Stjörnumerkin

Vedíska stjörnuspeki notast við merkin 12 eins og hin hefðbundna vestræna. Túlkun merkjana er einnig nokkuð svipuð en reikningur á staðsetningu þeirra annar. Spekingar nýta sér svo hina ýmsu eiginleika merkjanna eins og kyn, höfuðskepnurnar 4, ráðandi plánetu o.s.frv. til að túlka og skilgreina frekari tilhneigingar og eðlisfar fyrir hvert og eitt merki. Hvert merki túlkar á einhvern hátt plánetuna sem yfir því ræður. Hver pláneta ræður almennt yfir tveimur merkjum, en þó meira yfir öðru þeirra en Sólin og Tunglin ráða yfir einu hvort um sig.

Merkin tólf eru:
1. Hrútur – Ráðandi pláneta Mars
2. Naut – Ráðandi pláneta Venus
3. Tvíburi – Ráðandi pláneta Merkúr
4. Krabbi – Ráðandi pláneta Tungl
5. Ljón – Ráðandi pláneta Sól
6. Meyja – Ráðandi pláneta Merkúr
7. Vog – Ráðandi pláneta Venus
8. Sporðdreki – Ráðandi pláneta Mars
9. Bogmaður – Ráðandi pláneta Júpiter
10. Steingeit – Ráðandi pláneta Satúrnus
11. Vatnsberi – ráðandi pláneta Satúrnus
12. Fiskur – ráðandi pláneta Júpiter

Hrúturinn

Hrúturinn

Hrúturinn er fyrsta merki dýrahringsins svo það ætti engum að koma á óvart að þetta eru náttúrulegir leiðtogar. Hrútar eru líflegir, orkumiklir, ögrandi og miklir bardagamenn.

Þeir þrá ævintýr og elska að ferðast um heiminn. Hrúturinn er náttúrulegur brautryðjandi og hefur leiðtogahæfileika. Fólk dáist að sjálfsstæði hans og frjálslegri tjáningu í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur. Helst ætti hrúturinn að vinna þar sem hann getur verið sinn eigin herra því honum finnst ekkert ömurlegra en að vera sagt til verka. Hann er vel fær um að taka eigin ákvarðanir og að skapa eigin örlög. Álagið er vissulega meira þegar valið er að fara eigin leiðir í lífinu en þá hefur hann að minnsta kosti hlutina á sinn háttinn og engin getur ráðskast með hann.

Hrútnum er mikilvægt að nálgast markmiðin sín. Hann veit nákvæmlega hvað hann vil og á í engum vandræðum með að hlaupa í áttina að því. Hrúturinn hefur snarann, ákveðinn og óeftirgefanlegan stíl. Hrúturinn hefur meðfæddan eðlislægan skilning á því sem gera þarf. Það er ekki til sluksaskapur í honum og hann þolir ekki leti. Hann tekur á allri nýrri reynslu sem ögrun, eitthvað sem á að hoppa út í af astríðu og gleði. Hrútur sér allt sem tækifæri til að sanna sig og læra eitthvað nýtt.

Hrúturinn hefur mikið sjálfstraust sem ristir djúpt og er hans mesti styrkur. Hann gæti því virst á stundum of viss í sinni sök eða jafnvel sjálfsmiðaður. Hrúturinn hefur ást og þörf á persónulegu frelsi og nýtur sín í vinnu þar sem hann getur unnið á eigin forsendum. Að sama skapi finnst honum erfitt að vinna meðal margra í hópvinnu eða íþróttum. Fólk gæti upplifað óbilandi einbeitingu hrútsins sem dónalega eða tillitsleysi. Hann meinar það líklega ekki þannig en kann ekki betur á aðstæðurnar en það.

Hrúturinn vil sterka þörf til að halda sig við efnið og sér ekki tilgang í því að sitja og bíða eftir því að hlutirnir gerist. Þetta getur leitt til þess að hann verði óþolinmóður við fólk sem fer sér hægar en hann sjálfur. Hann þarf hreinlega að meðvitað minna sig á að sumar aðstæður bjóða uppá að gefa og þyggja og að stundum er það nauðsynlegt að hinkra og bíða eftir restinni.

Hrúturinn er hvatvís en er fljótur og frjór við að finna upp ýmsar snilldar hugmyndir. Vegna hvatvísi sinnar getur hann hins vegar misreiknað sig á stundum. Hrúturinn er sem betur fer óhræddur við að gera mistök og að læra á erfiða mátan. Eiginleikar hrútsins bera flestir vott af mikilli orku, lífskrafti og sjálfstrausti. Þessi kraftur skapar þó misskilning eins og margt en margir segja hrútinn ónærgætinn og tillitsslausan. Hrúturinn þarf bara að hafa í huga að ekki eru allir eins fljótir í hugsun og afkastamiklir hann sjálfur. Þolinmæði er eiginleiki sem allir hrútar eiga hvað erfiðast með. Þegar hrúturinn hins vegar lærir að vinna með ákveðni sína og hugrekki og nær að viðhalda vissri tillitssemi og þolinmæði að sama skapi þá mun hann sjá miklar og jákvæðar breytingar í öllum sínum samskiptum.

Smámunasemi er ekki sterkasta hlið hrútsins. Best finnst honum að einbeita á stóru myndina sem er það sem hann gerir að eðlisfari en nákvæmni mun aðeins draga fram hæfileika hrútsins enn fremur.

Mars orka hrútsins gefur honum mikið líkamlegt þol og líkamleg áreynsla er honum holl leið til að losa um spennu og orku. Hrúturinn á þá hættuna helsta að ganga fram af sjálfum sér á líkama og sál. Hann meinar vel en hvatvísin hleypur stundum með hann í gönur. Þegar hrúturinn lærir að meðhöndla orkuna sína og að tengja inná svalari og rólegri hliðar persónuleika síns þá fer allt í blóma og orkan hans nýtist á uppibyggilegan máta, í samböndum og vinnu.

Nautið

Nautið er annað merki dýrahringsins og undir ráðum fallegs Venus. Í hnotskurn væri best að lýsa nautinu sem “varkáru”, “praktísku” og “stefnuföstu” og “rómantísku”.

Þegar nautið tekur mikilvægar ákvarðanir í lífinu, sem jafnvel snúa að öryggi og velferð ástvina er það lengi að velta sér uppúr þeim. Nautið tekur aðeins úthugsaðar ákvarðanir sem byggðar eru á traustum grunni. Þegar nautið hefur gert upp hug sinn þá hefur það líka gríðarlega þrauseigju, endingarkraft og nóg af orku. Það er sjaldan að þú sérð nautið gefast uppá verkefni þegar það hefur sett sér stefnuna. Nautið er ávallt trútt ákvörðunum sínum og bregður út af engu þó því sé ögrað eða freistað. Þetta er auðvitað blessun en getur verið til trafala. Stundum breytist þessi eiginleiki í stolt og þrákelni. Á vissum stundum gæti nautið tekið uppá því að vísa góðum og hjálplegum ráðleggingum eða uppástundum á bug jafnvel þó manneskjan hafi hag hans einan í brjósti. Nautið má hafa í huga að þeir sem elska það og vilji veita uppibyggilega gagnrýni, hafa líklega bara það besta í huga og gætu haft mikið merkilegt að segja. Þegar nautið hægir á sér og lítur inná við er líklegt að það sjái að ástæðan fyrir þessari stífni og þrjósku er viss hræðsla við breytingar. Nautið hreykir sér af því að sjá hlutina koma heim og saman og ef aðrir skipta sér of mikið af framvindu mála er líklegt að það láti í sér heyra. Nautið hefur sterka og raunverulega þörf fyrir að klára það sem það byrjar á. Fólk áttar sig fljótt á því að engin leið er að ná til nautsins með þrýstingi eða afskiptasemi. Nautið lætur þá bara í sér heyra og stendur fastar en nokkru sinni. Á hinn bóginn finnst því gott að hafa það rólegt og gott. Nautið vil alltaf viðhalda sem mestum stöðugleika en ró og þægindi bera með sér stöðugleika. Nautið gæti þurft að minna sig reglulega á að hinar eilífu breytingar lífsins eru í raun það eina sem við getum treyst að verði alltaf til staðar. Að vera að sífellt að reyna að sporna við breytingum getur eingöngu leitt til óánægju og frekara álags.

