Meyja

Meyjan er jarðarmerki og sjötta merki dýrahringsins. Hún tilheyrir hóp af fólki sem er þekkt fyrir fullkomnunaráráttu sína og sundurgreinandi hugsun.

Meyjunni er jafnan strítt yfir því að vera stíf í skipulagsæðinu sínu en í fullri alvöru hvað er að því að vera skipulagður, hreinlegur og reglusamur? Meyjan er að vissu leyti misskilin og nærgætni hennar til smáatriða, þrá hennar fyrir afburði og hreinlæti er ekki eins slæmt og margur gæti haldið. Meyjan á þó nokkuð annríkt við að vera vandlát og gagnrýnin á heiminn. Sumum finnst hún setja mörkin aðeins of hátt og finnst erfitt að mæta væntingum hennar. Ef fólk bara vissi hvað hún er gagnrýnin við sjálfa sig. Í raun og veru þá ætlast hún aldrei til meir af öðrum en af sjálfri sér. Fólk gæti lært heilmikið af meyjunni, eins og bara því sem hversu mikið er í raun hægt að áorka þegar væntingarnar eru settar aðeins hærra en gengur og gerist. Það er líka líklegt að þegar meyjan lýsir gagnrýni á einhverju að hún hafi bæði vel greint og tekið saman alla þætti aðstæðna áður en hún tjáir sig um málið. Þó mörgum gæti fundist þessi vani pirrandi eru aðrir sem finnast þetta þægilegt og reyna jafnvel að fá meyjuna til samvinnu og liðs við sig. Það er fólkið sem sér hennar náttúrulegu hæfileika og kann að meta sérkunnáttu hennar.

Meyjan skilur eftir markandi áhrif sín með innsýn sinni og breiðu þekkingarsviði. Meyjan er einfaldlega afar áhugaverð persóna að umgangast. Og þegar fólk kynnist meyjunni nánar, sér það hversu áhugaverð hún getur verið með allar sínar endalausu upplýsingar og fróðleik. Meyjunni finnst það einfaldlega vera praktískt að gera alla hluti vel og kerfisbundið. Það skiptir ekki máli hversu stórt eða lítið verkefnið reynist, stolt sitt setur hún í hversu vel það er unnið. Meyjan skoðar alla málsþætti áður en hún hellir sér út hlutina. Þegar hún hefur svo skoðað alla þætti gerir hún sitt besta til að ljúka við verkið. Fólk sem hefur hins vegar ekki sömu skipulagshæfileika gæti fundist það pirrandi og jafnvel erfitt að vinna með henni. Meyjan sér einfaldlega enga ástæðu til að gera hlutina til hálfs. Það fer ekkert á milli mála að heldur vil hún sleppa því alveg.

Tími er meyjunni afar mikilvægur og því notar hún hann vel. Það er afar sjaldgæft að finna óskipulagða meyju, ef það er hægt. Að halda dagbók og að gera hvers kyns lista er það skemmilegasta sem hún gerir. Penninn og blaðið er gríðarlega mikilvægt svo eitt af því skemmtilegasta sem meyjan gerir er að fara í ritfanga- og bókaverslanir. Þetta hljómar vissulega svolítið skrýtið en hún VERÐUR að hafa rétta pennan til að geta gert verkið ALVEG rétt. Meyjan skoðað alltaf allt með varkárni, smávægilega hluti eins og matarmiðan og hvaða persóna er rétt fyrir hana í vinnu eða rómantík. Meyjan hefur arnaraugu og sér galla eða misför langar leiðir. Ef t.d. matarreikningurinn er 100 krónum of hár þá er hún fljót að koma auga á það. Loftnet meyjunnar er gríðarlega skarpt og hún tekur eftir öllum smáatriðum hvert sem hún fer. Hún er einnig afar vel lesin og á sér mörg áhugamál. Meyjan er eilfíðar nemandi og nýtur þess að safna hvers kyns og jafnvel óþarfa upplýsingum.

Sumir upplifa meyjuna feimna en þetta er bara því hún á það til að skoða og skanna umhverfið áður en hún tekur afstöðu. Hún hefur skarpa greind en vil heldur fara varlega áður en hún myndar sér skoðanir, þær verða jú að vera réttar. Meyjan tekur alltaf praktískar staðreyndir fram yfir tilfinningar og hugsjónir.