Fiskur

Skv. stjörnuspeki samsvarar hvert merki dýrahringsins þróunarstig sálarinnar frá byrjun við fyrsta merki hrútsins og til endans við og í fiskunum. Það leikur engin vafi á því að vatnsmerkin og fiskamerkið það æðsta og síðasta vatnsmerkjana bendir til afar gamallar sálar.

Vatnið er táknrænt fyrir dýptir tilfinninga okkar, samúð og samkennd. Fiskurinn er sérlega samúðarfullur og einstaklingur sem elskar án takmarkanna.

Kærleikur er lykilorð fiskamerkisins og þetta er séð í flestum hans gjörðum. Þegar hann sér einhvern sem þjáist eða í vandræðum snertir það hjarta hans og hann getur ekki annað en boðið fram hjálp sína. Hjartað hans finnur til. Jafnvel þó fiskurinn sé upptekin eða í flýti þá tekur hann sér tíma til að ljá hjálparhönd sína hvar sem hann getur. Að láta sér annt um er honum eðlislegast í heimi. Vinir hans vita að hann er sá sem hægt að leita til þegar þeim líður illa eða þegar þeir þurfa á hjálp að halda. Fiskurinn er ávallt til staðar til að aðstoða og ljáir eyra eða öxl eftir því sem þörf er á.

Helsta vandamál fisksins er viðkvæmni hans. Vegna viðkvæmni sinnar getur hann forðast það á stundum að taka erfiðar ákvarðanir, sérstaklega ef það geturá einhvern hátt komið illa við annað fólk. Megin hættan hjá fisknum er að hann hjálpi öðrum meir en er honum hollt og vanræki sjálfan sig í kjölfarið. Sumir fiskar ganga svo langt að verða að hálfgerðu fórnarlambi í samböndum sínum vegna sinnar eilífrar fórnarfýsi. Fiskurinn verður að reyna að koma auga á það þegar verið er að nota hann og sporna við því eftir fremstu getu. Enginn mun njóta góðs af þessu hvort sem er þegar til lengdar lítur. Að koma jafnvægi á sínar eigin þarfir og annarra er mikilvægur lærdómur fyrir fiskinn.

Fiskurinn er þónokkur draumóramaður en hefur þó sterkt innsæi sem er oftar en ekki rétt. Færni hans til að sjá fyrir atburði er nokkuð athyglisverð og margir fiskar hafa hæfileika til miðlunar eða skyggnigáfu. Fiskurinn má þó ekki gleyma að ekki er nóg að styðjast við innsæið eitt en að þroska verður rökfestu og hugsun að sama skapi. Fiskurinn á það til að hugsa ekki hlutina til enda. Oft vil hann heldur leysa lífssins vandamál með því að nota sterkar tilfinningar sínar og innsæi en þarna getur hann virst fólki ópraktískur eða hreinlega út í bláinn.

Fiskurinn er sérlega næmur og tilfinningaríkur. Til þess að geta tjáð þessa dýpt þarf hann gæta sín á því að velja sér umhverfi og fólk af kostgæfni. Hann þarf hreinlega stuðning rétta fólksins til að geta tjáð þetta almennilega. Annars gæti næmni fisksins verið honum til trafala því hann getur dregið inná sig neikvæða orku umhverfisins.

Fiskurinn er hugsjónamaður en því miður er heimurinn ekkert í samræmi við fegurð drauma hans. Það er honum stundum erfitt að sætta sig við grimmd og aðra galla heimsins. Stundum á hann svo erfitt með þetta ytra umhverfi sem hann hefur fæðst inní að hann skapar sér sinn eigin sem er svo miklu fallegri og rómantískari. Hann þarfnast góðra vina til að hjálpa sér við að fóta sig kyrfilega á jörðinni svo að draumar hans dragi hann ekki inní blekkingar og á önnur hættuleg svæði. Fiskurinn nýtur eigin félagsskapar og er nokkuð hamingjusamur við að dunda sér á eigin spýtur og skoða hvað heimurinn og náttúran hefur uppá að bjóða. Hann er þó líka sáttur í hópi fólks en hann getur þó upplifað sig svolítið einangraðan og ótengdan asa lífsins.

Fiskurinn er mjúkur, móttækilegur og aðlögunarfær. Hann tjáir fólkinu sínu sínar fallegustu tilfinningar og er tilbúinn að taka við því sama á móti. Fiskurinn er auðsærður og verður auðveldlega þunglyndur ef einhver kemur fram við hann af tillitssleysi. Grimmd er eitthvað sem hann ekki skilur. Vegna þess hve næmur fiskurinn er reynir hann stundum að fela tilfinningar sínar.

Fiskurinn er djúpþenkjandi og býr yfir þeim skilningi að það er undirliggjandi vitrund sem sameinir allt líf á jörðinni. Þetta sér hann oft skýrar en hinn raunverulegu og áþreyfanlegu tilveru. Fiskurinn getur auðveldlega tengt sig inná djúpa vitund heimsins og í gegnum það framleitt dásamlega list og tónlist. Fiskurinn ætti alltaf að leyfa sér að tjá sýnir sínar í lífinu. Menningaríkt er honum mikilvæg og hann elskar að umvefja sig listum, tónlist, ljóðlist og fallegum húsmunum.