Nautið elskar fallegu og fáguðu hlutina í lífinu. Nautið myndi elska það að hafa einhvern til að sjá um leiðinlegu verkin og að týna upp skítugu sokkana. Nautið nýtur sín í lúxus og lifnaði og að hafa þjónustu eða heimilishjálp fyndist því æðislegt. Hins vegar finnst nautinu dásamlegt að skýta sig út í garðyrkjunni. Erfiðisivinna hræðir nautið ekki neitt. Nautið hefur mikla snertiþörf og þegar það reynir að vinna úr reynslu og uppgötvunum treystir það oft frekar á tilfinningar en rök.

Nautið er frábær maki. Þegar nautið samþykkir að hjálpa einhverjum þá fer það alla leið í að standa við gefið loforð. Nautið gengur ávallt alla leið og bregst aldrei vonum sjálfra sín eða annarra. Nautið er í hnotskurn áreiðanlegt og traust. Nautið er líka afar næmt og þolinmótt. Nautið er tilbúið að bíða eins lengi og þörf er á eftir rétta augnablikinu. Þolinmæðin er fallegasta dyggð nautsins. Augljósustu og fallegustu eiginleikar nautsins eru heiðvirðar tilætlanir, þolinmæði og þrautseigja.

Þessi tilhneiging nautsins að vilja gera allt rétt og alla leið, bæði heima við eða í vinnu á sér bæði kosti og galla. Það þýðir að nautið er ávallt mjög einbeitt á það sem það er að gera en ætlast að sama skapi til þess að aðrir séu það líka. Nautið getur farið fyrir brjóstið á fólki þegar það tekur uppá því að sýna öllum hvernig best sé að gera hlutina. Fjölskyldunni gæti fundið það leiðigjarnt þegar nautið tekur upp á því að sýna fólkinu hvernig “best” sé að raða í uppþvottavélina eða hvernig “best” sé að keyra bílinn.

Einfaldleikinn heillar nautið og því leiðist fólk sem þjáist af athyglissýki eða sýningarþörf. Nautið er meðvitað um það að fegurð felst ekki í hverju þú klæðist eða hvaða hárgreiðslu þú velur þér. Nautið treystir á innsæi sitt þegar það kemur að samskiptum við fólk og hefur yfirleitt rétt fyrir sér mest flestum tilfellum. Það hefur hins vegar skelfilega rökfærslu hæfileika svo það er eins gott að innsæið hitti naglann á höfuðið. Það er þó þörf hjá nautinu að finna jafnvægi á þessum tveimur þáttum.

Tvíburi

Tvíburinn er þriðji hluti dýrahringsins, tvíburinn, fjallar fyrst og fremst um greind og samskipti. Einstaklingar fæddir undir tvíburanum hafa bæði hæfileika og ást á huganum og tjáskiptum.

Tvíburinn á sér mörg áhugamál og á lífsleið hans mun margt kveikja í honum og vekja forvitni. Hann er sífellt að ögra huglægri getu sinni og mun ávallt leggja sig fram við að skilja og skoða allt í kringum sig. Allt sem ögrar hugarorkunni vekur áhuga hans; lestur og úrvinnsla upplýsinga er eitt að því skemmtilegasta sem hann gerir. Tvíburinn getur átt erfitt með að skilja að öðrum líður ekki eins. Örvun er tvíburanum eðlislæg, hvað og hver sem ögrar honum í skemmtilegar samræðum er líklegur til að vinna hjarta tvíburans.

Tvíburar njóta líka velgengni í íþróttum. Íþróttin verður hins vegar að hafa huglegan- eða skipulagstengdan þátt eins og tennis, gólf, skák eða brids sem gæti helst höfðað til hans.

Hans helsti galli er að hann á það til að teyja sig í of margar áttir í einu, breytir of mikið til og á sér of mikið af áhugamálum. Sumir gætu upplifað hann yfirborðaskenndan og flöktandi. Það er tvíburanum auðeldara að gera lítið hér og þar í stað þess að fara í dýpt hlutana. Tvíburinn sjálfur sér þetta eðlilega öðruvísi. Hann vil bragða á öllum margbreytileika lífsins og kærir sig ekki um að lifa öðruvísi. Að prófa aðeins einn aðalrétt, er ekki stíll tvíburans. Sífelldri forvitni hans verður seint svalað. Fjölbreytileiki, rannsóknir og prófanir eru eitt lykilorðum hans. Tvíburinn á þá oft hættu á því að keyra sig út og verður stundum tættur og orkulítill. Það er honum mikilvægt að hægja reglulega á sér þó það sé honum erfitt. Ef hann nær að gera það að vana að hvílast og borða vel þá getur hann komið meiru í verk en flestir.

Fólk elskar að vera í félagsskap tvíburans – sveigjanleiki hans gerir hann áhugaverðan og fólk dáist að fjölhæfni hans og færni til að halda svo mörgum boltum á lofti. Tvíburinn er nokkuð ör og gæti upplifað eirðarleysi sem leiðir af sér breytingar eða regluleg ferðalög. Ferðalögin eru ekki alltaf löng en það er samt yfirleitt nóg af þeim samt sem áður. Tvíburinn hefur ávallt þörf fyrir hreyfanleika, hann skapar hann bæði meðvitað og ómeðvitað. Hann þyrstir í nýja reynslu og gæti hent sér út að hitta nýtt fólk eða að taka að sér ný verkefni.

Tvíburinn hefur mikla ást á bæði skrifuðu og töluðu máli og leggur oft pennan á blað eða hendur á lyklaborðið til að hripa niður hugsanir og vangaveltur. Hann gerir þetta stundum svo hann eigi auðveldara með að átta sig á tilfinningum sínum og skoðunum. Mikið af fréttamönnum og rithöfundum eru tvíburar því það er þeirra eðlilegasti vettvangur.

Tvíburinn gæti heillast af sálfræði og þeim lögmálum sem gilda í mannlegum samskiptum. Tvíburinn gæti laðað að sér maka sem er jafn samskiptaglaður og forvitinn og hann sjálfur. Tvíburinn er ávallt ungur og virðist stundum yngjast frekar en að eldast. Hann ber með sér ferskleika meðan hann lifir og glatar aldrei ástríðu sinni fyrir lífinu. Hann þroskast seint í “virðingulega viskubrunninn” því lífskraftur og sífelld örvun er það sem er honum eðlilegast og í blóð borið.

