bhadrapada á ferðalögum. Þessir einstaklingar eru yfirleitt kátir og bæði auðugir og örlátir. Vegna Satúrnusar og Júpiter áhrifa hér gerir það þetta fólk Brahmanik (Brahman er kennarastétt) og sýna þeir hálfgerða prestahegðan sem sýnir áherslu þeirra á spiritúal vöxt og þroska.
Frægt fólk undir áhrifum Uttarabhadrapada: Indira Gandhi, Hilary Clinton, Abraham Lincoln.
27. Revati er kölluð ”Sá auðugi”
Síðasta smástirnið, Revati, uppistendur af þrjátíu og tveimur afar ljósum stjörnum í sporði fisksins. Þar sem þetta er síðasta smástirnið tengist Revati hvers kyns endalokum og hvers kyns fullkomnun. Merkúr er ráðandi pláneta og þar sem Revati er innan fiskanna undir ráðum Júpiters fáum við áhrifablöndu þessara tveggja pláneta. “Sá auðugi” er venjulega bendluð við gnægtir og velmegun á öllum sviðum. Þetta er stórkostlegt smástirni hvað varðar andlegan vöxt og gefur þeim sem fæðast innan áhrifa hennar gríðarlegt innsæi. Fólk sem fæðist innan Revati ágirnist yfirleitt aldrei eignir og velgengni annarra. Þeir hafa endalausa samúð og mikla þörf til að létta á þjáningum mannkyns. Revati fólk er afar viðkvæmt í eðli sér og taka inn tilfinningar annarra í kringum sig. Þeir geta haft stórt skap og verið mjög þrjóskt ef kveikt er í þeim. Það er tilhneiging til að gefa of mikið og í kjölfarið gæti Revati einstaklingurinn klárað auðlegðir sínar og átt lítið sem ekkert eftir fyrir sjálfan sig. Þeir gætu átt við meðvirkni að stríða og álitið velferð annarra mikilvægari en þeirra eigin. Þeir þarfnast fyrst of fremst vernd frá raunveruleika hins harða heims. Þeir njóta góðs af vatni og að búa í námunda við vatnssvæði myndi gera þeim gott. Það róar viðkvæmu, opnu hlið þeirra. Revati einstaklingar eru skapaðir fyrir fallegri heim en þennan eða eins og Dennis Harness sagði: “They have tomorrow´s skills for today´s world”.
Frægt fólk undir Revati áhrifum: Marlon Brando, Mikhail Gorbachev, Bette Midler.