Krabbi

Fjórða merkið er vatnsmerki krabbans og lýsir tilfinningalegu eðli þessara einstaklinga. Að búa við áhrif vatnsins gerir krabbann umhyggjusaman, mjúkan og örlátan

Hann er andlega mjög þróaður, jafnvel spiritúal. Vatnsmerkin eru langt komin og fáguð í anda. Krabbinn er eins og vatnið, eftirlátt og aðlögunarfært. Hann aðlagast þegar hann þarf þess en vil helst breyta til á eigin forsendum. Lífsgefandi orka er krabbanum í blóð borið og eins og vatnið er hann nærandi og róandi. Hann er stuðningspúði fyrir fólk, bæði í fjölskyldu sinni og vinahóp.

Krabbinn er grundvallaður í tilfiningar sínar og skynjanir. Hann hunsar dómgreind og rök ef tilfinningar segja honum annað. Rétt og rangt er ekki alltaf aðalatriðið en að vera samkvæmur hjartans máli er eitthvað sem verður að vera. Ef innsæið segir honum eitthvað, eins og að rétta út hjálpar hönd, þá gerir hann það. Fólk leitar til hans þegar því vantar öxl til að gráta við – Krabbinn myndi njóta sín í hvers kyns hjúkrunar og stuðnings stöðu. Krabbinn getur aldrei gengið í burtu frá fólki í neyð og erfiðleikum. Vinir koma til hans ef þeir eru í vandræðum, þeir vita að nærgætni hans og samúð mun lyfta upp byrðum þeirra og áhyggjum. Krabbinn er afar næmur fyrir umhverfi sínu og fólkinu í kringum sig. Hann er líklegur til að nema orku, tilfinningar og/eða hugsanir fólks. Þetta getur oft komið að góðum notum þar sem innsæi hans er yfirleitt rétt. Krabbinn veit oft hvað amar að áður en fólk opnar munninn til að tjá sig við hann en það erfiða er þó að hann á það til að draga inn tilfinningar þeirra hvort sem þær eru slæmar eða góðar.

Krabbinn endurspeglar eiginleika hins breytilega tungls og því ná stundum tilfinningarnar yfirhöndinni. Hann getur þá sveiflast frá hæstu hæðum í lægstu lægðir og til baka á augabragði. Vinir og vandamenn eru líklega meðvitaðir um þetta en efast aldrei um tryggð hans og stuðning. Annar eiginleiki tunglsins sem gæti reynst krabbanum erfiður er móðurlegt eðlið hans. Hann gæti leiðst út í að vera of móðurlegur og þá kannski við fólk sem kærir sig ekki um það. Jákvæða hliðin er að hann elskar að eiga samskipti við alls kyns fólk og það er gagnkvæmt því krabbinn ber tilfinningar sínar og líðan á andlitinu og nærir fólk með nærveru sinni einni. Vegna þess að tími tunglsins er um nætur eru krabba oft nátthrafnar. Frá því að sólin sest og þar til hún rís fer sköpunarkrafturinn að flæða um og hann fyllist ró og öryggi. Hann tengist tunglorkunni á djúpu sviði. Þetta er góður tími til hugleiðlsu, skrifta eða til að fara í göngutúra í tunglskininu. Næturtíminn fyllir hann orku og hann elskar kyrrðina og rónna.

Skapandi verkefni er frábær leið fyrir krabbann til að gera sem mest úr sínu ríka ímyndunarafli og skynjunum. Hann hefur færnina til að gefa af sér sínar innstu dýpstu hliðar í gegnum listrænar rásir eins og tónlist eða skriftir. Eins er eldamennska góð og nærandi fyrir krabbann og þó það sé aðeins sem áhugamál þá getur það gefið honum jafnvægið sem hann leitar að. Stundum vil krabbinn loka á heiminn og hverfa inn í sterku skelina sína. Það hentar honum þó ekki að vera einfari og til að halda heilsu þarf krabbinn að sýna sig og sjá aðra.

Krabbinn, hvort sem það er maður eða kona, er meistaralegur í öllu heima við. Heimili krabbans ber alltaf vott af mýkt, hlýju og góðri lykt. Krabbinn elskar að halda utan um úrklippur og myndir sem leyfir honum að halda vel utan um allar fallegu minningarnar og fólkið sem hann elskar. Hann hefur frábært minni og ekki bara á staðreyndir heldur það góða sem fólk hefur gefið af sér.

Krabbinn getur talað um allt við alla og eiga við fólk er honum náttúrulegt. Það er þó ekki alltaf auðvelt því hann finnur og skynjar oft meira en er honum þægilegt. Ef hann hefur áhuga viðskiptum gæti hann notið velgengni á þeim vettvangi. Krabbinn hefur hæfileikann til að lesa á millli línanna og að sjá fyrir framvindu.

Ljón

Ljónið er fimmta merki dýrahringsins og undir ráðum Sólarinnar. Öll merkin endurspegla áhrif ráðandi plánetu sinnar og er ljónið uppfullt af skapandi orku sólarorkunnar.

Ljónið er fullt að sjálfshvatningu, hjartahlýtt og bjart í framkomu. Ljónið vil hafa varandi áhrif hvert sem það fer eða hvern sem það snertir, í ástarlífi, vinnu eða félagslífi. Það er gríðarlega örlátt og væntir þess allur heimurinn hafi jafnt stórt hjarta og það sjálft. Þegar ljónið sér aðra halda aftur af sér er það fljótt að taka til hendinni og reynir að breyta því til hins betra. Ljónið vill sjá að allir gefi eins mikið og það sjálft gerir. Fólk getur hins vegar misskilið ljónið og fundist það taka meira en það gefur. Ljón í góðu jafnvægi getur lýst upp allan heiminn og þetta er ástæðan fyrir því að fólk verður svo ástfangið af ljóninu. Það elskar að deila hamingju sinni og velgengni með fólkinu sem það elskar. Ljónið er líka ávallt göfugt og væntir þess aldrei að fá það borgað sem það gefur. Það eru fá merki sem skilja gjafmildi eins vel og ljónið.

Ljónið hefur frábæra tímasetningu. Þegar ljónið býður fram hjálp sína eða hvatningarorð, virðist það velja tímann þegar það getur haft mestu áhrifin. Ljónið er oft á réttum stað á réttum tíma. Það er heppið á þennan hátt.

Ljónið hefur mikla útgeislun og sterka sjálfsmynd. Þetta getur orsakað misskilning þar sem fólk getur upplifað það sem hrokafullt og sjálfumglatt. Ef ljónið passar sig að draga úr ákafanum þá getur fólk hins vegar raunverulega séð einlægnina og örlætið sem það býr yfir. Margur upplifir ljónið sem hálfgerðan monthana en það er einn annar misskilningurinn. Ljónið er hins vegar dramatískt en það er þáttur ljónsins í ástríðu hans fyrir lífinu. Ljónið upplifir lífið sem leiksvið þar sem það getur sýnt og tjáð hæfileika sína og hjartans mál. Ljónin enda kannski öll á sviði við leiklist eða söng, en Mick Jagger er gott dæmi um sprangandi og egósentrískt eðlisfar ljónsins. Mick Jagger lýsir af sköpunarkrafti og persónulegum stíl eins og flest sterk ljón.

Traust er megin einkenni ljónsins. Fólk sem þekkir ljónið veit að það er traustur vinur sem ávallt er til staðar. Þó ljónið geti ekki hjálpað með vandamálið sem blasir við þá hefur það alltaf lag á því að senda frá sér hlýja strauma sem styrkir og hvetur.

Helsti galli ljónsins er að það verður að gæta sín á að viðhalda vissri auðmýkt. Ljónið verður að hafa í huga að það fær nægilega viðurkenningu fyrir góð verk hvort sem það montar sig yfir þeim eða ekki. Ljónin og það sem þau gera vekur alltaf mikla eftirtek. Flestir fyllast aðdáun við að fylgjast með glæsileika þeirra og styrk. Það er erfitt að gera það ekki því þau lýsa upp umhverfið eins og sólin sjálf.

Dýratákn ljónsins er konungur frumskógarins, sem lýsir af karlmennsku, glæsileika og miskunnleysi. Þetta þýðir að orka og áfergja ljónsins til lífsins er gríðarlega há. Ljónið verður að vera á hreyfingu líkamlega og að fullu umvafið þýðingarmikilli vinnu og félagslífi til að líða vel.

Ljónið er fæddur leiðtogi. Fólk laðast náttúrulega að ljóninu til að leita sér leiðsagnar og öryggis. Ljónið hefur alltaf þörf fyrir að vera fremstur og bestur og þetta gerir hann oft á tíðum að brautryðjanda. Ljónið getur lifað undir reglum og lögum annarra en vil nýtur sín þó aldrei nema undir eigin stjórn. Þetta þýðir að ljónið leitast alltaf við að finna sinn eigin niche og að skapa sinn eigin stíl og leiðir. Ljónið skín í hverju sem það gerir og mun án efa setja sitt mark á heiminn. Það hefur færnina til að komast á toppinn á hverju því sviði sem það velur sér að klifra.

Meyja

Meyjan er jarðarmerki og sjötta merki dýrahringsins. Hún tilheyrir hóp af fólki sem er þekkt fyrir fullkomnunaráráttu sína og sundurgreinandi hugsun.

Meyjunni er jafnan strítt yfir því að vera stíf í skipulagsæðinu sínu en í fullri alvöru hvað er að því að vera skipulagður, hreinlegur og reglusamur? Meyjan er að vissu leyti misskilin og nærgætni hennar til smáatriða, þrá hennar fyrir afburði og hreinlæti er ekki eins slæmt og margur gæti haldið. Meyjan á þó nokkuð annríkt við að vera vandlát og gagnrýnin á heiminn. Sumum finnst hún setja mörkin aðeins of hátt og finnst erfitt að mæta væntingum hennar. Ef fólk bara vissi hvað hún er gagnrýnin við sjálfa sig. Í raun og veru þá ætlast hún aldrei til meir af öðrum en af sjálfri sér. Fólk gæti lært heilmikið af meyjunni, eins og bara því sem hversu mikið er í raun hægt að áorka þegar væntingarnar eru settar aðeins hærra en gengur og gerist. Það er líka líklegt að þegar meyjan lýsir gagnrýni á einhverju að hún hafi bæði vel greint og tekið saman alla þætti aðstæðna áður en hún tjáir sig um málið. Þó mörgum gæti fundist þessi vani pirrandi eru aðrir sem finnast þetta þægilegt og reyna jafnvel að fá meyjuna til samvinnu og liðs við sig. Það er fólkið sem sér hennar náttúrulegu hæfileika og kann að meta sérkunnáttu hennar.

Meyjan skilur eftir markandi áhrif sín með innsýn sinni og breiðu þekkingarsviði. Meyjan er einfaldlega afar áhugaverð persóna að umgangast. Og þegar fólk kynnist meyjunni nánar, sér það hversu áhugaverð hún getur verið með allar sínar endalausu upplýsingar og fróðleik. Meyjunni finnst það einfaldlega vera praktískt að gera alla hluti vel og kerfisbundið. Það skiptir ekki máli hversu stórt eða lítið verkefnið reynist, stolt sitt setur hún í hversu vel það er unnið. Meyjan skoðar alla málsþætti áður en hún hellir sér út hlutina. Þegar hún hefur svo skoðað alla þætti gerir hún sitt besta til að ljúka við verkið. Fólk sem hefur hins vegar ekki sömu skipulagshæfileika gæti fundist það pirrandi og jafnvel erfitt að vinna með henni. Meyjan sér einfaldlega enga ástæðu til að gera hlutina til hálfs. Það fer ekkert á milli mála að heldur vil hún sleppa því alveg.

Tími er meyjunni afar mikilvægur og því notar hún hann vel. Það er afar sjaldgæft að finna óskipulagða meyju, ef það er hægt. Að halda dagbók og að gera hvers kyns lista er það skemmilegasta sem hún gerir. Penninn og blaðið er gríðarlega mikilvægt svo eitt af því skemmtilegasta sem meyjan gerir er að fara í ritfanga- og bókaverslanir. Þetta hljómar vissulega svolítið skrýtið en hún VERÐUR að hafa rétta pennan til að geta gert verkið ALVEG rétt. Meyjan skoðað alltaf allt með varkárni, smávægilega hluti eins og matarmiðan og hvaða persóna er rétt fyrir hana í vinnu eða rómantík. Meyjan hefur arnaraugu og sér galla eða misför langar leiðir. Ef t.d. matarreikningurinn er 100 krónum of hár þá er hún fljót að koma auga á það. Loftnet meyjunnar er gríðarlega skarpt og hún tekur eftir öllum smáatriðum hvert sem hún fer. Hún er einnig afar vel lesin og á sér mörg áhugamál. Meyjan er eilfíðar nemandi og nýtur þess að safna hvers kyns og jafnvel óþarfa upplýsingum.

Sumir upplifa meyjuna feimna en þetta er bara því hún á það til að skoða og skanna umhverfið áður en hún tekur afstöðu. Hún hefur skarpa greind en vil heldur fara varlega áður en hún myndar sér skoðanir, þær verða jú að vera réttar. Meyjan tekur alltaf praktískar staðreyndir fram yfir tilfinningar og hugsjónir.

Vog

Vogin er sjöunda merki dýrahringsins og táknar grunnefnið loft sem tengist hugarorkunni. Vogin er hugsuður, það fer ekki á milli mála – hún nýtur þess að nota hugann til að tækla vandamál.

Sem sjöunda merki dýrahringsins svarar vogin til ýmiss konar sambanda og tengingar við heiminn í kringum þig.

Vogin er sérlega félagslyndur og þægilegur einstaklingur. Opinn persónuleiki hennar og ástríða fyrir því að tjá snilldarhugmyndir sínar til fólks er einn af hennar mestu styrkleikum. Það er sjaldan að hún hafi ekki umræðu á reiðum höndum og sjaldan er óþægileg þögn ef vogin er til staðar. Vogin hefur ekki bara færnina til að deila hugmyndum sínum á mjög náttúrulegan hátt hún tjáir einnig tilfinningar sínar á heillandi og einlægan máta. Þetta er einn hennar stærstu kosta. Fólk getur sjaldan staðist vogina og þó það sé henni ósammála þá skapar það henni aldrei raunveruleg vandræði. Hún er bara svo indæl manneskja.

Ást hennar á samskiptum gerir hana færa í hverskyns miðlara hlutverki. Vogin hefur lag á fólki og mikla réttsýni og þessi blanda er ómótstæðileg í hvers kyns málamiðlara hlutverki. Vogin sér ekki allar hliðarnar á teningnum og hefur mikla jafnréttishugsun þó það geti á stundum skapað henni vandræði. Hún á tilhneiginuna til að verða of hlutlaus og finnst þá erfitt að taka afstöðu þar af leiðandi. Vogin vil líka og er mikilvægt að öllum líki vel við sig. Lokaniðurstaðan er yfirleitt sú að hún fær viðurkenningu allra með því að vera sammála öllum. Þetta er ekki endalegi góð hugmynd því þá er hún að samþykkja hluti á röngu forsendum, en ekki vegna þess að hún er endilega samkvæm skoðunum sínum. Vogin má gæta sín á þessu því þetta getur orsakað vandamál í samskiptum hennar við fólk og sérstaklega í hópum. Að taka ákvarðanir er eitthvað sem vogin er ákaflega góð í en eins og áður sagt verður hún að gæta sig á því að taka ákvarðanir á réttum forsendum. Vogin hefur hæfileikann til að sjá allar hliðar vandamálanna, svo hún má nýta sér það. Stundum fyllist hún angist því henni finnst hún á einhvern hátt hindruð. Lausnin er sú að hún þarf aðeins að skilgreina allar staðreyndir málsins fyrir sjálfri sér og forðast að spyrja fólk álits áður en hún tekur ákvörðun.

Vogin mun líka átta sig á því að þegar hún lítur inná við getur hún treyst á eigin reynslu og þarf ekki að styðjast við aðra til að taka ákvarðanir.

Þegar vogin kynnist nýju fólki finnst henni mjög auðvelt og náttúrulegt að deila tilfinningum sínum með þeim. Hún mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að fylla það ró og öryggi. Vogin skapar jafnvægi í flestum félagslegum aðstæðum. Þetta er aðallega vegna þess að ráðandi pláneta vogarinnar er Venus, sem er í eðli sér mjúk, afar viðfelldin og kvenleg pláneta. Vogin sýnir mjúku hliðina sína í hverju sem hún tekur sér fyrir hendur, hvort sem það er að skemmta gestum, við að skreyta heimilið eða við versla fötin og snyrta sig. Allt þetta lýsir af glæsileika og fágun Venusar. Vogin er alltaf smart og kvenleg og það fer aldrei fram hjá neinum, hvort sem það þekkir hana eða ekki.

Vogin kemur alltaf vel fyrir við fyrstu kynni því hún er frábær í samskiptum og tengir auðveldlega við fólk, þetta gerir hana frábæra í að skapa tengsl. Hún elskar að hafa fólk í kringum sig og njóta lífsins með rétta fólkinu. Vogin elskar fólk og félagsskap. Venus er fyrst og fremst ástarpláneta og leiðir vogina til að leita ástar í öllu sem hún gerir og sérstaklega í samböndum. Að finna sálufélagann sinn er hennar stærsti draumur og jafnvel megin markmið í lífinu. Ef hún hefur ekki fundið hann þá hættir hún ekki fyrr hún gerir það. Vogin hefur gríðarlega mikið að gefa þeim sem hún upplifir að sé sinn eini sanni. Fáar vogir finna ró og hamingju í hjarta sér fyrr en þær finna “þann eina rétta”. Þegar það gerist geta þær svo notið sín í vinnu, meðal fjölskyldu og á öðrum vettvangi lífssins af fullri alvöru. Vogin er hreyfanlegt loftmerki sem þýðir að það er mikill sköpunarkraftur henni til handa. Hún er fljót að grípa hugmyndir og hefur þörf til að skapa óvenjulega eða frumlega hluti og listaverk. Vogin færir öllu sem hún gerir listrænu ívafi.

Sporðdreki

Sporðdrekinn er áttunda merki dýrahringsins og flokkast á tungumáli stjörnuspekingsins sem stöðugt vatnsmerki. Sporðdrekinn er líklega eitt misskildasta stjörnumerkið og hefur í raun ekki gott orð á sér en er sá misskilningur að mestu byggður á fáfræði og hræðslu.

Þetta svala og rólega yfirborð sem fólk skilur svo illa stafar í raun bara af þínu afar flóknu eðlisfari. Kraumandi undir svölu yfirborðinu er mikill og ástríðufullur eldur. Þetta skynjar fólkið í kringum hann en sjálfur er hann mismeðvitaður um eigin flækjur.

Sporðdrekinn er mikil tilfinningavera og eins og með annað þá fer hann alla leið í þeim málum. Hann gefur hundrað prósent af sjálfum sér til þeirra sem hann elskar og ætlast til þess að fá það sama til baka og helst meira. Hann þarfnast viðurkenningar þó hann hafi ekki tök á því að segja það beint út. Það er ekkert hálfkák í ástarmálum sporðdrekans og í viðhorfi hans til ástar. Sporðdrekinn er kröfuharður á sjálfan sig og aðra en þegar hann gefur einhverjum hjartað sitt þá er hann einstaklega tryggur. Hann er ávallt traustur í því sem hann gerir og sambönd eru engin undantekning – hann elskar hugmyndina um ást, því ást er ögrun sem fyllir hann spennu og lífi.

Sporðdrekinn dregur að sér athygli hvert sem hann kemur. Sporðdrekinn er sterka þögla týpan og hefur sterka nærveru. Það er erfitt að henda reiður á það er nánast ómögulegt fyrir fólk að horfa fram hjá honum. Sporðdrekinn veit vel að hann getur stjórnað fólki og nýtur þess valds til hins ýtrasta. Hann er ekki að öllu meðvitaður um það sjálfur en þessi dularkraftur er í raun hans mesti styrkur. Ákveðni er annar sterkur eiginleiki sporðdrekans. Fólk getur stundum upplifað hann sem miskunnlausan í áræðni sinni og þráhyggju því hann keyrir áfram af þvílíkri áfergju og blindni. Eins og áður sagt þá gerir Sporðdrekinn aldrei neitt í hálfkáki hvort sem það er í vináttu, ástarlífi, fjölskyldu eða vinnu. Hann ætlar sér ávallt að vera bestur og lætur ekkert standa í veginum fyrir því. Það jákvæða er þó að þegar hann nýtur velgengni þá hikar hann ekki að deila henni með fólkinu sínu, hvort sem það eru vinir eða vandamenn.

Allir eru meðvitaðir um dáleiðandi augu sporðdrekans. Þau eru eitt af hans voldugustu vopnum. Fólk mun oft minnast á það við sporðdrekann hvað hann hafi stórkostleg augu, en augu sporðdrekans hafa þann hæfileikann að segja þúsund ósögð orð.

Sporðdrekinn er aldrei hræddur við mótvind eða ögrun og það skiptir engu í hvaða mynd það sýnir sig. Þvert á móti, þá virðast ögranir gefa honum gríðarlega mikið því í andstreymi getur hann sannað það að ekkert stoppar hann. Ef einhver reynir að særa sporðdrekann eða gera honum lífið leitt þá verða þeir að gæta sín á því að gefa því verkefni alla sína athygli og orku. Sporðdrekinn gefst aldrei upp og ekki fyrr en óvinir hans eru brotnir á líkama, anda og sál. Þó að sporðdrekinn nái ekki fram hefndum strax þá er það lítið mál en hann gleymir seint og getur stungið þegar fólk á síst von á því.

Hvort sem sporðdrekinn er að fullnægja nautnafullu eðli sínu eða æðri málstað þá eru nautnir sporðdrekanum alltaf mikilvægar. Hann vil og þráir sífellt. Þó að sporðdreki sé á leið til ljóss og friðar þá er hann sjaldnast hræddur við dimmari hliðar lífsins. Þetta er því Sporðdrekinn á sér þrjú dýratótem – sporðdrekann, eðluna og Fönixinn (goðsögulegur fugl).

Hinn stingandi og eitraði kraftur sporðdrekans er óneitanlega hluti af eðli hans; þetta er sá hluti sem hann þarf að gæta sín á og er hvað hættulegastur, honum sjálfum og öðrum í kringum hann. Ef sporðdrekasálin velur sér að miðla lægri og frumstæðari hlið orku sinnar gæti hann tekið uppá því særa eða meiða aðra með krafti sínum og valdi. Eðlan táknar þann hluta sporðdrekans sem felur sig frá lífinu og ná aldrei að tengja sig sínum djúpa krafti. Þessir einstaklingar leita stundum í sjálfsniðurrif eins og lyfjaneyslu eða jafnvel glæpsamlega hegðan til að fullnægja djúpri þráhyggju. Þegar sporðdrekinn ætlar sér að þroskast í sínum fallegustu eiginleikum, þá er tekur hann sér mynd Fönixins sem rír úr öskunni. Fönixinn er umbreytingar tótem sem bendir til þess að brenna þurfi burt lægri tilhneigingar svo fegurstu eiginleikar hans geti vaxið og þroskast. Sem betur fer velja flestir sporðdrekar að fara þessa leið.

Bogmaður

Bogmaðurinn er án efa eitt jákvæðasta merkið. Hann ber með sér gífurlegt sjálfstraust í hvert það sem hann tekur sér fyrir hendur. Bogmaðurinn er eitt af heppnustu merkjunum og heppnin virðist hreinlega elta hann uppi, hvort sem hann ætlar sér það eður ei.

Það er kannski þess vegna sem hann er svona óhræddur við áhættur. Honum líður sem hann geti ekki tapað. Þetta er næstum því hrokafullt viðhorf en nokkuð sem fólki finnst yfirleitt sérlega heillandi við bogmenn.

Bogmaðurinn er kátur og lífsglaður og þetta getur verið mjög smitandi. Fólk laðast mikið að honum því nálægt bogmanni upplifir það lífsgleði og bjartsýni. Fólk laðast náttúrulega að honum og vil hjálpa honum nálgast markmiðin sín. Bogmaðurinn kann sér sjaldnast hóf og setur markið hærra en flestir. Stundum eru þó lífsmarkmið hans risavaxin – hann skýtur örvum sínum lengra en hann sér fyrir endann á. Fólkið í kringum hann finnst hann oft of metnaðarfullur og að markmiðin sem hann velur sér séu bæði langsótt og óraunhæf. Viðhorf fólksins í kringum hann geta þó lítið breytt honum.

Bogmaðurinn hefur gott tímaskyn og veit yfirleitt hvenær hans tími er til að taka af skarið. Þetta er því bogmaðurinn er undir ráðum Júpiters sem ræður yfir visku, þekkingu og andlegum málefnum. Persónulegur vöxtur og skilningur eru lykilatriði í persónuleika bogmannsins. Hann hefur ríka þörf til að skilja allt í kringum sig og verður alltaf að grafa dýpra til að finna þýðingu hlutanna. Þetta virðist fólki oft hálfgerð mótsögn því hann getur líka verið töluverður partýsnákur en dýpri andlegu hliðar bogmannsins eru þó alltaf hans sterkustu eiginleikar. Bogmaðurinn er sífellt að leitast við að finna þýðingu lífsins, að finna út hvað skapar og gerir umhverfið í kringum hann. Hann dreymir sífellt og áætlar hvernig hann getur fengið sem mest út úr tíma sínum hérna á jörðinni. Þetta er honum mikilvægt svo bogmaðurinn er sífellt í leit að dýpri og þýðingarmeiri svörum. Hestamaðurinn, sem er dýratákn bogmannsins, hefur boga og miðar honum til himins. Þetta er bogmaðurinn í hnotskurn og lýsir honum og nálgun hans til lífsins.

Vegna jákvæðni hans sér hann möguleika og tækifæri á hverju horni. Hann sættir sig sjaldan við neitanir og vonbrigði og sér lífið sem fullan kassa af konfekti. Ævintýramennskan er honum í blóð borin og hann hefur sterka þörf til að ferðast og upplifa nýja hluti. Að ferðast til nýrra landa og að skoða ólíka menningarheima fyllir hann gleði og tilgangi. Þessi eilífa forvitni getur þó leitt til eirðarleysis sem er öllum erfitt. Bogmaðurinn hefur raunverulega og mikla þrá til að grafa upp sannleikann og vill taka virkan þátt hvar sem hann er staddur. Hann er þó fljótur að fyllast leiða ef forvitnin fær ekki útrás og þá sérstaklega þegar það kemur að samböndum. Honum þykir vissulega vænt um að vera í sambandi en þarf eilífar tilbreytingar og huglega örvun svo að líf haldist í ástartilfinningunum. Bogmaðurinn elskar það að daðra og sýna sig en þetta er annað sem skapar honum vandræði í samböndum. Hann elskar frelsið sitt og vil hafa það ósnert á öllum sviðum lífsins; í vinnu, heimilislífi og ástarlífi. Enginn má reyna að beisla bogmann og eins og Pétur Pan þá vill hann vera að eilífu ungur og frjáls. Fyrr eða síðar verður þó að læra að meðhöndla þessa sjálfsstæðisþörf með örlítilli ábyrgðartilfinningu og stöðugleika.

Bogmaðurinn spilar stundum spilunum sínum á ystu nöf í lífinu en eins og kötturinn lendir hann á fjórum fótum. Hann þarf sama frelsið í vinnu og í ástarlífinu. Bogmaðurinn nýtur sín aðeins innan nægilegs frelsis og án þess vinnur hann aðeins á hálfum tánki ef svo má að orði komast. Hann treystir mikið á sjálfan þig og ef yfirmenn hans hafa vit á því að gefa honum lausan tauminn er hann líklegur til að standa sig langt framar vonum þeirra. Júpiter ráðandi pláneta bogmannsins hefur mikla spádómshæfileika og það gerir bogmaðurinn líka. Honum er óhætt að treysta þessu stjötta skilningarviti sem guðirnir hafa gefið honum því hann hefur sjaldnast rangt fyrir sér.
Bogmaðurinn sér lífið sem endalaust ævintýri og ögrun og leikur sér dag frá degi eftir fremsta megni. Það er fátt sem heldur aftur af honum og þó að mótlæti geri vart við sig sér hann það sem hluta af lærdómnum og ánægjunni og sættir sig við það með bros á vör.

Steingeit

Steingeitin er merki númer tíu. Steingeitin er jarðarmerki sem gerir hana jarðbundna og raunsæja. Það eru fáir eins praktískir og metnaðarfullir og steingeitin.

Millinafn hennar er varfærni og það er vegna áhrifa Satúrnusar, sem er ráðandi yfir steingeitinni. Hún er oft feimin og gæti vantað sjálfstraust.

Það verður seint að þú hittir steingeit sem er hrædd við dugnað og vinnu. Ef steingeitin veit hvað hún vill þá hikar hún aldrei við að vinna og það duglega að markmiðum sínum. Steingeitin er þrautseig og dugmikil svo hún öðlist það sem hún ætlar sér í lífinu. Steingeitin er metnaðarfull, eltist við drauma sína og er yfirleitt velmegandi í endann.

Fólk upplifir steingeitina ekki alltaf þá kátustu en þegar fólk kynnist henni, þá sér það að hún á sér bæði kímníska og ástríka hlið. Steingeitin vil helst vinna í kyrrð og á áhrifaríkan hátt án þess að velta vöngum yfir sjálfum sér eða öðrum óþarfa. Steingeitin er tilfinningalega róleg og sein að hleypa fólki inn. Það tekur steingeitina smá tíma að finnast þægilegt að hleypa fólki að sér. Varkárni er eitt af sterkustu eiginleikum steingeitarinnar og þegar þú hittir fólk í fyrsta sinn þá er það þín leið til að sína þroska og rósemi. Steingeitin hefur þörf fyrir að skilja og fá tilfinningu fyrir fólki áður en hún hleypir því að sér.

Þrátt fyrir að vera praktísk og kerfisbundin og þó að hlutirnir taki hana lengri tíma en marga aðra þá setur steingeitin markið hátt. Hún hefur engann áhuga á loftkenndum óraunsæjum hugmyndum en í staðinn einbeitir sér að því sem er öruggt hvað varðar fjárhagslegt og veraldlegt öryggi í framtíðinni. Steingeitin velur sér að flýta sér hægt og að gera hlutina frekar rétt í fyrsta skiptið í stað þess að þurfa að sífellt endurvinna þá. Hún er sparsöm, úrræðagóð og dugleg. Skuldbinding er steingeitinni eðlileg og hún er líkleg til að standa sig vel í öllu sem hún gerir. Það vill svo illa til að ekki eru allar steingeitur studdar í lífinu sínu svo þær eru ungar þegar þær læra að vera sjálfsstæðar og að koma sér áfram á eigin rammleik. Hún er meðvituð um hvað hún þarf að gera til að standa sig á eigin spýtum. Steingeitin álítur sjálfsnægjuna sinn megin styrk og vil ekki að aðrir beri hana á herðum sér. Steingeitin tekur sér svo réttilega allan heiður að því sem hún gerir. “Væntu þess versta en vonaðu það besta” er eitthvað sem margar steingeitur gætu sagt. Hún er raunsæ og ætlast ekki til þess að hlutirnir gerist á einni nóttu. Fólk dáist að því hvernig hún vinnur því ekki er hún bara metnaðarfull heldur fullkomnar allt sem hún gerir og gerir það vel. Ef fólk leitar til steingeitar getur það verið viss um að hvergi verði til sparað að dregið úr.

Steingeitur laðast að hefðbundnum lífsstíl því hún vill að allt sé undir stjórn og á réttum stað. Hún er því eðlilega ekki alltaf sú mest spennandi í félagsskap en er í staðinn gríðarlega trygg og mun aldrei bregðast þeim sem hún hefur gefið loforð. Steingeitin vil lifa eftir eigin gildum og ekki málamiðla svo henni er nokkuð sama um vinsældir og slíkt. Fólk getur stundum upplifað steingeitina sem snobbaða og fengið þá tilfinninguna að hún horfi niður á það. Þetta er ekki raunin því steingeitin er í raun afar örlát með bæði tíma sinn og peninga og ef málstaðurinn er verðugur þá finnurðu ekki örlátari einstakling. Vegna varkárni sinnar er steingeitin fljót að sjá í gegnum óraunhæfa og ótrausta einstaklinga en er afar traust og meðvituð í öllum sínum samböndum. Þegar fólk kynnist steingeitinni skilur það að hún er afar traust, áreiðanleg og stundvís og er ávallt hægt að treysta á ef þörfin og neyðin rís.

Erfiðast að eiga við steingeitina þegar það kemur að fjárhagsmálum því hún getur virst aðeins of veraldlega sinnuð. Þó hún sé hörð í samningum þá er hún ávallt sanngjörn. Steingeitin hefur gríðarlega færni til að standast álag og mótvind í lífinu og þó erfiðleikarnir hellist yfir þá þarf enginn að efast um festuna og styrkinn sem hún ber. Ólíkt flestum þá virðist hún bara styrkjast við mótlæti. Hún er eins og stálið undir barefli járnsmiðsins sem verður harðari við hvert högg.

Steingeitin ætlast til þess að aðrir séu eins traustir og hún sjálf.

Vatnsberi

Þeir eru heppnir sem fæðast undir mannúðarmerki dýrahringsins, vatnsberanum. Vatnsberinn er né vil vera eins og aðrir og sér stolt sitt í því að vera öðruvísi. Þrátt fyrir að vera hann sé gagnrýndur annað slagið þá vil hann miklu heldur vera öðru vísi en að fylgja öllum öðrum í því sem þeir gera og velja sér. Vatnsberinn hefur alltaf hug á því að brautryðja eigin leiðir í lífinu og þó það fari ekki svo er það þannig sem hann vil lifa. Sumir vatnsberar læra strax í æsku í gegnum fjölskyldu að stundum verður maður að læra að þjónusta áður en maður fær þau forréttindi að vera leikstjóri eigins leikrits. Í sumum öfgafullum tilvikum er vatnsberanum stjórnað af öðrum á uppvaxtarárum sem leiðir svo til þess að þeir eiga afar erfitt með að gefa eftir seinna meir.

Vatnsberinn er lifandi einstaklingur og hefur mikla orku. Hann er bæði ákveðinn og þrýstinn í samskiptum sínum við fólk. Ef vatnsberinn hefur ekki tök á því að lifa lífinu eftir eigin hugmyndum þá lætur hann sig dreyma um framtíð þar sem allir hans draumar blómstra á þann hátt sem hann hafði hugsað sér. Hann hefur sterkar hugsjónir og þó hann sjái heiminn öðruvísi en aðrir þá er hann alltaf virtur fyrir það að vera sjálfum sér samkvæmur og opinskár.

Vegna skipulags og samskiptahæfni hans þá á hann auðvelt með að vinna vel með öðru fólki. Hann hefur alltaf eitthvað til málanna að leggja og færir fram lausnir á vandamálum sem upp koma. Fólk á það til að verða hissa á ankannalegum leiðum hans og hvernig hann nálgast lausnir. Vatnsberinn er afar virkur huglega og bæði rannsakandi og forvitinn. Hugsun hans stoppar sjaldan og vatnsberinn þarf að læra að slökkva á sér og þá sérstaklega á næturnar.

Samskipti er sérsvið vatnsberans og hann á auðvelt með að finna sig í heiminum. Hann ætti aldrei að hylja sitt raunverulega sjálf, heldur halda áfram við að stækka persónuleikann sinn og reyna heldur að tjá sig skynsamlega. Vatnsberinn tjáir hugmyndir sínar af ástríðu og þrótti svo það er sjaldan lognmolla í kringum hann. Það er þó oft sem einhver vill ögra honum, sérstaklega þeir sem hugsa á hefðbundnari hátt. Það kemur aldrei illa við vatnsberann hins vegar að sýna fólki viðhorf sín og að þurfa að sanna mál sitt.

Vatnsberinn skapar sér fallegt heimilisumhverfi þar sem Venus er ráðandi pláneta á þeim vettvangi. Hann vill hanna og setja svip sinn á umhverfið. Heimili vatnsberans endurspeglar sérstöðu hans og sjálfsstæði.

Vinir vatnsberans geta jafnan brugðið við langsóttum hugmyndum hans og gætu tekið uppá því að stimpla hann “skrýtinn” eða “klikkaðan”. Hinn frægi listmálari Salvador Dali sagði eitt sinn um sjálfan sig: “the only difference in me and a madman is that I´m not mad”. Hann var ekki vatnsberi en þetta er viðeigandi setning fyrir vatnsberann. Það erfiðasta fyrir vatnsberann í mannlegum samskiptum er að hann á erfitt með fólk sem er ekki eins tilbúið og hann að fara fram á við í hugsun. Vatnsberinn er sífellt að enduruppgötva sjálfan sig og reynir að hvetja vini að gera slíkt hið sama. Sterkar hugmyndir hans geta stundum komið honum í vandræði og rifrildi.

Allt sem viðkemur tækniheiminum og rafmagni höfðar til vatnsberans. Hann er uppfinningasamur og rannsakandi í eðli sér og á auðvelt með að tileinka sér tækni og nýjungar. Vatnsberakarlmaður er þessi týpiski “tækniguru”. Vatnsberanum finnst gott að vera vakandi fyrir nýjum sveiflum og tæknauppgötvunum, nýjustu tækjunum, tölvunum, græjunum eða leikjum.

Það er alþjóðlegur eiginleiki við vatnsberann. Hann gæti virst inní sér og óháður umhverfinu en er þó næmur og mjúkur inní sér. Hann vill helst eiga samskipti við fólk sem hefur jafn mismundandi og víðsýnar skoðanir og hann sjálfur. Vatnsberinn á auðvelt með að umvefja allt nýtt hvort sem það er í tónlist, tækni, listum eða tísku. Það er þess vegna sem vatnsberinn er og verður alltaf ungur í anda.

Fiskur

Skv. stjörnuspeki samsvarar hvert merki dýrahringsins þróunarstig sálarinnar frá byrjun við fyrsta merki hrútsins og til endans við og í fiskunum. Það leikur engin vafi á því að vatnsmerkin og fiskamerkið það æðsta og síðasta vatnsmerkjana bendir til afar gamallar sálar.

Vatnið er táknrænt fyrir dýptir tilfinninga okkar, samúð og samkennd. Fiskurinn er sérlega samúðarfullur og einstaklingur sem elskar án takmarkanna.

Kærleikur er lykilorð fiskamerkisins og þetta er séð í flestum hans gjörðum. Þegar hann sér einhvern sem þjáist eða í vandræðum snertir það hjarta hans og hann getur ekki annað en boðið fram hjálp sína. Hjartað hans finnur til. Jafnvel þó fiskurinn sé upptekin eða í flýti þá tekur hann sér tíma til að ljá hjálparhönd sína hvar sem hann getur. Að láta sér annt um er honum eðlislegast í heimi. Vinir hans vita að hann er sá sem hægt að leita til þegar þeim líður illa eða þegar þeir þurfa á hjálp að halda. Fiskurinn er ávallt til staðar til að aðstoða og ljáir eyra eða öxl eftir því sem þörf er á.

Helsta vandamál fisksins er viðkvæmni hans. Vegna viðkvæmni sinnar getur hann forðast það á stundum að taka erfiðar ákvarðanir, sérstaklega ef það geturá einhvern hátt komið illa við annað fólk. Megin hættan hjá fisknum er að hann hjálpi öðrum meir en er honum hollt og vanræki sjálfan sig í kjölfarið. Sumir fiskar ganga svo langt að verða að hálfgerðu fórnarlambi í samböndum sínum vegna sinnar eilífrar fórnarfýsi. Fiskurinn verður að reyna að koma auga á það þegar verið er að nota hann og sporna við því eftir fremstu getu. Enginn mun njóta góðs af þessu hvort sem er þegar til lengdar lítur. Að koma jafnvægi á sínar eigin þarfir og annarra er mikilvægur lærdómur fyrir fiskinn.

Fiskurinn er þónokkur draumóramaður en hefur þó sterkt innsæi sem er oftar en ekki rétt. Færni hans til að sjá fyrir atburði er nokkuð athyglisverð og margir fiskar hafa hæfileika til miðlunar eða skyggnigáfu. Fiskurinn má þó ekki gleyma að ekki er nóg að styðjast við innsæið eitt en að þroska verður rökfestu og hugsun að sama skapi. Fiskurinn á það til að hugsa ekki hlutina til enda. Oft vil hann heldur leysa lífssins vandamál með því að nota sterkar tilfinningar sínar og innsæi en þarna getur hann virst fólki ópraktískur eða hreinlega út í bláinn.

Fiskurinn er sérlega næmur og tilfinningaríkur. Til þess að geta tjáð þessa dýpt þarf hann gæta sín á því að velja sér umhverfi og fólk af kostgæfni. Hann þarf hreinlega stuðning rétta fólksins til að geta tjáð þetta almennilega. Annars gæti næmni fisksins verið honum til trafala því hann getur dregið inná sig neikvæða orku umhverfisins.

Fiskurinn er hugsjónamaður en því miður er heimurinn ekkert í samræmi við fegurð drauma hans. Það er honum stundum erfitt að sætta sig við grimmd og aðra galla heimsins. Stundum á hann svo erfitt með þetta ytra umhverfi sem hann hefur fæðst inní að hann skapar sér sinn eigin sem er svo miklu fallegri og rómantískari. Hann þarfnast góðra vina til að hjálpa sér við að fóta sig kyrfilega á jörðinni svo að draumar hans dragi hann ekki inní blekkingar og á önnur hættuleg svæði. Fiskurinn nýtur eigin félagsskapar og er nokkuð hamingjusamur við að dunda sér á eigin spýtur og skoða hvað heimurinn og náttúran hefur uppá að bjóða. Hann er þó líka sáttur í hópi fólks en hann getur þó upplifað sig svolítið einangraðan og ótengdan asa lífsins.

Fiskurinn er mjúkur, móttækilegur og aðlögunarfær. Hann tjáir fólkinu sínu sínar fallegustu tilfinningar og er tilbúinn að taka við því sama á móti. Fiskurinn er auðsærður og verður auðveldlega þunglyndur ef einhver kemur fram við hann af tillitssleysi. Grimmd er eitthvað sem hann ekki skilur. Vegna þess hve næmur fiskurinn er reynir hann stundum að fela tilfinningar sínar.

Fiskurinn er djúpþenkjandi og býr yfir þeim skilningi að það er undirliggjandi vitrund sem sameinir allt líf á jörðinni. Þetta sér hann oft skýrar en hinn raunverulegu og áþreyfanlegu tilveru. Fiskurinn getur auðveldlega tengt sig inná djúpa vitund heimsins og í gegnum það framleitt dásamlega list og tónlist. Fiskurinn ætti alltaf að leyfa sér að tjá sýnir sínar í lífinu. Menningaríkt er honum mikilvæg og hann elskar að umvefja sig listum, tónlist, ljóðlist og fallegum húsmunum.